Fréttatíminn - 30.03.2012, Síða 43
Breyttir tímar!
Kæru lesendur. Það er von
okkar að þetta fyrsta tölublað
LIFANDI lífsstíls veiti ykkur
innblástur og innsýn inn í
hvað LIFANDI markaður hefur
að bjóða. Við rekum matvöru-
verslanir, veitingastaði og
stöndum fyrir fræðslu og nám-
skeiðum – allt til að stuðla að
bættri heilsu og vellíðan í sátt
við umhverfið og náttúruna.
Við finnum að það er mikil
vitundarvakning í samfélaginu.
Neytendur eru ekki einungis
meðvitaðri en áður um holl-
ustu heldur gera auknar
kröfur um að vita hvaðan
vörurnar koma og að það sé
tryggt að þær séu framleiddar
við góðar aðstæður í sátt við
umhverfið. Hins vegar erum
við einungis að taka fyrstu
skrefin í þeirri byltingu sem
er að eiga sér stað í matvæla-
framleiðslu í heiminum. Í
framtíðinni munu neytendur
gera enn meiri kröfur um
rekjanleika matvæla, betri
framleiðsluhætti og næringar-
innihald. Þetta er mikilvægt
meðal annars til að auka heil-
brigði, sérstaklega barna sem
eru að vaxa og þroskast. Við
viljum svara þessu kalli.
Áhyggjulaus innkaup
Markmið okkar er að vera
alhliða matvöruverslun þar
sem hægt er að kaupa inn til
heimilisins á einum stað án
þess að hafa áhyggjur af því
að vörurnar innihaldi óæski-
leg fyllingar- og aukefni. Við
bjóðum einungis hreinar vörur
úr heilnæmum hráefnum og
stærsti hluti vöruúrvals
okkar er lífrænt vottaður. Við
erum stolt af því að bjóða nú
fjölbreyttara úrval en áður af
mat-, hreinlætis- og snyrtivöru.
Margir af viðskiptavinum
okkar hafa t.d. lýst ánægju
sinni með aukið úrval af
ferskvöru eins og grænmeti,
ávöxtum, mjólkurvörum, fiski
og lífrænu kjöti.
Lífræn demeter-ræktun hófst í
Þýskalandi fyrir um 80 árum.
Í upphafi voru ekki margir
bændur sem stunduðu hana en
í dag hefur þeim fjölgað mikið
og í gegnum árin hefur hún
hlotið mikla viðurkenningu og
útbreiðslu.
Alveg frá upphafi hafa
rannsóknir verið stundaðar
á ágæti þessarar ræktunar
og á þeim tíma hefur margt
áhugavert komið í ljós. Afurðir
sem ræktaðar eru á þennan
hátt eru almennt taldar
næringarríkari, bragðbetri og
geymsluþolnari.
Jarðvegurinn er undirstaðan
Að sjálfsögðu gilda allar þær
reglur sem farið er eftir í
annarri lífrænni ræktun en
í demeter-ræktun eru krö-
furnar enn strangari. Það
sem sérstaklega er lögð mikil
áhersla á er að viðhalda frjó-
sömum og næringarríkum
jarðvegi – en jarðvegurinn er
undirstaðan í lífrænni ræktun.
Til þess að fá sem fjölbreytt-
asta næringu eru notaðar
sérstakar jurtablöndur úr
næringarríkum jurtum og þeim
úðað yfir jarðveginn. Safn-
haugaáburður er einnig mjög
mikilvægur í þessari ræktun.
Sjálfbær búskapur
Bóndi sem stundar demeter–
ræktun rekur sjálfbæran
búskap þar sem hann er bæði
með dýrahald og fjölbreytta
matjurtaræktun. Áherslan
er því ekki á eina eða örfáar
tegundir eins og algengast er í
hefðbundinni ræktun heldur á
sem fjölbreyttast úrval. Hann
framleiðir einnig sjálfur fóður
fyrir dýrin á bænum. Þannig
fær hann að auki demeter-
vottaðar mjólkurafurðir og
aðrar dýraafurðir. Dýrahaldið
er mjög mannúðlegt þar sem
sérstaklega er hugað að eðlis-
lægum þörfum dýranna. Þar
gilda strangar reglur alveg eins
og við matjurtaræktunina.
Á hverju ári er gefið út
sáningardagatal með leiðbein-
ingum fyrir þá sem vilja nota
þessa ræktun.
