Fréttatíminn - 30.03.2012, Blaðsíða 92
Nasa spaðar og VarsjárbaNdalagið á balli
Nýlegar mjaðma
kúlur örugglega
teknar til kostanna
Spaðar upplifa það að vera stjörnur eitt kvöld þótt vera kunni
að æskudraumar um poppfrægð hafi ekki ræst. Lengra er orðið
en áður á milli tilrauna til að slá í gegn en það verður þó gert í
kvöld – á sameiginlegu tónleikaballi með Varsjárbandalaginu.
s jálfsagt er þetta sprottið af því að við náðum ekki að svala þeim bernskudraumi
okkar að verða stjörnur, en auð-
vitað er það ósk hvers manns að
verða hljómsveitartöffari,“ segir
Sigurður G. Valgeirsson, leik-
listargagnrýnandi með meiru
og einn meðlima hinnar ástsælu
hljómsveitar Spaða. Þar er meðal-
aldur aðeins yfir því sem almennt
þekkist í tónlistarbransanum
en Sigurður segir tvo fertuga
unglinga sveitarinnar þó lækka
meðalaldurinn talsvert, jafnvel
halda honum innan við fimmtugt.
Hljómsveitarmeðlimirnir standa
undir nafni sem spaðar og efna til
sameiginlegs tónleikaballs með
Varsjárbandalaginu á Nasa í kvöld,
föstudagskvöld.
„Ætli afrek okkar felist ekki
helst í því að hafa verið þetta lengi
að án þess að slá í gegn! Það er
sérstakt – en við reynum þótt nú
sé orðið lengra á milli tilrauna,“
segir Sigurður og nefnir að fleiri
miðaldra karlar eigi sér slíka
drauma. Þannig hafi þeir Guð-
mundur Andri Thorsson, söngvari
og frontmaður hljómsveitarinnar,
heyrt jafnaldra syngja bítlalag af
mikilli innlifun í næsta æfinga-
plássi á Bíldshöfðanum. Forsöngv-
aranum og rithöfundinum þótt
greinilega nóg um því hann sagði
stundarhátt: „Ja, þessi karldýr.“
Þrátt fyrir þetta láta karldýrin í
Spöðum ekki deigan síga. „Hljóm-
sveitin hefur í gegnum tíðina
safnað áhangendum hér og þar og
við upplifum á Nasa að vera popp-
stjörnur eitt kvöld. Þannig fáum
við það besta út úr þessu,“ segir
Sigurður. Hann eyðir öllu tali um
kvenhylli og það hvort grúppíur
sæki að feðrum og jafnvel öfum í
hljómsveitinni en viðurkennir að
á gólfinu séu vissulega margar
fallegar konur. „Þegar einn félaga
minna og jafnaldri frétti af ballinu
sá hann fyrir sér stuðið og sagði:
„Þarna verða örugglega margar
nýlegar mjaðmakúlur teknar til
kostanna.“
Auk Sigurðar trommuleikara
og Guðmundar Andra, söngvara
og gítarleikara, eru í bandinu
Guðmundur Ingólfsson á bassa,
Magnús Haraldsson á gítar,
Aðalgeir Arason á mandólín, Guð-
mundur Pálsson fiðluleikari og
Þorkell Heiðarsson á harmóníku.
„Í staðinn fyrir að segja hverjir eru
bestir, getum við sagt – hverjir eru
flestir?“ segir Sigurður.
Nasa verður opnað klukkan 21
og Spaðar stíga á svið klukkan
22 og spila fram yfir miðnætti. Þá
tekur Varsjárbandalagið við og
leiðir dansleikinn til þeirra lykta
að ekki mun verða
þurr þráður á
nokkrum við-
stöddum.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
Spaðar. Draumurinn er að meika það en helsta afrek flokksins er að hafa verið þetta
lengi að án þess að slá í gegn! Hljómsveitardrengirnir eru þó kóngar eitt kvöld – á
Nasa.
the visionary’s watch
No other watch is engineered quite like a Rolex. The Milgauss, introduced in 1956,
was designed to meet the demands of the scientifi c community and is capable of
withstanding magnetic fi elds of up to 1,000 gauss. After rigorous testing by CERN
engineers, it earned a reputation as the perfect magnetic shield. Today’s Milgauss
features a Parachrom hairspring that provides additional protection from the effects
of magnetism. The Milgauss, exclusively available in 904L steel, is presented here
in its Anniversary Edition with a unique green sapphire crystal.
the milgauss
Michelsen_MBL-FRP_203x300_1210_b.indd 1 09.12.10 08:03
Smiðsbúð 6, 210 Garðabæ, Sími 564 5040
w w w . h i r z l a n . i s
Ti
lbo
ð
Ti
lbo
ð
Húsgögn fyrir hagsýna
Support
kr. 39.700,-
Tilboð 23.120,-
Fullt verð 28.900,-
Tilboð 15.500,-
Fullt verð 20.300,-
CD - og bókahillur
í úrvali
Hornskifborð
kr. 36.400,-
kr. 26.900,-
kr. 39.900,-
Stofnuð 1993 og hefur
aldrei farið á hausinn!
Lætur laga sig fyrir
margar milljónir
Transformers-leikkonan Megan Fox prýðir forsíðu
tímaritsins Jalouse í aprílmánuði og verður ítarlegt
viðtal við hana að finna í blaðinu. Þar tjáir hún sig um
það litla sjálfsálit sem hún hefur og segist eiga erfitt
með að horfa í spegla og sitja fyrir í myndatökum.
Lýtalæknirinn Robert Guida, sem er einn sá færasti
í sínu fagi í Hollywood, segir leikkonuna skorta
sjálfstraust og að hún hafi eytt tæpum átta millj-
ónum í breytingar á andliti sínu á síðustu tveimur
árum. Þá telur hann upp bótox, nefaðgerð, upp-
lyftingu á kinnbeinum og fyllingu í varir sem leik-
konan hefur látið laga. „Hún hefur elst um mörg
ár á skömmum tíma,“ sagði læknirinn um 25 ára
leikkonuna í viðtali við tímaritið InTouch. „Nú
lítur hún út eins og allt önnur manneskja.“
Helgin 30. mars-1. apríl 2012