Fréttatíminn - 30.03.2012, Side 50
Leggur sitt af mörkum
til að auka lífsgæði barna
Ebba segist með áherslu sinni
á næringarríkt mataræði vera
að leggja sitt á vogarskálarnar
til að auka lífsgæði barna. „Ég
sé það á börnunum mínum. Ef
þau eru vel nærð þá eru þau
tilbúnari í verkefni dagsins,
hafa meira þrek, meiri orku og
líður betur.
Maður fær þó ekkert skjalfest í
þessum efnum en maður hefur
engu að tapa. Ég held maður
komi alltaf út í plús ef maður
reynir að borða mestmegnis
hreinan og hollan mat.“
Undantekningar skipta engu
máli
Hún hvetur foreldra til að elda
mat frá grunni þegar það er
hægt, kaupa hrein matvæli
og forðast aukaefni, sykur og
transfitu í matvælum. „Þetta
er allt svo miklu einfaldara en
flestir halda. Matur útbúinn úr
gæðahráefni er svo miklu betri
en unninn matvara.”
Ebba tekur þó skýrt fram að
undantekningar frá hollust-
unni skipti engu máli. „For-
eldrar þurfa ekki að vera
hræddir við þær, t.d. þegar
farið er í heimsóknir, afmæli,
frí eða þess háttar.”
Metáhorf á þættina á mbl.is
Matreiðsluþættir Ebbu á Mbl
sjónvarpi undanfarna mánuði
hafa slegið í gegn. „Ég hef svo
gaman að þessu. Mig langar að
sýna fólki að allir geta eldað
hollan og góðan mat. Ég er
sjálf alls enginn „fancy” kokk-
ur, heldur bara að reyna að
gera mitt besta. Allt sem ég
geri er yfirleitt mjög fljótlegt og
einfalt þó það sé hollt. Svo mis-
tekst stundum eitthvað og þá
er best bara að hugsa; skiptir
ekki máli, gengur betur næst.“
Vanlíðan upphafið að
hollustuáhuga
„Mér leið eins og ég ætti að
vera öðruvísi en ég var,“ segir
Ebba um upphafið að matar-
óreglu sem hún þjáðist af á
yngri árum. „Ég man ennþá
þegar ég horfði í spegil þegar
ég var níu ára og fannst ég
ekki fín og bara ómöguleg.“
Ebba var í fimleikum, ballett og
dansi og segir ákveðna full-
komnunaráráttu hafa leikið
sig grátt á yngri árum. Hún
fór að fara í megrun og reyna
að ná stjórn á matarskömmt-
um og því sem hún borðaði
og forðaðist fitu. „Þetta var
dæmt til að mistakast og náði
hámarki í Verslunarskólanum.
Þá fór allt í vitleysu. Mér leið
illa og mig langaði oft ekki
skólann. Þetta var ömurlegur
vítahringur.“
Námskeið hjá Sollu breytti öllu
Ebba lýsir því að um tvítugt
hafi hún ekki verið nógu
heilsuhraust. „Þá pantaði
mamma námskeið hjá Sollu og
þar breyttist eitthvað hjá mér.“
Ebba segist þá hafa breytt
meira yfir í lífrænt og farið að
borða meira grænmeti. „Líðan
mín gjörbreyttist þegar ég fór
svo að taka inn lífsnauðsyn-
lega fitu eins hampolíu, búa til
drykki úr möndlum, fræjum og
hnetum, jógúrt úr avókadó og
svo framvegis. Ég breytti
mataræðinu smátt og smátt”.
Hún segist sjá það núna hvað
manni líður betur þegar maður
borðar heilan, góðan mat.
„Þegar ég var lítil var
ekkert í boði nema hveiti, ger
og sykur, sem fer sérlega illa
í mig. Kannski er það partur
af því að ef manni líður ekki
vel í skrokknum þá fer maður
að upplifa sig eitthvað ómögu-
legan. En að því sögðu vil ég
taka fram að mamma og pabbi
elduðu alltaf allan mat frá
grunni, ég var heppin þar.
Ég held að mér hafi verið
ætlað þetta allt saman. Þó að
þetta hafi tekið alltof mikinn
tíma frá mér og oft valdið mér
leiðindum og miklu hugarangri
þá er ég þakklát því þetta
leiddi mig að þeim stað sem
ég er á í dag og gerði mig að
þeirri ágætu Ebbu sem ég er,”
segir Ebba og hlær.
Eins og gott púsluspil
Ekki var aftur snúið hjá Ebbu
hvað hollustuáhugann varðaði
en hún fór svo á flug þegar
hún eignaðist Hönnu dóttur
sína fyrir 10 árum. „Ég fór
offorsi þá, varð svolítið ýkt
í fyrstu.” Ebba segist hafa
farið að búa allan mat til fyrir
Hönnu sjálf og lesið erlendar
bækur um hollt mataræði
barna. „Það er mömmu að
þakka að ég skrifaði allt hjá
mér þegar ég rakst á eitt-
hvað sniðugt eða útbjó, að mér
fannst, gott barnamauk. Hún
hvatti mig til þess.” Þremur
árum síðar eignaðist hún
Hafliða. „Hann er fatlaður og
þegar hann fæddist ákvað ég
að fara ekkert aftur að vinna,
enda beið okkar stórt verkefni
út af fyrir sig.” Þess í stað
ákvað Ebba að vinna úr því
efni sem hún hafði viðað að
sér og gaf svo út sína fyrstu
bók árið 2007.
