Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.03.2012, Side 34

Fréttatíminn - 30.03.2012, Side 34
B íóáhuginn hefur fylgt Óskari frá í bernsku og hann segist eiga nokkuð dæmigerða sögu fyrir kvikmynda- áhugamann á hans aldri. „Ég á mér mjög mjög klassíska sögu og fyrsta myndin sem ég man eftir að hafa séð í bíó er Star Wars. Þetta er svona gangandi klisja og ég byrjaði að gera stuttmyndir þegar ég var unglingur,“ segir Óskar. Svartur á leik sýnir svo ekki verður um villst að glæpir eru efniviður sem leikur í höndum hans og því má spyrja hvort hann hyggist sérhæfa sig í myndum af þessu tagi? „Draumurinn er að geta gert alls konar ólíkar myndir og flakka á milli kvikmynda- greina en ef ég þyrfti að velja einhverja eina þá myndi ég velja þrillera eða eitthvað svoleið- is. Það sem er gott við akkúrat þessa grein er að maður getur laumað inn smá húmor líka og getur leyft sér að skemmta svolítið um leið. Ég hef gaman að því og þar liggur ástæð- an fyrir því að ég vildi gera þessa sem mína fyrstu mynd. Ég elska þessa kvikmyndagrein og er svolítið á heimavelli þarna.“ Þegar talið berst að kvikmyndaleikstjórum sem Óskar horfir til sem fyrirmynda að ein- hverju leyti nefnir hann til sögunnar kappa sem hafa haft fjölbreytni í verkefnavali að leiðarljósi. „Þeir eru ofboðslega margir en sem leikstjóri heillast ég af þeim sem eiga ólíkar myndir á ferilsskrá sinni, flakka á milli greina, eru afkastamiklir og fara fumlaust á milli kvikmyndagreina. Menn eins og Steven Soderbergh, Michael Winterbottom eða Danny Boyle og David Fincher að ein- hverju leyti. Allir þessir leikstjórar eru mjög fjölbreyttir og Soderbergh, til dæmis, þegar hann gerir Ocean´s 11 þá einhvern veginn gerir hann myndir af þessu tagi betur en aðr- ir. Ég er hrifinn af þessu og þeir eru kannski eiginlega fyrirmyndirnar. Annars er ég alæta á kvikmyndir.“ Svartur kallar Óskar hélt til náms í New York University í Bandaríkjunum árið 2001 og birtist nú skyndilega eins og skrattinn úr sauðarlegg- num með þessa mögnuðu glæpamynd án þess að fólk áttaði sig almennilega á því hvaðan þessi hæfileikaríki leikstjóri komi. Hann á þó að baki farsælan feril sem auglýs- ingaleikstjóri hér heima en áður en hann hélt utan rak hann framleiðslufyrirtækið Þeir tveir með Gunnari Birni Guðmundssyni sem hefur getið sér gott orð fyrir kvikmyndirnar Astrópía og Gauragangur að ógleymdum hinum hárbeittu áramótaskaupum síðustu ára. „Ég ílengdist í Bandaríkjunum meðal annars vegna þess að Hulda, konan mín, var í doktorsnámi.“ Síðan kallaði Svartur á hann og hjónin fluttu aftur heim. „Við fluttum heim 2009 þegar við vorum komnir með munnlegt vil- yrði fyrir myndinni en síðan fór allt í óvissu hjá Kvikmyndamiðstöðinni, þetta frestaðist og við vorum eiginlega í limbói í hálft ár. Þurftum að gera nýja umsókn og þetta leit nú ekki vel út á tímabili.“ Framleiðslufyrirtækin ZikZak og Filmus tryggðu sér kvikmyndaréttinn á Svartur á leik nánast um leið og bókin kom út árið 2004. „Ég var í heimsókn hérna um jólin þeg- ar bókin kom út og heyrði eitthvað af þessu. Ef ég man rétt þá sendu þeir mér bókina fljótlega upp úr því. Bara svona til að kíkja á. Ég las hana og varð strax ótrúlega hrifinn af þessu og mjög áfram um að fá að gera þessa mynd. Ég hafði bara gert einhverjar stutt- myndir á þeim tíma en skrifaði strax mína sýn á þetta í nokkurra blaðsíðna skjali þar sem ég útlistaði hvernig mér finndist að þessi bíómynd ætti að vera. Í framhaldinu fékk ég verkefnið og 2006 byrjaði ég að vinna í fyrstu handritsdrögunum. Ég vann svo bara í þessu í og með næstu árin. Á bókasöfnum í Brook- lyn og eitthvað þannig.“ Óskar er farinn með Svartur á leik á kvik- myndahátíðina í Hong Kong og þaðan liggur leiðin til Los Angeles. „Ég er með umboðs- mann þar og það stóð alltaf til að ég færi þangað um tíma þegar ég væri búinn að frumsýna. Bæði er áhugi fyrir myndinni þar og svo ætla ég að kynna önnur verkefni. Þetta eru að einhverju leyti leifar frá því að ég bjó úti og svona og ég sló bara þessum ferðum saman.