Fréttatíminn - 01.06.2012, Síða 4
GRILL OG GARÐHÚSGÖGN SEM ENDAST
YFIR 40 GERÐIR
GRILLA Í BOÐI
LANDMANN
eru frábær grill
fyrir íslenskar
aðstæður
44.900
Opið til kl. 16 á laugardögum
12734
Smiðjuvegi 2, Kóp, S. 554 0400
Michelsen_255x50_D_1110.indd 1 02.11.10 10:06
M ér finnst innanríkisráðu-neytið hafa staðið sig vel. Það fór yfir þau lög og
reglur sem gilda og sá að lögreglu-
stjóri og borg voru ekki að fara eftir
þeim,“ segir Margeir Margeirsson,
eigandi staðanna Mónakó og Monte
Carlo. Innanríkisráðherra hefur
fellt ákvörðun lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu um að synja
honum um áframhaldandi rekstrar-
leyfi fyrir staðina úr gildi.
„Ég verð á Laugaveginum þar til
ég drepst. Það er ekki flóknara. Ég
fer ekki.“
Ráðuneytið fer fram á að lögreglu-
embættið taki málið upp að nýju og
fái nýjar umsagnir borgarráðs þar
sem þessar fyrri hafi verið haldnar
„svo verulegum annmörkum“ að
lögreglustjórinn hefði ekki átt að
líta til þeirra þegar hann ákvað að
framlengja ekki rekstrarleyfin.
Ráðuneytið telur að borgin hafi
ekki farið að lögum með því að vitna
í málaskrá lögreglunnar þegar það
setti út á ónæði af stöðunum. Einn-
ig átelur það borgina fyrir að vitna
um fjölda kvartana en segja aldrei
hversu oft, hvenær eða hver kvart-
aði.
„Ég mun stefna þeim,“ segir Mar-
geir og á við borgina; einnig lög-
reglustjórann og borgarstjórann.
Hann vill fá bætur vegna kostnaðar-
ins við að hnekkja þessum ákvörð-
unum, en hann varði milljónum í að
verja sig. Staðir hans, sem óreglu-
menn hafa meðal annars sótt, hafi
verið ataðir auri.
„Fólk heldur að það sé ekki kom-
andi þarna inn. Í morgun var töku-
lið sjónvarpsþáttaraðarinnar Press-
unnar að taka upp á Monte Carlo.
Fólk gapti; er svona fínt hjá þér? Það
er búið að djöflast svoleiðis á mér
og mínum stöðum að menn halda
að þetta sé ein rotþró. Það er ekki
þannig,“ segir Margeir.
„Ég hef sagt það áður. Það eru
þrjár reglur sem lögreglustjórinn
og borgin virðast vinna eftir. Þær
eru stuttar og hljóða svona: Mér
finnst það, af því bara og sú þriðja
er; við skulum láta reyna á það. Það
er sorglegt að búa í þjóðfélagi þar
sem fólkið þarf að sitja undir því að
ráðandi aðilar í þjóðfélaginu skuli
nota svona reglur en láta lögin eiga
sig,“ segir hann.
„Það er eins á mínum stöðum og
öðrum. Það koma alltaf upp einhver
atriði, en það er ekki verra hér en
hvað annað.“
Úrskurðirnir féllu 11. maí.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
RekstuR synjun leyfis Monte CaRlo og Mónakó felld úR gildi
Margeir ætlar í mál
og krefst bóta
Hvorki borgin né lögregluembætti höfuðborgarsvæðisins fóru að lögum þegar ákveðið var að
fella rekstrarleyfi staða Margeirs Margeirssonar, Monte Carlo og Mónakó á Laugaveginum, úr
gildi. Hann vill skaðabætur og hyggst stefna yfirvöldum.
Margeir Margeirsson á stað sínum Mónakó á Laugavegi. Mynd/Hari
Kjöti stolið í Bónus og málið skráð á Monte Carlo
Fréttatíminn sagði frá því í
febrúar hvernig mál sem gerð-
ust í nágrenni staða Margeirs
voru skráð á þá. Til dæmis var
mál þar sem karlmaður sem
stal kjöti í Bónus 11. október
og sást með ætlað þýfi við
Monte Carlo skráð á staðinn
en hann náðist við bílastæða-
húsið við Laugaveg 86.
Annað þar sem lögreglunni
er tilkynnt um meðvitundar-
lausan mann eftir líkamsárás
í nóvember 2010; sá engan og
vissi ekki hver hafði tilkynnt
um atburðinn. Málið var skráð
á Monte Carlo.
Innanríkisráðuneytið átelur
borgina fyrir að bera fyrir
sig málaskrá lögreglunnar
þegar hún vitnar um ónæði af
stöðunum. Það átelur borgina
einnig fyrir að veita einungis
eins árs rekstrarleyfi sem
yrði ekki endurnýjað minnki
ónæðið ekki. Matið á slíku er
talið of huglægt.