„Mér finnst vinnan mín
ótrúlega skemmtileg, að hjálpa
fólki og börnum, skrifa bækur
og halda námskeið. Þegar ég
lít tilbaka er ég þakklát, mér
finnst þetta allt einhvernveginn
hafa komið til mín og raðast
svo fallega eins og skemmtilegt
púsluspil.”
Mamma kenndi mér að líta
aldrei í hina áttina
Viðhorf Ebbu til lífsins og þessi
mikla jákvæðni sem geislar
af henni er aðdáunarverð.
„Það er þannig með svo margt
í lífinu, maður heldur að
hlutirnir séu svo hræðilegir
þegar maður heyrir þá fyrst,
af því maður skilur þá ekki,”
segir Ebba þegar talið berst að
Hafliða, 7 ára syni hennar sem
er fatlaður. „En ég myndi ekki
vilja að Hafliði væri neitt öðru-
vísi en hann er. Þetta er hans
verkefni í lífinu, hans leið.
Ég trúi því að það sé tilgang-
ur með þessu öllu. Og hann
er svo sannarlega ekki neitt
óhamingjusamari en næsti
maður þó hann sé fótalaus!
Ekki er allt sem sýnist.”
Hrædd í fyrstu
Ebbu leið eins og heimurinn
væri að hrynja þegar hún og
eiginmaður hennar, Hafþór,
komust að því í 20 vikna
sónar að sonur þeirra væri
ekki með neinar fætur. „Ég
fékk áfall og varð óendanlega
hrædd í fyrstu,” en svo sáu
þau mynd á netinu um ungan
íþróttamann, Oscar Pistorius
að nafni, sem hafði sömu
fötlun. Þá var Oscar að hlaupa
á Ólympíuleikum í Aþenu. „Það
bjargaði okkur. Að sjá þennan
myndarlega unga mann hlaupa
á þessum fjöðrum. Eina sem ég
hugsaði var, þetta verður allt í
lagi. Ég áttaði mig á því þarna
á þessu augnabliki.”
Ebba útskýrir að það sé í
mörg horn að líta við þessar
aðstæður en þau fái góðan
stuðning frá foreldrum sínum
sem létti undir og hafi stutt
þau í gegnum árin. „Ég er svo
heppin að ég á foreldra sem
líta aldrei í hina áttina,” segir
Ebba. „Oft langar mann að
segja, jú þetta er allt í lagi og
stinga höfðinu í sandinn, en
það kemur yfirleitt í bakið á
manni. Mamma fer hins vegar
alltaf ofan í saumana á öllu,
Bls. 10
gefst aldrei upp. Og á endanum
er það er alltaf betra. Ég á
henni mikið að þakka.”
Mikilvægt að búa til góðar
minningar fyrir börnin
Ebba talar mikið um mömmu
sína og er þakklát fyrir þann
grunn sem hún hefur úr æsku.
„Ég hef alltaf vitað að ég væri
mjög heppin að hafa átt svona
góða, áhyggjulausa æsku.
Mamma vann hálfan daginn og
við bróðir minn vorum alltaf
númer eitt hjá mömmu og
pabba,” segir Ebba sem er fædd
í Stykkishólmi en ólst upp í
Breiðholtinu.
Ebba segist á sama hátt vera
mjög þakklát fyrir að geta haft
tækifæri til að vinna sveigjan-
legan vinnutíma og verja tíma
með börnunum sínum. „Mig
langar að búa til góðar
minningar fyrir börnin mín
sem fylgja þeim, hlýja þeim
og eru þeim eins og staðgott
veganesti.” Hún telur góða
næringu einfaldlega hluta af
því að hugsa vel um börnin þó
auðvitað vegi alltaf þyngst að
börn séu elskuð, þeim sinnt,
á þau sé hlustað og þau finni
að einhver sé tilbúinn að vaða
fyrir þau eld og brennistein.
„En það sem margir kannski
átta sig ekki á er að börn sem
eru vel nærð eru oft miklu
þægilegri í samskiptum,
hressari, glaðari, úthaldsmeiri
og eiga auðveldar með að ein-
beita sér.”
Ætlaði að verða leikkona
Hvað framtíðaráform varðar
segist Ebba vilja halda áfram á
sömu braut og gefa bókina sína
út á Norðurlöndunum, Bret-
landi og Suður-Afríku en hún
kom nýverið út í Þýskalandi.
Þá ætlar hún að halda áfram
að gera þætti fyrir ensku
vefsíðuna sína, www.purebba.
com, þar sem hún fær útrás
fyrir leyndan draum sinn. „Ég
ætlaði nefnilega alltaf að verða
leikkona, og langar það eigin-
1. Elda mátulega skammta fyrir fjölskylduna.
2. Bera virðingu fyrir matnum, nýta afganga
og ekki henda.
3. Þegar maður sleppir aukefnum, sykri, slæmri
fitu og unnum vörum þá er svo margt sem
dettur út sem er rándýrt.
4. Að kaupa hrein og holl matvæli einfaldar kaupin,
viss sparnaður í því.
5. Þarft minna af gæðavöru – líkaminn verður fyrr
saddur af góðri og hollri næringu.
6. Maður verður síður lasinn ef maður borðar
næringarríkan mat – það er dýrt að missa heilsuna.
7. Við erum að hlúa að jörðinni okkar og framtíð
barna okkar þegar við kaupum lífræn matvæli.
Sparnaðarráð
Ebbu