Fréttatíminn - 30.03.2012, Page 40
Háttatími hálf-
vitanna
Alþingi Íslendinga
og þau sem þar sitja
njóta takmarkaðrar virðingar
þessi misserin og ástandið er
svo slæmt að þingmenn virðast
pirra fólk meira þegar þeir eru
sofandi heima en þegar þeir
delera í pontu.
Björn Birgisson
Hvað skyldi hálftími hálfvitanna
teygja sig langt fram á kvöldið
örlagaríka?
Illugi Jökulsson
Ætla sjálfstæðismenn virkilega
að stöðva þjóðaratkvæða-
greiðslu um nýja stjórnarskrá
með málþófi í dag? Er það
„afreksverk“ sem þeim finnst
þeir geta verið stoltir af? Og eru
kjósendur þeirra hæstánægðir
með að í þetta eyði þeir
tímanum?
Ólafur Ólafsson
Hvar voru allir þingmennirnir,
heima sofandi, ég spyr ...!!
Þorfinnur Ómarsson
Reynir að vekja upp heimþrá
með því að hlusta á Alþingi í
beinni... nei, bara grín.
Baldur Hermannsson
Magnús Orri Schram og
Álfheiður virðast hreinlega
gengin af göflunum og það
mætti halda að Jóhanna væri
búin að ræna völdum og leggja
niður Alþingi. En stjórnarand-
staðan rækir bara skyldur sínar
sem er að ræða lagafrumvörp
og benda á augljósa galla, nóg
er nú framleitt af gölluðum
lögum hér á landi þótt þessum
óhroða sé ekki við aukið.
Þráinn Bertelsson
Eins og sérhagsmunasveit
Sjálfstæðisflokksins er búin að
láta á þinginu til að leggja stein
í götu þjóðarinnar til að koma
í veg fyrir að almenningur fái
að kjósa um nýja stjórnarskrá
má það heita furðulegt ef aðrir
en fífl og fasistar kjósa þetta
flokksræksni.
Gott djobb?
Yfirvofandi forsetakosn-
ingar eru fólki ofarlega í huga á
Facebook.
Lára Hanna Einarsdóttir
Fjórir karlar hafa lýst yfir
framboði sínu til embættis
forseta Íslands. Þar af tveir
sem fáir vita deili á. Ekki ein
einasta kona hefur lýst yfir
framboði þótt margar hafi verið
nefndar til sögunnar, þar af ein
eða tvær sem gætu mögulega
unnið. Hvað veldur þessu hiki
kvennanna?
Hulda Hákon
Ég hvet ykkur til þess að hvetja
Herdísi [Þorgeirsdóttur] áfram!
Hún hefur færnina,
yfirsýnina, fram-
komuna og mennt-
unina til þess að
valda verkefninu.
Garðar Örn Úlfarsson
Er engin von til þess að þetta
lið sem vill setjast upp á Bessa-
stöðum spái í eftirspurnina áður
en það íhugar framboðið?
Bland í poka
Góðu heilli lætur fólk í net-
heimum sig fleira varða en
forsetakjör og málþóf á þingi.
Þórunn Hrefna
Í þessum mánuði hef ég eignast
átta nýja feisbúkkvini. Á sama
tíma eignaðist Hildur Lilliendahl
Viggósdóttir þrjúhundruðfjöru-
tíuogfjóra vini. HVERS VEGNA
ER ÉG HÆDD OG FYRIRLITIN
Á FB?
Erla Hlynsdóttir
Björnsbakarí í Vesturbæ vill
vera vinur minn á Facebook. Er
þetta þá ekki bara búið?
María Lilja Þrastardóttir
„Ertu að láta þessar kellingar
hlusta þig? Þú átt nú bara að
láta þær nudda þig!“ Raunveru-
leiki íslenskra hjúkrunar-
kvenna?
Hildur Knútsdóttir
Grasið í garðinum mínum er
orðið grænt!
40 fréttir vikunnar Helgin 30. mars-1. apríl 2012
35
milljarðar íslenskra króna er
upphæðin sem Björgólfur
Thor Björgólfsson myndi fá í
sinn hlut ef Actavis yrði selt á
5,5 milljarða evra.
Góð vika
fyrir Gunnar Guðmundsson,
þjálfara U-17 ára landsliðs drengja í fótbolta
Slæm vika
fyrir Þorstein Má Baldvinsson,
forstjóra Samherja
40
prósent íslenskra barna fara
aldrei til tannlæknis sam-
kvæmt skýrslu sem Barna-
heill birti. Tannhirða íslenskra
barna er sú sjötta lélegasta í
OECD-ríkjunum.
