Fréttatíminn - 30.03.2012, Page 74
58 framkvæmdir Helgin 30. mars-1. apríl 2012
Mannvirkjasvið NýsköpuNarmiðstöðvar
HúsHorNið snýr aftur í næsta blaði. Lesendur Fréttatímans geta sent
fyrirspurnir er varða framkvæmdir og viðhald húsa á netfangið hushorn@huso.is
m annvirkjasvið Nýsköpunarmiðstöðvar Ís-lands, áður Rannsóknastofnun byggingar-iðnaðarins, hefur komið að viðhaldi bygg-
inga með ýmsum hætti í gegnum tíðina. Um fjörutíu
ára skeið hafa verið gefin út tækniblöð, svokölluð RB-
blöð, sem fjalla um afmörkuð tæknileg vandamál og
hvernig skuli framkvæma verkþætti sem byggjast á
niðurstöðum rannsókna og reynslu. Sem dæmi um
þessi blöð, sem nú fylla sex möppur, má nefna:
Sprungur í útveggjum steinhúsa – þétting með
vatnsfælu – Fylling með innþrýstitækni.
Tæring frá festingum
Loftræstar útveggjaklæðningar úr áli – Dæmi um
deili
Ísetning einangrunarglers í tréglugga með glerfals-
listum úti
Nákvæmniskröfur í byggingariðnaði
Tæring í neysluvatnslögnum
Tæring málma í byggingum
Skipulag baðherbergja
Yfirborðsefni fyrir viðarfleti utanhúss
o.s.frv.
Einnig hefur Nýsköpunarmiðstöð Íslands gert rann-
sóknir á ýmsum þáttum viðhalds og gefið út í svoköll-
uðum sérritum sem innihalda niðurstöður veigamikilla
verkefna. Nefna má nokkur dæmi um þessa útgáfu:
Steypuskemmdir – ástandskönnun
Viðgerðir á alkalískemmdum í steinsteypu
Áhrif klæðningar á kolsýringu steinsteypu
Ending einangrunarglers
Viðhaldsþörf húsa á Íslandi
Lagnaþekking
Frágangur rakavarnarlaga
Gólfhitakerfi með plastlögnum
Orkunotkun húsa
o.s.frv.
Hvernig kemur Mannvirkja-
svið Nýsköpunarmiðstöðvar
Íslands að viðhaldi húsa?
Af þessu sést að Nýsköpunarmiðstöð Íslands hef-
ur verið virkur þátttakandi varðandi rannsóknir
á viðhaldsþörf húsa og leiðbeinandi um aðferðir.
Á árunum 2010 og 2011 hafði Nýsköpunarmið-
stöð Íslands frumkvæði að verkefninu Viðhald
og verðmæti sem haldið var undir merkjum átaks
stjórnvalda, Allir vinna.
Umrætt verkefni var unnið ásamt fjölda aðila
(Efla Verkfræðistofa, Hús og heilsa ehf., Rafiðn-
aðarskólinn, Orkusetur á Akureyri, Iðunn og
Félagsbústaðir ásamt fleiri aðilum). Verkefnið
fólst í ráðstefnuhaldi (námskeiðum) sem var um
leið hvatning til að fara í viðhaldsverkefni og leið-
beiningar þar um. Auk þess kynntu bæði verktak-
ar og söluaðilar byggingarvara framleiðslu sína á
Tengslatorgi. Þessum námskeiðum var vel tekið
og fjölmennt var á öllum fundum/námskeiðum.
Námskeiðin voru haldin á
Akureyri
Ísafirði
Egilsstöðum
Reykjavík
Reykjanesbæ
Á meðal efnis á námskeiðunum var steinsteypa,
gluggar, vegg- og þakklæðningar, aðgengi fyrir
alla, mygla og sveppir í húsum, rafkerfi, skipulag
viðhaldsvinnu og orkunotkun og orkusparnaður
í byggingum.
Heildarfjöldi þátttakenda var yfir 600 manns.
Auk þess sem hér hefur verið nefnt sinna sér-
fræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands dag-
lega fyrirspurnum um viðhaldsmál, viðhaldsað-
ferðir og fara í vettvangskannanir vegna gallaðra
bygginga eða byggingarskemmda.
jón sigurjónsson
yfirverkfræðingur hjá Nýsköpunarmiðstöðinni
Helstu útsölustaðir:
Bensínstöðvar Skeljungs – ELKO – Fjarðarkaup
Hagkaup – Krónan – Melabúðin – Penninn – Skífan
Landsbankinn: Bakhjarl og árgæsla
Heildarútgáfa 1985–2011
Eintak inn á hvert heimili!
Í VON UM ÞINN STUÐNING!
Ve
rð
2
.4
90
k
r.
A
llu
r
ág
óð
i r
en
n
u
r
ti
l
H
já
lp
ar
st
ar
fs
k
ir
kj
u
n
n
ar
í
A
fr
ík
u
Voltaren Dolo
15%
afsláttur
Lyfjaval.is • sími 577 1160
Bílaapótek Hæðasmára
Mjódd Álftamýri
Voltaren Gel
Aumir og
sárir vöðvar?
15%
afsláttur
Fékkstu ekki
Fréttatímann
heim?
Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu.
Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu okkur þá vita með
tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is
Sjáðu blaðið líka á frettatiminn.is
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011