Fréttatíminn - 30.03.2012, Qupperneq 8
S veitarfélögin eiga ekki að kveinka sér undan hertum kröfum og eftir-liti hvað fjáhagsleg málefni varð-
ar. Það er hins vegar bæði ófaglegt og
óeðlilegt af stjórnvöldum að setja sveitar-
félögum reglur um hvaða skuldbindingar
þau eiga að telja fram í reikningum sínum
og hvernig þær skuli reiknaðar, en gera
svo ekki sett upp sitt bókhald í samræmi
við þessar reglur,“ segir Elliði Vignis-
son, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, í
samtali við Fréttatímann. Hann segir það
undarlegt að ríkið skuli fara á svig við það
laga- og rekstrarumhverfi sem það býr
sveitarfélögunum.
„Það er ástæða til að skoða sérstak-
lega hvernig lífeyrisskuldbindingar hins
opinbera eru færðar til bóka. Þannig
hagar nefnilega til að sveitarfélögum er
skylt, samkvæmt lögum, að telja fram
áætlaðar lífeyrisskuldbindingar í bókum
sínum, sem
þau og gera.
Ríkið hefur
þannig út-
listað ná-
kvæmlega
hvernig
standa
skuli að
útreikningi
á þessum
áætluðu lífeyris-
skuldbind-
ingum.
Slíkt er sérstaklega athyglisvert í ljósi
þess að ríkið sjálft fer ekki eftir því sem
það ætlar sveitarfélögunum að gera. Þvert
á móti tók ríkið ákvörðun um að telja ekki
fram 47 milljarða króna áætlaða lífeyris-
skuldbindingu í efnahagsreikningi. Þar
er svo sem um að ræða aðferð sem vel er
þekkt frá Grikklandi. Afleiðingar þeirrar
aðferðafræði er einnig þekkt,“ segir Elliði
og gefur lítið fyrir þau svör Steingríms J.
Sigfússonar að ekki sé hægt að setja líf-
eyrisskuldbindingar inn í ríkisreikninga
þar sem ekki sé vitað hversu há sú upp-
hæð verði sem komi til greiðslu og því
sé vandasamt að ákveða hvernig eigi að
bókfæra hana. „Það er sannarlega rétt
hjá ráðherra að ómögulegt er að segja
nákvæmlega til um hvaða upphæð mun
koma til greiðslu, en því er nákvæmlega
eins farið með lífeyrisskuldbindingar
sveitarfélaga,“ segir Elliði og spyr í fram-
haldinu: „Hvernig er hægt að krefjast þess
af okkur að við setjum lífeyrisskuldbind-
ingar inn í efnahagsreikning á sama tíma
og ríkið segist ekki geta það?“
Í Fréttatímanum fyrir viku var listi yfir
þau sveitarfélög sem skulda mest á hvern
íbúa. Þar var Vestmannaeyjabær á lista
með skuldir upp á tæplega 1,2 milljónir á
hvern íbúa. Elliði segir að þessi tala ein og
sér gefi villandi mynd af stöðu bæjarins.
„Réttilega kemur fram að skuldir á hvern
íbúa í Vestmannaeyjum séu tæplega 1,2
milljónir. Ein og sér vekur sú tala ugg. Sé
hins vegar horft á eignarhlið efnahags-
reikninsg bæjarins kemur í ljós að heildar-
eignir á hvern íbúa eru rúmar 2,2 milljón-
ir, þar af eru veltufjármunir 1,046 milljónir
á hvern íbúa og handbært fé bæjarins 828
þúsund á hvern íbúa. Vestmannaeyjabær
fer því langleiðina með að eiga reiðufé
fyrir skuldum sínum og skuldbindingum.
Nettóskuldastaða veldur því ekki rekstr-
arerfiðleikum; þvert á móti sýnir hún
hversu góð staða Vestmannaeyjabæjar
er,“ segir Elliði og bætir því við að menn
verði að skoða hvers eðlis skuldirnar eru.
„Ef litið er til samsetningar skulda og
skuldbindinga á hvern íbúa sést að af
þessum 1,2 milljónum á hvern íbúa eru
einungis 138 þúsund krónur vaxta-
berandi skuldir við fjármálastofnanir.
