Fréttatíminn - 30.03.2012, Side 53
Bls. 13
Hvað er það sem skiptir
mestu máli þegar kemur að
því að velja hollan og góðan
mat fyrir barnið sitt? Það
er að maturinn innihaldi öll
þau mikilvægu næringarefni
sem barnið þarf til að vaxa og
þroskast. Maturinn þarf líka
að vera hreinn og ómengaður.
Besta næringin fyrir lítið
barn eftir fæðinguna er
móðurmjólkin og ekkert er
betra en hún, en í sumum
tilfellum er hún ekki fyrir
hendi og þá skiptir máli að
hafa góðan valkost.
Þurrmjólk úr frjálsum kúm
Holle býður upp á þurr-
mjólkurduft sem er unnið
úr lífrænni demeter mjólk
sem kemur frá kúm sem
nærast eingöngu á lífrænt
ræktuðu grasi og jurtum og
ganga lausar allt árið. Holle
býður einnig þurrmjólk úr
geita-mjólk, en sum börn þola
hana þó þau þoli ekki kúa-
mjólk.
Þegar barnið þarf að fá meiri
næringu en mjólk, en það er
frá 4-6 mánaða aldri, þá er
gott að byrja á mjúkri fæðu
eins og þunnum grautum
og maukuðu grænmeti og
ávöxum.
Ávaxta- og grænmetismauk
Holle býður þá upp á úrval
af grænmetis- og ávaxta-
mauki sem er unnið úr
fyrsta flokks lífrænt rækt-
uðum demeter afurðum. Það
sem er mikilvægt í upphafi
er að gefa barninu aðeins
smávegis að smakka og jafn-
vel blanda aðeins með vatni.
Það er líka mjög gott að byrja
á ávaxtasöfum og blanda
þá a.m.k. til helminga með
vatni. Það verður að athuga
að bragðlaukar barnsins eru
miklu næmari en hjá full-
orðnum. Það sem er líka
gott er að venja barnið á að
drekka mild jurtate og eru
þá kamilla og fennel góður
kostur til að byrja með. Af
ávöxtum er best að byrja á
eplamauki og af grænmeti er
best að byrja á gulrótamauki,
aðeins smá smakk fyrstu
dagana. Gulræturnar eru
sérlega mikilvæg næring
fyrir barnið og mikilvægt að
venja barnið á að borða þær.
Epli eru líka mjög mikilvæg í
barnamatnum.
Holle barnamatur
Mikilvæg regla í barnamat
er að gefa aðeins eina nýja
tegund í einu í nokkra daga.
Það er bæði til að venja
barnið á bragðið og til að
sjá hvort barnið þolir vel þá
afurð. Eftir það má auka
fjölbreytn-ina og Holle býður
upp á margar tegundir.
Holle býður upp á nokkrar
tegundir af korngrautum.
Best er að byrja að venja
barnið á korngrauta eftir
sex mánaða aldur, en þó má
byrja fyrr ef barnið er ekki
á brjósti eða ef það kallar á
meiri næringu. Best er að
byrja á glútenlausum graut-
um, t.d rísgraut. En ef hann
er of stemmandi fyrir barnið
er maísgrautur eða hirsi
grautur líka góður. Maís og
hirsi inniheldur ekki glúten.
Síðan er hægt að bæta við
fleiri tegundum eins og t.d.
hafragraut, en hann er
losandi.
Holle barnagrautarnir eru
unnir úr heilu lífrænt rækt-
uðu demeter korni sem er
malað í steinkvörn á sér-
stakan mildan hátt til að
varðveita öll mikilvægu
næringarefni kornsins. Það
er mjög mikilvægt að börn
fái grauta úr heilu korni
því öll helstu steinefnin og
snefilefnin eru í ysta hýðinu.
Korntegundirnar innihalda
líka allar lífsnauðsynlegu
amínósýrurnar og eru því
góður próteingjafi. En til
þess að ná þessum efnum úr
hýðinu og öll næringarefni
kornsins nýtist barninu og
líkaminn geti tekið þau til sín
þá er vinnsluferlið mikilvægt
og leggur Holle því sérstaka
áherslu á það. Það þarf að
virkja ákveðið ensím sem er
í korninu til þess að brjóta
niður fitusýruna sem bindur
stein- og snefilefnin. Þegar
það er gert á réttan hátt þá
getur líkami barnins unnið
öll mikilvægu næringarefnin
úr korninu.
Hildur Guðmundsdóttir
góð næring fyrir barnið þitt – úr fyrsta flokks
lífrænt ræktuðum demeter afurðum
Lepicol inniheldur Psyllium husk trefjar með mjólkur
sýrugerlum sem stuðla að heilbrigðri meltingu og
fyrirbyggir hægðavandamál.
Lepicol er án gluten og hveiti, phytate, rotvarnarefna, litar- eða
bragðefna. Fólk með mjólkuróþol getur notað Lepicol.
Komdu lagi á meltinguna
á náttúrulegan hátt
Fæst í apótekum, Hagkaup Fjarðarkaup, Heilsuhúsinu,
Lifandi Markaði og femin.is • www.lepicol.com
FR
U
M
www.lifandimarkadur.is
Borgartúni 24 | Reykjavík
Hæðasmára 6 | Kópavogi
Sími: 585 8700
Mögnuð
safapressa
Hurom Slog Juiceer
• Næsta kynslóð af safapressu
• Meiri nýting - allt að 70%
• Vinnur á hægari snúning
Steinaldarfæði
(Paleo) fyrir
karlmenn
Þorbjörg Hafsteinsdóttir vill hjálpa karlmönnun að taka
upp steinaldarfæði eða Paleo en þar er leitast við því að
setja saman fæðu sem talin er vera manninum eðlislæg og
geri líkamanum gott.
Dagsetning: 3.apríl og 10. apríl
Tími: kl. 20:00 til 22:00
Verð: 14.500 kr.
Staður: Borgartún 24
Skráning: thorbjorg@thorbjorg.dk
www.lifandimarkadur.is
Borgartúni 24 | Reykjavík
Hæðasmára 6 | Kópavogi
Sími: 585 8700
Námskeið
fyrir karlmenn
Þorbjörg Hafsteinsdóttir
Hvaða Spirulina ert þú að taka?
Árangur fer eftir gæðum
Blágrænir þörungar frábærir fyrir
íþróttir, vinnunna og skólann
Spirulina inniheldur mikið af blaðgrænu
og glyccogen, því meira glycogen sem er til
staðar í líkamanum við æfingar því betri árangur.
Blaðgræna eykur súrefnisflutning í blóðinu.
Ef Spirulina er tekið inn 1/2 tíma fyrir æfingar
eða annað álag gefur það aukið þrek, úthald
og einbeitingu. Dregur úr pirringi, sleni
og sætindaþörf, truflar ekki svefn.
Gæðastaðall ISO9001, ISO1401.
13 vítamín og 16 steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega
GLA fitusýrur · SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans
Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum.
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni,
Fríhöfninni og Hagkaup
Aukið úthald,
þrek og betri líðan
Árangur strax!
V
o
ttað 100 % lífræ
nt
www.celsus.is