Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.03.2012, Qupperneq 92

Fréttatíminn - 30.03.2012, Qupperneq 92
 Nasa spaðar og VarsjárbaNdalagið á balli Nýlegar mjaðma­ kúlur örugglega teknar til kostanna Spaðar upplifa það að vera stjörnur eitt kvöld þótt vera kunni að æskudraumar um poppfrægð hafi ekki ræst. Lengra er orðið en áður á milli tilrauna til að slá í gegn en það verður þó gert í kvöld – á sameiginlegu tónleikaballi með Varsjárbandalaginu. s jálfsagt er þetta sprottið af því að við náðum ekki að svala þeim bernskudraumi okkar að verða stjörnur, en auð- vitað er það ósk hvers manns að verða hljómsveitartöffari,“ segir Sigurður G. Valgeirsson, leik- listargagnrýnandi með meiru og einn meðlima hinnar ástsælu hljómsveitar Spaða. Þar er meðal- aldur aðeins yfir því sem almennt þekkist í tónlistarbransanum en Sigurður segir tvo fertuga unglinga sveitarinnar þó lækka meðalaldurinn talsvert, jafnvel halda honum innan við fimmtugt. Hljómsveitarmeðlimirnir standa undir nafni sem spaðar og efna til sameiginlegs tónleikaballs með Varsjárbandalaginu á Nasa í kvöld, föstudagskvöld. „Ætli afrek okkar felist ekki helst í því að hafa verið þetta lengi að án þess að slá í gegn! Það er sérstakt – en við reynum þótt nú sé orðið lengra á milli tilrauna,“ segir Sigurður og nefnir að fleiri miðaldra karlar eigi sér slíka drauma. Þannig hafi þeir Guð- mundur Andri Thorsson, söngvari og frontmaður hljómsveitarinnar, heyrt jafnaldra syngja bítlalag af mikilli innlifun í næsta æfinga- plássi á Bíldshöfðanum. Forsöngv- aranum og rithöfundinum þótt greinilega nóg um því hann sagði stundarhátt: „Ja, þessi karldýr.“ Þrátt fyrir þetta láta karldýrin í Spöðum ekki deigan síga. „Hljóm- sveitin hefur í gegnum tíðina safnað áhangendum hér og þar og við upplifum á Nasa að vera popp- stjörnur eitt kvöld. Þannig fáum við það besta út úr þessu,“ segir Sigurður. Hann eyðir öllu tali um kvenhylli og það hvort grúppíur sæki að feðrum og jafnvel öfum í hljómsveitinni en viðurkennir að á gólfinu séu vissulega margar fallegar konur. „Þegar einn félaga minna og jafnaldri frétti af ballinu sá hann fyrir sér stuðið og sagði: „Þarna verða örugglega margar nýlegar mjaðmakúlur teknar til kostanna.“ Auk Sigurðar trommuleikara og Guðmundar Andra, söngvara og gítarleikara, eru í bandinu Guðmundur Ingólfsson á bassa, Magnús Haraldsson á gítar, Aðalgeir Arason á mandólín, Guð- mundur Pálsson fiðluleikari og Þorkell Heiðarsson á harmóníku. „Í staðinn fyrir að segja hverjir eru bestir, getum við sagt – hverjir eru flestir?“ segir Sigurður. Nasa verður opnað klukkan 21 og Spaðar stíga á svið klukkan 22 og spila fram yfir miðnætti. Þá tekur Varsjárbandalagið við og leiðir dansleikinn til þeirra lykta að ekki mun verða þurr þráður á nokkrum við- stöddum. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is Spaðar. Draumurinn er að meika það en helsta afrek flokksins er að hafa verið þetta lengi að án þess að slá í gegn! Hljómsveitardrengirnir eru þó kóngar eitt kvöld – á Nasa. the visionary’s watch No other watch is engineered quite like a Rolex. The Milgauss, introduced in 1956, was designed to meet the demands of the scientifi c community and is capable of withstanding magnetic fi elds of up to 1,000 gauss. After rigorous testing by CERN engineers, it earned a reputation as the perfect magnetic shield. Today’s Milgauss features a Parachrom hairspring that provides additional protection from the effects of magnetism. The Milgauss, exclusively available in 904L steel, is presented here in its Anniversary Edition with a unique green sapphire crystal. the milgauss Michelsen_MBL-FRP_203x300_1210_b.indd 1 09.12.10 08:03 Smiðsbúð 6, 210 Garðabæ, Sími 564 5040 w w w . h i r z l a n . i s Ti lbo ð Ti lbo ð Húsgögn fyrir hagsýna Support kr. 39.700,- Tilboð 23.120,- Fullt verð 28.900,- Tilboð 15.500,- Fullt verð 20.300,- CD - og bókahillur í úrvali Hornskifborð kr. 36.400,- kr. 26.900,- kr. 39.900,- Stofnuð 1993 og hefur aldrei farið á hausinn! Lætur laga sig fyrir margar milljónir Transformers-leikkonan Megan Fox prýðir forsíðu tímaritsins Jalouse í aprílmánuði og verður ítarlegt viðtal við hana að finna í blaðinu. Þar tjáir hún sig um það litla sjálfsálit sem hún hefur og segist eiga erfitt með að horfa í spegla og sitja fyrir í myndatökum. Lýtalæknirinn Robert Guida, sem er einn sá færasti í sínu fagi í Hollywood, segir leikkonuna skorta sjálfstraust og að hún hafi eytt tæpum átta millj- ónum í breytingar á andliti sínu á síðustu tveimur árum. Þá telur hann upp bótox, nefaðgerð, upp- lyftingu á kinnbeinum og fyllingu í varir sem leik- konan hefur látið laga. „Hún hefur elst um mörg ár á skömmum tíma,“ sagði læknirinn um 25 ára leikkonuna í viðtali við tímaritið InTouch. „Nú lítur hún út eins og allt önnur manneskja.“ Helgin 30. mars-1. apríl 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.