Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.06.2012, Side 2

Fréttatíminn - 01.06.2012, Side 2
Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@ frettatiminn.is www.skyr.is Fleiri boost- uppskriftir á SVALANDI BERJAFREISTING Skógarberjaboost ½ lítið Bláberjaskyr.is ½ lítið Jarðarberjaskyr.is Jarðarber, bláber, brómber, vínber og hindber 6-8 ísmolar Sex þjóðir verða nú eldri en sú íslenska Íslendingar geta nú búist við að verða 8,6 árum eldri en þeir gátu gert fyrir árið 1960. Þeir verða að meðaltali 81 og hálfs árs gamlir og geta aðeins sex þjóðir gert sér vonir um að verða eldri. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu OECD um heilsu ársins 2011 en hún tekur til ársins 2009. Fimm þjóðir hafa tekið framúr Íslendingum frá því árið 2003 þegar lífslíkur við fæðingu voru 80,7 ár á Íslandi og aðeins Japanir urðu eldri eða 81,8 ára. Nú geta Japanir búist við því að verða 83 ára en Svisslendingar lifa næst lengst (82,3), þá Ítalir og Spánverjar (81,8) og loks eru Austur- ríkismenn og Ísraelar (81,6), eilítið eldri en við Íslendingar. - gag Guðlaugur Þór Þórðarson alþingis- maður segir Seðlabankann senda, í besta falli, misvísandi skilaboð til aðila sem stunda viðskipti með gjaldeyri. Í bréfi sem Fréttatímann hefur undir höndum kemur fram að starfsmaður á alþjóðasviði Seðla- bankans staðfestir að löglegt sé að innleysa vaxtahagnað, arð og annað af skuldabréfum í flokki HFF150914. Lokað var fyrir þetta með breyting- um á gjaldeyrislögum fyrir skömmu þar sem sagt var að um var að ræða glufur á gjaldeyrishöftum. „Þarna er fólk í góðri trú að leita ráðgjafar hjá gjaldeyriseftirlitinu. Yfir nótt er síðan það sem Seðlabankinn hefur ráðlagt gert ólöglegt með lagasetn- ingu. Og fólk, sem áður hafði leitað ráðgjafar í góðri trú, nánast stimplað sem glæpamenn,“ segir Guðlaugur Þór. Hann hefur farið fram á að rann- sókn verði gerð á framkvæmd gjaldeyrishaftanna áður en Seðla- bankanum verði veittar ótakmark- aðar heimildir til rannsóknar mála. „Framkvæmd gjaldeyriseftirlits- ins er ekki hafin yfir gagnrýni svo ekki sé dýpra í árina tekið. Már Guðmundsson hefur farið framhjá Kínamúrum eins og fram kom í síðustu viku. Það er ekki búið að ákæra í einu einasta máli sem gjald- eyriseftirlitið hefur kært jafnvel þótt blaðamannafundir séu haldnir þar sem menn eru lýstir sekir. Þetta er ekki eðlileg stjórnsýsla og hjálpar ekki til að ná þeim aðilum sem hugsanlega hafa brotið lögin,“ segir Guðlaugur Þór. -óhþ  Gjaldeyrismál seðlabankinn Segir Seðlabankinn senda misvísandi skilaboð Guðlaugur Þór vill rann- sókn á gjaldeyriseftirliti Seðlabankans. Þ etta eintak barst upp í hendurnar á okkur og við ákváðum að stilla því upp í búðinni,“ segir Magnús Karel Hannesson, kaup- maður í Guðlaugsbúð á Eyrarbakka um bókina Saga Akraness 1. bindi sem stillt er upp á öndveg- isstað í búðinni. Eintakið er merkilegt að því leyti til að það er útkrotað með athugasemdum Páls Baldvins Baldvinssonar, bókagagnrýnanda Frétta- tímans. Eins og frægt er orðið skrifaði Páll Baldvin harðorða gagnrýni á Sögu Akraness í júlí á síðasta ári þar sem hann gagn- rýndi harðlega vinnu- brögð bæði höfundarins Gunnlaugs Haraldssonar og ritstjórnar bókarinnar. Hún fékk eina stjörnu og varð gagnrýnin til þess að bæjarstjórn Akraness, Gunnlaugur og útgáfu- fyrirtækið Uppheimar hótuðu Páli Baldvini málaferlum nema til kæmi afsök- unarbeiðni og leiðrétting á fimmtán efnisat- riðum dómsins. Ekki kom afsökun- arbeiðni né leið- rétting frá Páli Bald- vini en aðil- arnir þrír létu ekki verða af Ég gæti ímyndað mér að þetta yrði dýrgripur fyrir áhuga- menn um bókaút- gáfu og byggða- sögu.  