Þjóðnýtt húsleit
Sægreifinn Þorsteinn Már Baldvinsson vill sjálfsagt gleyma þessari
viku sem fyrst. Ekki einvörðungu var sjávarútvegurinn í heild sinni
„þjóðnýttur“, eins og Morgunblað-
ið, sem er reyndar í eigu Þor-
steins og annarra sægreifa,
setti nýtt fiskveiðistjórnunar-
frumvarp ríkisstjórnarinnar
fram á forsíðu, heldur skelltu
starfsmenn gjaldeyriseftir-
lits Seðlabankans og sérstaks
saksóknara sér norður yfir
heiðar og gerðu húsleit
í höfuðstöðvum
Samherja
vegna
gruns
um brot
félags-
ins á
gjaldeyris-
lögum.
179
vikan í tölum
HeituStu kolin á
milljarðar voru samanlagðar nettóskuldir
íslenskra sveitarfélaga í árslok 2010.
Skutu Skotum og
Dönum ref fyrir rass
Gunnar Guðmundsson og lærisveinar hans í U-17 ára lands-
liði drengja náði þeim frábæra árangri að tryggja sér sæti í
úrslitum EM í Slóveníu í maí
með því að sigra í milliriðli
í Skotlandi um síðustu
helgi. Liðið gerði
jafntefli gegn Dönum
en vann sterkt lið Skota
og Litháa örugglega,
4-0, í síðasta leiknum.
Sannarlega glæsilegur
árangur hjá
Gunnari
og hans
mönn-
um.
Tveggja ára fangelsi fyrir að
deyða barn
Agné Krataviciuté var á miðvikudaginn
dæmd í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa
deytt barn sitt og skilið líkið eftir í sorpgámi
við Hótel Frón í Reykjavík 2. júlí í fyrra.
Ábendingar um hvaltannaþjófa
Lögreglunni í Stykkishólmi hafa borist
ábendingar um hverjir gætu hafa verið að
verki þegar kjálka og tönnum úr búrhval var
stolið í Beruvík, þjóðgarðinum á Snæfells-
nesi.
Slasaðist í Straumsvík
Maður slasaðist í álverinu í Straumsvík á
miðvikudaginn. Fótur hans klemmdist undir
búnaði sem verið var að færa til með krana.
Steingrímur ræddi efnahagsmál
í Ottawa
Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og við-
skiptaráðherra, átti fundi með ráðherrum,
bankamönnum og öldungadeildarþing-
mönnum í Ottawa í Kanada á miðvikudag-
inn. Þá tók hann þátt í pallborðsumræðum
um efnahagsmál og vanda ríkissjóða.
8,5
sentimetrar er lengdin á
hundinum Beyoncé sem
gerir tilkall til þess að vera
minnsti hundur heims.
92
leikir var það sem Portúgal-
inn Cristiano Ronaldo þurfti
til að skora hundrað mörk
fyrir Real Madrid.
Formenn ríkisstjórnarflokkanna, Jóhanna
Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon,
kynntu á mánudaginn nýtt frumvarp að fisk-
veiðastjórnunarkerfi. Það kveður á um innköllun
rúmlega fimm prósentna úthlutaðs kvóta sem
fer í sérstakan leigupott. Veiðigjald verði
stórhækkað, framsal takmarkað og auknar
heimildir stjórnvalda til úthlutunar á félags-
legum forsendum. Stjórnarandstöðuleiðtogar
telja nýtt kvótafrumvarp ýmist ganga of langt
í skattheimtu eða of stutt í innheimtu endur-
gjalds fyrir auðlindina. Útgerðarmenn segja
forsendur útreikninga veiðigjaldsins gallaðar og
að skattheimta verði mun meiri en stjórnvöld
reikna með. Ljósmynd/Hari
Aðalstræti 2 / 101 Reykjavík / Sími: 517 4300 / www.geysirbistro.is
Borðapantanir í síma 517-4300
Humarsalat & Hvítvín 2.250 kr.
Humarsalat með hægelduðum smátómötum, mangó,
sultuðum rauðlauk og ristuðum cashew-hnetum
ásamt hvítvínsglasi.
Bláskel & Hvítvín 2.950 kr.
Hvítvínssoðin bláskel úr Breiðafirði ásamt
hvítvínsglasi.
G
e
y
s
ir
Bi
stro & Bar
FERSKT
&
FREiSTa
ndi
Fagmennska
í Fy
ri
rr
ú
m
i
SpennAndi
sjávarrétta
tilBoð