“ Óskar á leik Óskar segir athyglina sem Svartur á leik hef- ur fengið tvímælalaust hafa styrkt stöðu hans í kvikmyndabransanum til mikilla muna. „Það er ekki spurning og maður finnur að það er allt í einu kominn rosalegur áhugi. Það er stórt skref fyrir mig að hafa klárað mína fyrstu mynd. Risamál bara og ég held að fyrsta mynd sé erfiðasti hjallinn.“ Óskar segir þau hjónin una hag sínum vel á Íslandi eftir dvölina ytra og þau séu að koma fjöl- skyldunni fyrir hér heima. „Við erum alveg ánægð hérna en ætlum samt til Los Angeles næsta vetur. Það hentar okkar högum vel og þá ætla ég að reyna að ýta við nokkrum hlutum. Ég held samt að við séum alveg flutt heim, ef það má orða það þannig. Þangað til annað kemur í ljós.“ Óskar er með ýmislegt í pípunum sem komið er mislangt og hann reynir að sjá nokkra leiki fram í tímann. „Ég er að reyna að halda nokkrum boltum á lofti,“ segir Óskar en fyrr í þessum mánuði var tilkynnt að búið sé að ráða hann til þess að leikstýra hrollvekjunni Ég man þig sem byggir á sam- nefndri metsölubók Yrsu Sigurðardóttur. Vonir standa til þess að framleiðslan geti hafist í vetur. „Síðan er handrit sem ég skrifaði áður en ég skrifaði Svartur á leik og vakti einhverja athygli á mér sem hand- ritshöfundi í New York þá. Ég ákvað síðan að ég vildi frekar leikstýra þeirri mynd en selja handritið. Hún er alltof stór sem fyrsta mynd þannig að ég ákvað að bíða með hana og ætla núna að reyna að ýta henni úr vör. Síðan eru nokkrir aðrir hlutir í gangi. Við Stefán Máni erum að vinna saman í einu frumsömdu verkefni og síðan er ég að lesa handrit alveg á fullu. Vonandi verður ekki sama þrautagangan að koma þessum verk- efnum á koppinn og Svartur var en þetta tekur samt allt svo mikinn tíma og þessi blessaða fjármögnun er eitthvað svo mikið vesen þannig að ég ætla bara að reyna að vera með nokkra hluti í gangi og vona að eitthvað detti inn.“ Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Glæpamyndir eru heimavöllurinn Óskar Þór Axelsson flutti heim til Íslands eftir átta ára dvöl í Bandaríkjunum, ekki síst til þess að leikstýra glæpamyndinni Svartur á leik sem hefur heldur betur slegið í gegn. Svartur á leik er fyrsta mynd Óskars í fullri lengd og að baki liggur löng þrautaganga. En nú er boltinn byrjaður að rúlla og og Óskar er með mörg járn í eldinum enda kominn yfir erfiðasta hjallann. Þórarinn Þórarinsson ræddi við Óskar um fyrirmyndirnar í kvikmyndabransanum, næstu verkefni og glæpina sem heilla. Óskar Þór Axelsson flutti heim frá Bandaríkjunum til þess að gera Svartur á leik og fullyrða má að hann hafi komið, séð og sigrað. Rúmlega fjörutíu þúsund manns hafa séð myndina í bíó og framtíðin er spennandi og björt hjá leik- stjóranum. Ljósmynd Hari. Ég á mér mjög klassíska sögu og fyrsta myndin sem ég man eftir að hafa séð í bíó er Star Wars. Leikurinn ræður úrslitum Gagnrýnendur hafa lofað Svartur á leik í hástert og ekki síst hrósað þéttum og góðum leikhópnum sem skilar sínu tilgerðarlaust og með miklum glæsibrag. En hver er galdurinn hjá ungum leikstjóra við að ná því besta út úr þessum hópi sem telur ólíka einstaklinga? „Þetta er pottþétt það sem ég hafði lang mestar áhyggjur af. Ég hef ekki bakgrunn í leiklist og hef einhvern veginn ekki alltaf vitað nákvæm- lega hvernig á að nálg- ast leikara þannig að ég hef bara lagt mig mikið fram við það. Ég er algjörlega á því, þetta er bara mín skoðun á bíómyndum almennt, að ef þær eru ekki vel leiknar, bara að það séu eitt eða tvö rotin epli, þá getur myndin orðið ónýt. Alveg sama hversu kvik- myndatakan er flott, sviðsmyndir og tökustaðir og allt það. Og sagan góð. Ef leikurinn klikkar þá er þetta ekki mynd. Þannig að ég lagði mig mikið fram, við æfðum mikið fyrir þetta og ég var líka mjög lengi að velja leikarana. Ég var mjög stressaður yfir þessu en á endanum fann ég að ég var ánægður. Og það er góð tilfinning.“ 34 viðtal Helgin 30. mars-1. apríl 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.