Hámarks næringarupptaka
Þar sem demeter-ræktun er
stunduð verður jarðvegurinn
mjúkur og vatn og næringar-
efni eiga því auðveldara með
að smjúga inn í hann og vatn
rennur ekki af þurru yfir-
borðinu – sem er víða vanda-
mál í hefðbundinni ræktun
– heldur beint niður í moldina
og nærir plöntuna. Rætur
jurtanna vaxa meira niður á
við og ná miklu dýpra niður í
moldina og eiga þar af leiðandi
auðveldara með að ná að taka
til sín vökva og nærast. Þess
vegna þarf að nota töluvert
minna vatn við ræktunina
sem er mikill kostur þar sem
vatn er af skornum skammti.
Sem dæmi um þetta má nefna
að í eyðimörkum hefur þessi
ræktun gefið góða raun og
víða þar sem áður var ekki
stingandi strá og álitið var að
engar plöntur gætu vaxið eru
nú grænir dalir.
Virðing og þakklæti
Þeir bændur sem leggja stund
á demeter ræktun bera mikla
virðingu fyrir jörðinni og því
sem hún færir okkur. Hugsun-
in sem býr að baki er að við
séum hluti af náttúrunni og
þess vegna beri okkur að sýna
henni virðingu og þakklæti.
Hildur Guðmundsdóttir
Umhugað um áhrif neyslu á
umhverfið
Við skoðum málin líka í víðara
samhengi og þar með áhrif
neyslu á umhverfið. Við viljum
hvetja til siðrænnar neyslu
og aukinnar meðvitundar um
hvað við erum að kaupa og
leggja okkur til munns. Þá er
það okkar hjartans mál að
framleiðsluaðferðir séu í sátt
við náttúruna með sjálfbærni
og velferð búfjár að leiðarljósi.
Við viljum leggja okkar af
mörkum við að skila jörðinni
til komandi kynslóða í betra
ástandi en hún er í dag.
Aukið úrval af íslenskum
vörum „beint frá bónda”
Eitt af markmiðum LIFANDI
markaðar er að bjóða sem
mest af árstíða- og svæðis-
bundnum vörum. Við höfum
því eflt samband okkar við
íslenska framleiðendur og
erum sífellt að auka úrval
okkar af íslenskum vörum
„beint frá bónda“ og íslenskum
lífrænt vottuðum vörum.
Samkeppnishæft verð og
persónuleg þjónusta
Við skiptum einungis við
aðila sem leggja sig fram
við að framleiða gæðavörur
úr bestu fáanlegu hráefnum
hverju sinni. Við leggjum
hins vegar áherslu á að vera
með samkeppnishæft verð
og gerum það með því að
sýna ráðdeild og hagkvæmni
í rekstrinum. Okkar sérstaða
er að veita viðskiptavinum
okkar persónulega þjónustu og
ráðgjöf og þar með hjálpa fólki
að tileinka sér heilbrigðan og
lífrænan lífsstíl sem er
mörgum framandi.
Mig langar að bjóða ykkur
hjartanlega velkomin til okkar
í Borgartún og Hæðasmára
– við tökum vel á móti ykkur.
Leyfið ykkur að lifa vel!
Arndís Thorarensen,
framkvæmdastjóri
Bls. 2
Hvað er demeter
vottun?
LIFANDI markaður svarar kalli neytenda
um heilnæmar, lífrænar vörur.
Ströngustu kröfur í lífrænni ræktun
Ábyrgðarmaður: Arndís Thorarensen
Ritstjórn: Arndís Thorarensen og Ásdís Ýr Pétursdóttir
Hönnun og umbrot: Gunnar Víðir Þrastarson
Ljósmyndari: Pálmi Einarsson
Demeter vottun tryggir bestu fáanlegu
gæði í lífrænni ræktun; bæði hvað varðar
bragð og næringargildi.
Beutelsbacher safarnir fást í öllum
helstu matvöruverslunum landsins.
Einstakur lífrænn
barnamatur með
Demeter vottun
barnamatur
Demeter vottun tryggir bestu
fáanlegu gæði lífrænni ræktun
Grautarnir eru allir unnir úr heilu korni sem er malað
í steinkvörn á sérstakan mildan hátt til að varðveita öll
mikilvægu næringarefni kornsins.
Ávaxta- og grænmetismaukið er úr ávöxtum, berjum og
grænmeti sem er unnið á eins mildan hátt og mögulegt
er til að varðveita næringarefnin.
Ungbarnaþurrmjólkin er frá kúm (og geitum) sem nærast
eingöngu á grasi og jurtum og ganga lausar allt árið.
Fáðu ókeypis prufur í LIFANDI markaði!
www.holle.is