Rúmlega 461 þúsund krónur af þessari
upphæð eru tilkomnar vegna áætlaðra
leiguskuldbindinga. Stærsti hluti heildar-
skuldar og skuldbindinga á hvern íbúa hjá
Vestmannaeyjabæ er áætlaðar lífeyris-
skuldbindingar upp á tæpar 525 þúsund
krónur á hvern íbúa. Öllum má ljós vera sá
munur sem er á því að skulda í banka og
vera með leigusamning eða lífeyrisskuld-
bindingu. Þessum mun er því mikilvægt
að halda til haga,“ segir Elliði.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Tekjur lægri en jafnari
Tekjur Íslendinga eru nú jafnari en þær hafa
verið síðustu ár, samkvæmt niðurstöðum lífs-
kjararannsóknar Hagstofunnar, þ.e. tekjurnar
jafnast út í þá átt að þær minnka í öllum
hópum. Mest lækka ráðstöfunartekjur hjá
þeim sem hæstar höfðu tekjurnar en minna
í öðrum hópum. Meðal ráðstöfunartekjur
þeirra sem tilheyrðu hæsta tekjufimmtungi á
föstu verðlagi ársins 2010, miðað við vísitölu
neysluverðs, voru 651.600 krónur árið 2007
en 474.100 krónur árið 2011 og hafa dregist
saman um 177 þúsund krónur. Meðaltekjur
þess fimmtungs sem hefur lægstu tekj-
urnar hafa á sama tímabili dregist saman um
22.500 krónur og voru meðaltekjur 143.200
krónur á síðasta ári. Í mið-fimmtungi hafa
tekjur dregist saman um 37.400 krónur í að
vera 256.500 krónur á síðasta ári. -jh
Vegleg bókagjöf
Náttúrufræðistofa Kópavogs
fékk fyrr í vetur gefins
veglegan bóka- og tímarita-
kost frá vatnalíffræðideild
Kaupmannahafnarháskóla.
Bóka- og tímaritakosturinn er
nú aðgengilegur í bókasafns-
kerfinu Gegni. Gjöfin saman-
stendur af handbókum og al-
þjóðlegum tímaritum á sviði
vatnalíffræði en á því stundar
Náttúrufræðistofan einkum
rannsóknir. Frumkvæði að
gjöfinni átti Pétur M. Jónasson, fyrrverandi prófessor við Hafnarháskóla og forstöðu-
maður vatnalíffræðideildarinnar, en hann er kunnur fyrir rannsóknarstörf í Mývatni
og Þingvallavatni. Hilmar J. Malmquist, forstöðumaður Náttúrufræðistofunnar, veitti
gjöfinni viðtöku, að því er fram kemur í tilkynningu Kópavogskaupstaðar. Verkin eru
ekki til útláns en hægt er að fá eintök til láns innanhúss og nota á staðnum. -jh
Hvernig er hægt
að krefjast þess
af okkur að við
setjum lífeyris-
skuldbindingar
inn í efnahags-
reikning á sama
tíma og ríkið
segist ekki geta
það?
LífeyriSSkuLdbindingar ríki og SveitarféLög
Segir ríkið fara á
svig við eigin reglur
Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum furðar sig á því að ríkið skuli setja sveitarfélögum stífar reglur
varðandi það hvernig lífeyrisskuldbindingar eru taldar fram í ársreikningum en sleppi sjálft 47
milljarða lífeyrisskuldbindingum í sínum ársreikningum.
Elliði Vignisson, bæjar-
stjóri Vestmannaeyja-
bæjar.
HESTAR OG HAF
Upplifðu íslenskt ævintýri á sjó og
landi með hópnum þínum. Hestaferð
frá Hafnarfirði, sjóstöng frá Reykjavik,
grill og gleði. Hestamannapolkinn og
sjómannavalsinn sameinast í rífandi
stemningu!
SÉRFERÐIR
Frekari upplýsingar fást með tölvupósti á info@ishestar.is
og info@serferdir.is eða í símum 777 0088 / 555 7000.
Minnum á gómsæta páskabrunch-inn okkar
og hlökkum til að sjá ykkur um páskana
8 fréttir Helgin 30. mars-1. apríl 2012