Verslun bækur Útkrotað eintak Páls af Sögu Akraness til sölu á Eyrarbakka Eitt umdeildasta og kostnaðarsamasta bókverk síðustu ára, Saga Akraness, er til sölu í Guð- laugsbúð á Eyrarbakka. Eintakið er einstakt því það er útkrotað í athugasemdum frá Páli Baldvini Baldvinssyni, bókagagnrýnanda Fréttatímans. Eintakið af Sögu Akraness, útkrotað af Páli Baldvini, gæti reynst dýrgripur þegar fram líða stundir. Þrátt fyrir gríðarlega gagnrýni á ritun fyrri bindanna er meirihluti bæjarstjórnar ekki af baki dottin og hefur bæjarstjórinn fengið heimild til að semja við Gunnlaug Haraldsson um að hann riti þriðja bindi Sögu Akraness. Árni Múli Jónasson, bæjarstjóri, segir að takist samn- ingar sé gert ráð fyrir að búseta á Skaganum á nítjándu öld verði rituð á næstu þremur árum. Árni Múli segir að þetta þriðja bindi liggi að stórum hluta þegar fyrir þar sem söguritari hafi frá upphafi mátt gera ráð fyrir að skrifa sögu bæjarfélagsins fram að tuttugustu öld. „En það þarf að sjóða saman og ganga frá og samræma. Við ætlum að reyna að ná samkomulagi. En við vöðum ekki í peningum, svo samkomulag þarf að nást.“ En óttast hann ekki að verkið dragist úr hófi fram? „Nei, samningur- inn verður afkastatengd- ur og gert ráð fyrir að því verði skilað á tilteknum tíma, að því marki sem hægt er að negla svona hugverk niður.“ -gag því að stefna Páli Baldvini. Magnús Karel segir að bókin hafi ekki verið auglýst sérstaklega né hafi hún verið verðlögð. „Traffíkin hjá okkur er ekki byrjað en ætli við ósk- um bara ekki eftir tilboðum í hana. Ég gæti ímyndað mér að þetta verði dýrgripur fyrir áhugamenn um bókaútgáfu og byggðasögu þegar fram líða stundir,“ segir Magnús Karel. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Áfram heldur söguritun Akraness Guðlaugsbúð Guðlaugur Pálsson kaupmaður stofnaði búðina 1917 og stóð vaktina í 76 ár – upp á hvern einasta dag. Hann lést árið 1993. Saga Akraness fékk útreið í bókagagnrýni Fréttatímans í fyrra. Árni Múli Jónasson, bæjarstjóri Björgólfur Thor fær ekki að breyta Björgólfur Thor Björgólfsson fær ekki að breyta innra fyrirkomu- lagi Fríkirkjuvegs 11 en félag í hans eigu, Novator F11, á húsið. Sótt var um að fá að færa aðal- stiga hússins niður um eina hæð þannig að í stað þess að tengja saman fyrstu og aðra hæð væri kjallari og fyrsta hæð tengd með þeim hætti. Með erindinu fylgdu umsagnir Minjasafns Reykjavíkur og Húsafriðunar- nefndar. Svar byggingafull- trúa var einfalt: Nei! -óhþ Leyfi á elleftu stundu WOW air tókst að útvega síðasta tilskilda leyfið til flugrekstrar einungis fáeinum klukkustundum áður en fyrsta vél flugfélagsins hóf sig til flugs. Keflavik Flight Services, þjónustuaðili flug- rekanda WOW air, fékk heimild frá Flugmála- stjórn fáeinum klukkustundum áður en til flugtaks vélar WOW til Parísar kom um hádegi í gær, samkvæmt upplýsingum frá Valdísi Ástu Aðalsteinsdóttur, upplýsingafull- trúa Flugmálastjórnar Íslands. Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air, segir það mikinn létti að leyfið sé komið. „Það kostaði blóð, svita og tár og með ólíkindum hversu margir steinar voru lagðir í götu okkar í þessu máli,“ segir Svanhvít. -sda Heimurinn tóbakslaus Heimsdagur án tóbaks var haldinn í gær, fimmtudag. Dagurinn er haldinn í samstarfi við Vinnuverndarstofnun Evrópu en stofnunin hefur samhliða deginum hleypt af stokkunum vitundar- herferð þar sem sent er ákall til atvinnu- rekenda og starfsmanna um að útrýma tóbaksreyk af vinnustöðum um alla Evrópu. -óhþ 2 fréttir Helgin 1.-3. júní 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.