Vöruskiptin í apríl
hagstæð um 9,5
milljarða
Vöruskipti við útlönd í apríl voru hag-
stæð um 9,5 milljarða króna. Vörur voru
fluttar út fyrir 50,2 milljarða króna en
inn fyrir 40,7 milljarða. Í apríl í fyrra voru
vöruskiptin hagstæð um 3,4 milljarða
króna, að því er fram kemur hjá Hagstofu
Íslands. Sé litið til tímabilsins janúar til
apríl voru vöruskipti hagstæð um tæpa
28 milljarða króna. Út voru fluttar vörur
fyrir 206,2 milljarða króna en inn fyrir
178 milljarða. Á sama tímabili í fyrra voru
vöruskiptin hagstæð um 33,8 milljarða á
sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því
5,8 milljörðum króna lakari en á sama tíma
árið áður. Iðnaðarvörur voru 53,7 prósent
alls útflutnings og var verðmæti þeirra
3,2 prósentum meira en á sama tíma árið
áður. Sjávarafurðir voru 42,0 prósent alls
útflutnings og var verðmæti þeirra 22,4
prósentum meira en á sama tíma árið
áður. - jh
Hagnaður Íslandsbanka
5,6 milljarðar
Hagnaður Íslandsbanka eftir skatta á
fyrsta ársfjórðungi var 5,6 milljarðar
samanborið við 3,6 milljarða króna á
sama ársfjórðungi fyrra árs. Hagnaður
eftir skatta af reglulegri starfsemi var 4,8
milljarðar á fjórðungnum, samanborið
3,8 milljarða á sama tímabili í fyrra. Nettó
gjaldfærsla vegna endurmats lánasafnsins
nam 1,5 milljarði á fjórðungnum, saman-
veðuR föstudaguR laugaRdaguR sunnudaguR
HeiðríKt á lAndinu, n-átt AustAnlAnds oG
þAr svAlt, AnnArs HæGviðri
HöfuðBorGArsvæðið: Hægur VINdur og
HafgoLa yfIr MIðjaN dagINN. SóL.
enn nánAst HeiðríKt oG HæGviðri, en HAfGolA
við sjóinn. Hlýtt Að deGinuM
HöfuðBorGArsvæðið: LéttSkýjað eða HeIðrÍkja
og faLLegaSt SuMarVeður. HafgoLa.
HæGur vindur eð n-átt, svAlt við norður-
oG AusturströndinA, en Hlýtt syðrA.
HöfuðBorGArsvæðið: ÁfraM SóLrÍkt og HItI
uM 15 StIg að degINuM.
nánast heiðríkt
Hún er allt að því einstök þessi tíð sem við
erum að upplifa. einn og einn dagur með
heiðríkju á landinu öllu kemur alltaf annað
veifið, en að þeir raðist saman hver á fætur
öðrum í heila viku er nánast með ólíkindum.
Spáin hljóðar upp á óbreytt veður í
stærstu dráttum. Sól og aftur
sól en þar sem andar af hafi
getur orðið nokkuð svalt. en
landgolan er hlý og þar sem
er friður fyrir hafgolu
gæti hiti teygt sig upp í
18 til 20°C í sterku sól-
skininu.
16
12 14 12
17
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
13
12 13 15
16 13
11 10 14
16
borið við gjaldfærslu upp á 664 milljónir
á sama tímabili í fyrra. Arðsemi eigin fjár
eftir skatta á tímabilinu var 17,7 prósent á
ársgrundvelli, samanborið við 11,7 prósent
á fyrsta ársfjórðungi 2011. Arðsemi
tímabilsins af reglulegri starfsemi var 15,1
prósent á fjórðungnum, samanborið við
12,4 prósent á sama tímabili árið 2011. - jh
Vill sauðnaut á
Vestfirði
Snævar Valentínus Vagnsson hefur óskað
formlega eftir því við Ísafjarðarbæ að fá að
flytja sauðnaut til Íslands frá grænlandi og
ala þau á Vestfjörðum, að því fram kemur
á bb.is. Snævar hefur mikinn áhuga á því
að koma upp stofni sauðnauta hér á landi,
og kannar nú hvort hann geti fengið leyfi
til að flytja inn að minnsta kosti tíu kýr
og tvo tarfa. Hægt er að skapa þeim góð
skilyrði á vestanverðu landinu, þar sem
mikið landsvæði er ónýtt bæði af mönnum
og dýrum. Hann sér fyrir sér að eftir
nokkur ár verði um hundrað kýr og nokkrir
tarfar saman í flokki, og gæti Ísafjarðar-
bær notið góðs af þeim tekjum sem hægt
er að hafa of stofninum, til að mynda í
formi veiðileyfis og ferðamannatekna.
Hann telur að sauðnautin gætu verið góð
viðbót við dýrastofna Íslendinga og það
sé landi og þjóð til sóma af fá slík dýr til
að auðga dýralífið á frón. Sauðnaut eru
heimskautadýr af ætt slíðurhyrninga, og
er að finna á túndrusvæðum grænlands,
kanada og alaska, en hafa verið flutt til
bæði Noregs og Svíþjóðar. Ísafjarðarbær
hefur falið umhverfisnefnd Ísafjarðarbæjar
að sjá um málið. -sda
4 fréttir Helgin 1.-3. júní 2012