Fréttatíminn - 30.03.2012, Blaðsíða 51
Þegar Sonett hóf framleiðslu á
umhverfisvænum hreinlætis-
vörum var ekki eins mikil um-
ræða um umhverfisvernd eins og
er í dag. Enn þann dag í dag má
segja að engin önnur hreinlætis-
lína sé eins umhverfisvæn og
Sonett enda brotnar hún 100%
niður í náttúrunni á skömmum
tíma og hefur lífgefandi áhrif á
vatnið. Allar Sonett vörurnar eru
úr samþjöppuðum efnum og því
afar drjúgar í notkun og virka
mjög vel og því er ekki verið að
fórna virkni þegar skipt er yfir í
Sonett. Umbúðirnar brotna líka
niður í náttúrunni.
Sonett hlífir náttúrunni
Maðurinn hluti af náttúrunni
Það er ákveðin hugmyndafræði
sem býr að baki framleiðslunni
og í henni felst að maðurinn
sé hluti af náttúrunni og því
eigi hann að vilja virða hana
og vernda því það er hún sem
gefur honum lífsviðurværi sitt.
Vatnið undirstaða lífsins
Hjá Sonett er mikil áhersla
lögð á vatnið og þar er talað
um vatnið sem undirstöðu
lífsins. Við erum öll sammála
um hversu mikilvægt vatnið
er og að við getum ekki lifað
án hreins vatns. Þess vegna
er lögð áhersla á það að allar
afurðirnar frá Sonett brotni
fullkomlega niður í náttúrunni
á stuttum tíma. En þeim hjá
Sonett finnst það ekki nóg,
þau vilja gera enn betur. Þess
vegna er sett örlítið af svoköll-
uðu balsamefni í allar fljótandi
vörurnar, sem er náttúrulegt
efni sem verkar eins og líf-
gefandi hvati á vatnið.
Allt vatn sem er notað í
fljótandi hreingerningarefnin
er líka unnið á sérstakan hátt.
Hjá Sonett er tekið mið af því
hvernig vatnið hegðar sér í
náttúrunni til að hreinsa sig
og endurnýjast og allt vatn
sem notað er fer í gegnum ferli
sem myndar hvirfilhreyfingar í
vatninu eins og gerist í nátt-
úrunni. Það kalla þau hvirflað
vatn.
Fara vel með húðina og
öndunarfærin
Sonett vörurnar eru allar
framleiddar úr náttúrlegum
efnum sem menga ekki nátt-
úruna, fara vel með húðina
og eru ekki skaðlegar við inn-
öndun. Allar ilmolíur eru úr
náttúrulegum jurtum, lífrænt
ræktuðum og demeter rækt-
uðum. Engin kemísk ilmefni
eru notuð.
Engin ensím
Sonett inniheldur engin
ensím. Ensím eru mikið notuð
í þvottaefni – líka þau sem
merkt eru umhverfisvæn – því
hlutverk þeirra er jú að brjóta
niður og losa þannig óhrein-
indi. Flest ensím sem notuð
eru í þvottaefni eru úr erfða-
breyttum efnum og geta, við
vissar aðstæður eins og hita og
raka, haft slæm áhrif á húðina
ef þau verða eftir í þvottinum.
Engin ensím eða erfðabreytt
efni eru notuð í Sonett
vörurnar.
Bls. 11
Engin sterk bleikiefni
Sonett inniheldur engin sterk
bleikiefni eins og klór eða
ljósvirk bleikiefni. Bleikiefnið
sem er notað er náttúrulegt
súrefnisbleikiefni og má nota
það á litekta litaðan þvott auk
þess að nota það til að hvítta
hvítan þvott sem hefur gulnað.
Það verkar líka vel á ýmsa
erfiða bletti.
Allt til hreingerninga
Sonett býður upp á allt sem
þarf til hreingerninga á heim-
ilinu og einnig mildar ilmandi
fljótandi sápur fyrir hendur
og líkama. Í vörulínu þeirra
má finna efni í þvottavélina, í
uppþvottavélina, í uppvaskið,
á gólfið, efni á baðið, efni á
spegla o.fl. Einnig bjóða þau
upp á sérstaka ilmefnalausa
línu fyrir þá sem þola engin
ilmefni.
Hægt er að lesa um allar fram-
leiðsluvörur Sonett í bæklingi
sem hægt er að nálgast í
verslunum LIFANDI markaðar.
Hildur Guðmundsdóttir
Sonett vörurnar hafa verið framleiddar í meira en 30 ár og frá upphafi
með það í huga að hlífa náttúrunni og vatninu, sem er svo dýrmætt og
okkur ber að vernda en ekki menga.
Rapunzel er 35 ára gamalt fyrirtæki sem sérhæfir sig í ræktun og
framleiðslu á fyrsta flokks lífrænt vottuðum afurðum. Rapunzel gerir
miklar kröfur til hráefnavals bæði hvað varðar almenn gæði og gæði
lífrænnar ræktunar. Rapunzel leggur mikla áherslu á sanngjarna
viðskiptahætti með Hand in Hand verkefni sínu. Rapunzel sameinar
hugmyndina um vottaða lífræna ræktun og heiðarleg viðskipti.
Þegar þú vilt sameina gæði og gott bragð, veldu þá Rapunzel.