Fréttatíminn - 30.03.2012, Síða 61
Nýr Landspítali
Er staðsetning nýs sjúkrahúss rétt eða röng?
Fært til bókar
Hás í Kanada
Athygli vakti hve Steingrímur J. Sigfússon,
sjávarútvegsráðherra með meiru, var hás
þegar hann kynnti nýja kvótafrumvarpið.
Rödd hans var nánast óþekkjanleg. Hann
tók sér að vonum veikindafrí daginn
eftir, enda raddlaus orðinn. Á ýmsu hefur
gengið í aðdraganda frumvarpsins, hvort
heldur er í tíð Steingríms eða forvera
hans í embætti, Jóns Bjarnasonar. Það
er því að vonum að eitthvað verði undan
að láta. Steingrímur kenndi sjö kílómetra
skokki í marshraglanda helst um radd-
leysið. Vonandi hefur ráðherrann náð sér
fljótt því ekki fékk hann langan tíma til að
jafna sig. Steingríms beið Kanadaferð þar
sem hann ætlaði meðal annars að fræða
innfædda um stöðu ríkissjóða. Hann
hefur að minnsta kosti reynslu af einum
bágstöddum.
Lunkinn markaðsmaður
Jón Ólafsson hefur marga fjöruna sopið
í íslensku viðskiptalífi og ýmislegt reynt.
Hann er umdeildur maður en það verður
ekki af honum tekið að hann hefur náð
lengst þeirra sem reynt hafa að selja ís-
lenskt vatn. Margir hafa reynt að koma
blávatninu íslenska á erlendan markað
en ekki haft erindi sem erfiði – fyrr en
Jón hóf sinn útflutning á vöru sinni,
Icelandic Glacial, vatni sem tappað er
á flöskur í Þorlákshöfn. Jón er lunkinn
markaðsmaður og kann að nýta sér
fjölmiðla; nú þá nýjustu, ef marka má
viðtal Viðskiptablaðsins við hann, en þar
segir: „Þetta sýnir hvað samfélagsmiðlar
eru ofboðslega öflug tæki,“ segir Jón
Ólafsson, löngum kenndur við Skífuna
en vatnsútflutning síðustu misserin.
Bandaríska tímaritið INC sem fjallar
aðallega um frumkvöðla birti við hann
viðtal á dögunum. Þar var fjallað um feril
Jóns, ástæðuna fyrir því að hann fór út í
vatnsútflutning og honum líkt við breska
frumkvöðulinn og ofurhugann sir Richard
Branson. Umfjöllunin vakti mikla athygli
á Netinu og birtu fjölmargir hana, svo
sem Business Insider, á meðan aðrir vís-
uðu í hana. Því til viðbótar benda nýjustu
netmælingar til þess að hún hafi náð til
rúmlega 307 milljón Twitter-notenda (e.
Twitter reach). Jón segir það hafa komið
sér á óvart hversu hratt og víða greinin
fór um Netið. Hann segist í samtali við
Viðskiptablaðið ekki hafa séð annað eins
og hafi hann fengið heilmikil viðbrögð við
umfjölluninni, bæði persónulega og feng-
ið fyrirspurnir um vatnið sem tappað er á
flöskur í landi Hlíðarenda við Þorlákshöfn
í nafni Icelandic Glacial. Hann bendir á að
menn geti lært mikið af þessu um þær
breytingar sem orðið hafi á fjölmiðlun og
áhrifum samfélagsmiðla. „Menn þurfa
að fylgjast vel með því hvernig fjölmiðlar
eru að þróast og hvernig best er að nýta
þá til árangurs,“ segir hann.“
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ði
r á
sk
ilj
a
sé
r r
ét
t t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t á
n
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
51
59
0
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
BORGARFERÐIR
Budapest Prag
SevillaBarcelona
Frá aðeins
78.400 kr.
Netverð á mann, m.v.
gistingu í - tvíbýli með
morgunverði í 4 nætur
Star Inn, 27. apríl.
Frá aðeins
89.900 kr.
Netverð á mann, m.v.
gistingu í tvíbýli með
morgunverði í 4 nætur á
Hotel Catalonia Atenas,
27. apríl.
Frá aðeins
89.900 kr.
Netverð á mann, m.v.
gistingu í tvíbýli með
morgunverði í 4 nætur á
Hotel Ibis Mala Strana,
27. apríl.
Frá aðeins
99.900 kr.
Netverð á mann, m.v.
gistingu í tvíbýli með
morgunverði í 3 nætur á
Hotel Catalonia Giralda,
19. apríl.
Frá 69.900 kr.
Flugsæti á mann
27. apríl í 4 nætur – laus sæti 19. apríl í 3 nætur – örfá sæti laus
19. apríl í 4 nætur – örfá sæti laus
27. apríl í 4 nætur – laus sæti
19. apríl í 3 nætur – uppseld
27. apríl í 4 nætur – laus sæti
Frá 69.900 kr.
Flugsæti á mann
Frá 69.900 kr.
Flugsæti á mann
– síðustu sætin í vor
Frá 74.900 kr.
Flugsæti á mann