Fréttatíminn - 30.03.2012, Síða 93
Plötudómar dr. gunna
næturgárun
Gillon
Eins og Bjartmar
og Rúnar Þór
Hér sprettur fram popparinn
Gillon (Gísli Þór Ólafsson)
með níu frumsamin lög,
en hann hefur áður gefið
út fimm ljóðabækur. Hann
semur alla textana nema tvo,
sem eru ljóð eftir Geirlaug
Magnússon og Jón Óskar.
Textarnir eru fínir og það
hefði verið gott að hafa þá
með í bæklingnum, en í
staðinn fylgja hugleiðingar
um lögin. Platan var tekin
upp á Sauðárkróki, þaðan
sem listamaðurinn gerir út.
Gillon hefur hráa söngrödd
sem hljómar á einkennilegan
hátt eins og sambland af
Bjartmari og Rúnari Þór. Ein-
hverjum gæti þótt söngurinn
fráhrindandi, en ekki mér.
Tónlistin er eiginlega líka
eins og mitt á milli Bjartmars
og Rúnar Þórs, melódísk og
ágætlega flutt – stælalaust
íslenskt dreifbýlispopp.
low roar
Low Roar
Síðskeggjað
Bandaríkjamaðurinn
Ryan Karazija er giftur
íslenskri konu. Hann samdi
þessa plötu að vetri til
á Íslandi og trúi maður
því að ytra umhverfi hafi
áhrif, má segja að íslenski
veturinn leiki um plötuna.
Tónlistin er fjallakofuð og
síðskeggjuð (þótt Ryan sé
skegglaus) og beintengd
því sem best gerist í þeirri
deild; við erum að tala um
Fleet Foxes og Bon Iver,
Sigur Rós og Radiohead.
Þetta er seiðandi og rólegt,
bæði lífrænt og tölvuknúið,
og greinilegt að Ryan er
mjög flinkur. Hann er góður
söngvari – jafnvel dálítið í
áttina að Rufus Wainwright
þegar hann sykrar sig upp
– og semur flott lög. Það
vantar kannski snarpari
hápunkta og einn tvo
megahittara, en engu að
síður: Mjög flott plata.
Pólýfónía remixes
Apparat Organ Quartet
Orgelblanda
Pólýfónía, önnur plata
Orgelkvartettsins, kom
út 2010, átta árum eftir
frumraunina. Nú er komin
níu laga endurblands-
plata, sem fæst eingöngu
rafrænt. Endurblöndun er
í höndum innlendra og er-
lendra aðila. Lagið Konami,
með sínum gullfallegu
englaröddum, er í fjórum
útgáfum, meðal annars
bæði með Bloodgroup og
FM Belfast. Mixin bera
stuðstíl þessara sveita
fjörugt vitni. Kraftwerk er
gríðarmikill áhrifavaldur
á Apparat og það heyrist
jafnvel betur í sumum
mixunum hér en á sjálfri
Pólýfóníu. Platan líður vel
áfram og blandarar beita
ýmsum brögðum. Í lokin
koma svo „gömlu brýnin“
í Reptilicus og verksmiðju-
væða Síríus Alfa. Töff endir
á fínni plötu.
Í Gaflaraleikhúsinu, hráu en heimilislegu leikhúsi í grennd við víkingahúsin í Hafnarfirði,
lifna nú við lygasögur Múnkhásens
baróns. Þýski lygabaróninn var
uppi á 18. öld en síðan hafa lyga-
og ýkjusögurnar undið upp á sig
í óteljandi útfærslum og útgáfum.
Því var af mörgu að taka þegar
hinn hæfileikaríki höfundur Sævar
Sigurgeirsson hnoðaði í fína leik-
sýningu. Hann bætir við ástarsögu,
sem ég man ekki eftir úr bókunum,
en sú saga bindur verkið snyrtilega
saman, enda sögurnar býsna sam-
hengislausar einar og sér.
Baróninn lendir í ýmsum furðum
sem hægt hefði verið að sýna með
ærnum tilkostnaði (sjá kvikmynd
Terrys Gilliam frá 1988). Í Hafnar-
firðinum er þessu þveröfugt farið
og einfaldleikinn látinn ráða. Þetta
kemst vel til skila – enda einfaldleik-
inn oftast áhrifameiri en íburðurinn
– og leikmynd Langa Sela er sérlega
flott. Hún og góð ljósahönnun vinna
saman og búa til áhrifamikið leik-
hús sem auðvelt er að lifa sig inn í.
Ég saknaði þess dálítið að barón-
inn skyldi ekki rekast á karlana í
tunglinu eða synda meðal furðulegu
djúpsjávarfiskanna, en hann fer nú
samt til tunglsins. Mér fannst það
hápunktur sýningarinnar þegar
hann datt niður af tunglinu.
Leikur er léttur og hress. Gunn-
ar Helgason (sem er svo vel farð-
aður að dóttir mín hélt að hann væri
brúða) og Magnús Guðmundsson
leika baróninn gamlan og ungan,
Ágústa Eva er kærastan í dular-
gervi, en Gunnar B. Guðmundsson
og fjórar aukaleikkonur og píanó-
leikari leika rest. Sýningin rann
vel og fjörlega, alltaf eitthvert fjör í
gangi nema þegar brast á með smá
söng.
Þetta er fín sýning fyrir barnafjöl-
skyldur. Mínum krökkum, fjögurra
og átta ára, fannst mjög skemmti-
legt en það er algjör óþarfi að reyna
að fara með óvita í leikhús, eins og
fólk ætti að geta sagt sér sjálft.
Á sunnudögum kviknar oft þessi
spurning hjá fjölskyldufólki: Hvern-
ig skal verja deginum? Ég mæli ein-
dregið með þessari sýningu og svo
rúnti um Hafnarfjörð, fallegasta bæ
höfuðborgarsvæðisins. Jafnvel einni
djúpsteiktri á Pylsubarnum ef mag-
inn segir til sín.
Dr. Gunni
Ævintýri múnkhásens
Eftir Sævar Sigurgeirsson
Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir
Sýnt í Gaflaraleikhúsinu
leikhús Ævintýri múnkhásens
Skemmtileg lygaþvæla
Gunnar, Magnús og Gunnar í hlutverkum sínum í Múnkhásen.
PÁSKATILBOÐ
FULLT VERÐ
139.900
109.900 17,6
kw/h
ÞETTA ER AÐEINS BROT
AF ÞEIM VÖRUM SEM
ERU Á PÁSKATILBOÐI
FULLT VERÐ
109.900
79.900
16,5
kw/h
FULLT VERÐ
59.900
42.900
Grill sem endast
www.grillbudin.is
FULLT VERÐ
54.000
44.900 16,5kw/h
Hlíðasmára 13, Kóp - S. 554 0400 Opið laugardaga til kl.16
FULLT VERÐ
95.000
64.900
dægurmál 77Helgin 30. mars-1. apríl 2012