Fréttatíminn - 30.03.2012, Síða 57
Jibbí! Ég slepp!
„Þetta kemur mér veru-
lega á óvart. Ekki síst
eftir að ég hef séð gögn
málsins.“
Ólafur Ólafsson lék
á als oddi við þinghald í Al-Thani-
málinu í gær. Hann taldi greinilega að
sönnunargögnin í málinu væru ekki eins
sterk og hann óttaðist.
Sitt sýnist hverjum
Ég er búin að vera meira en 20 ár
í fjölskyldunni og ég á bara góðar
minningar um tengdaföður minn.
Í viðtali við Nýtt líf leggur Sigríður
Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á
Suðurnesjum og mágkona Guðrúnar
Ebbu Ólafsdóttur, ekki trúnað á þær ljótu
sögur sem Guðrún Ebba hefur af föður
sínum, Ólafi Skúlasyni biskup, að segja.
Ögmundur settur í málið
Ég hef
áhyggjur
af því að
hún skuli í
þessu viðtali
tjá sig um
þetta. Hún
er yfirmaður hjá lögreglunni sem
á að vernda börnin okkar gegn
kynferðisofbeldi. Hún kemur fram í
fullum skrúða og er ekki að fela stöðu
sína. Þetta þykir mér ekki í lagi og ég
hef vakið athygli innanríkisráðherra á
þessum ummælum lögreglustjórans.
Elín Hirst, sem skrifaði átakanlega sögu
Guðrúnar Ebbu, undrast ofangreind
ummæli lögreglustjórans og hefur komið
áhyggjum sínum á framfæri við æðsta
yfirmann lögreglumála.
Er ekki betra að hafa það
mannlaust?
Það vantar mannskap í hús
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
forseti Alþingis, þegar ljóst var að
svefnþörf stjórnarandstöðuþingmanna
kom í veg fyrir atkvæðagreiðslu um
stjórnarskrármálið upp úr miðnætti.
En við kjósendur?
Það er að mínu mati
mikill dónaskapur
við samþingmenn
sína, þessi framkoma
þingflokksformanns
Sjálfstæðisflokksins.
Framsóknarþingkonan Eygló
Harðardóttir var mjög óhress
með næturskróp þingmanna
Sjálfstæðisflokksins og lét
þingflokksformanninn Ragnheiði
Elínu Árnadóttur hafa það óþvegið úr
ræðustóli daginn eftir.
Endurskilgreining á öruggu
kynlífi
Verði þetta frumvarp að lögum er kynlíf
þar með orðið ólöglegt nema hægt sé
að færa óyggjandi sönnur á að upplýst
samþykki hafi
legið fyrir allan
tímann á meðan
á leiknum stóð
og að upplifun
konunnar hafi
verið jákvæð.
Eva Hauksdóttir
er í vígaham á
bloggsíðu sinni, eins og oftast nær, og sér
stóran galla á frumvarpi um breytingu
á almennum hegningarlögum um
kynferðisbrot.
Helgin 30. mars-1. apríl 2012 viðhorf 41
KJÖTbúðin
Grensásveg
Helgartilboð
200 gr ungnautahamborgari
bbQ kryddaður með brauði
350 kr/stk
opið: mán-fös 10-18:30, lau 11-16, sun lokað
1. flokks
ungnauta ribeye
3.895 kr/kg
marineraðar
kjúklingabringur
2.595 kr/kg
Vikan sem Var
15% AFSLÁTTUR AF
BODYWRAP-VÖRUM!
PÁSKATILBOD
Þú minnkar um
eitt númer
Laugavegi 82, (á horni Barónsstígs)
Sími: 551-4473-www.lifstykkjabudin.is
-
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011