Fréttatíminn - 01.06.2012, Side 10
Höskuldur Daði
Magnússon
hdm@
frettatiminn.is
K atrín Jakobsdóttir mennta-málaráðherra, Gunnar Nelson íþróttamaður, Halldór Helga-
son, snjóbrettakappi og Leifur Leifs-
son, baráttumaður hreyfihamlaðra,
hafa verið valin þau sem skara helst
framúr meðal ungra Íslendinga á aldr-
inum 18 til 40 ára. Alþjóðlega hreyfing-
in JCI stóð fyrir valinu.
„Mikill heiður og ég var hissa. En
þetta er ánægjulegt,“ segir Leifur
um valið. Afrek hans, eins og hinna
þriggja, voru tíunduð við þetta tæki-
færi. „Ég las það skjal. Ég hafði ekki
áttað mig sjálfur á því hvað ég hef
verið að brasa við margt í gegnum
tíðina. Svo er margt sem ég var búinn
að gleyma,“ segir hann og lætur
hjólastólinn ekki stoppa sig. Með-
al verka er heimildamyndin Ör-
yrkinn ósigrandi. Hann var einn
forsprakka Götuhernaðarins,
sem vann að því að bæta ímynd
hreyfihamlaðra og hefur meðal
annars fengið Kærleikskúl-
una 2011 sem framúrskar-
andi fyrirmynd.
„Nú stefni ég á
Hvannadalshnjúk og
vinn að því að klára
það í júní. Ég verð
á handknúnum
sleða. Ég er búinn
að æfa í tvö ár og
ætlaði í fyrra en þá
gaus og við urðum
að hætta við. En nú
ætlum við að láta
verða að þessu – No matter what.“
Guðjón Már Guðjónsson, oftast
kenndur við OZ, Viktor Ómarsson frá
samtökunum, Garðar Thor Cortez
söngvari og ólympíufarinn Kristín Rós
Hákonardóttir völdu þau fjögur úr hópi
fjölda tilnefndra en þau sem voru efst á
blaði auk þessara fjögurra voru Annie
Mist Þórisdóttir íþróttakona, Ari Bragi
Kárason tónlistarmaður, Axel Krist-
insson íþróttaþjálfari, Guðmundur
Hallgrímsson fatahönnuður, Heiða
Kristín Helgadóttir stjórnmálakona og
Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari.
Viktor segir þau fjögur verða til-
nefnd til alþjóðasamtakanna sem
velur tíu frambærilegustu á heimsvísu
úr og býður á heimsþing sitt
sem haldið verður í Taípei í
Tævan. „Þetta fyrirkomu-
lag hefur verið svona
í ellefu ár og í tvígang
höfum við átt fulltrúa þar
sem er frábært, því um
hundrað þjóðir tilnefna
sína fulltrúa ár hvert. Sam-
keppnin er gríðarlega hörð
og fólkið allt framúrskarandi.“
Ólafur Ragnar Grímsson
veitti þeim fjóru viðurkenn-
ingar í Háskóla Reykjavíkur
nú seinnipart fimmtudags.
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Ég hafði
ekki áttað
mig sjálfur
á því hvað
ég hef verið
að brasa
við margt
í gegnum
tíðina.“
Leifur Leifsson.
Verðlaunuð Katrín, Gunnar, Halldór oG leifur
Þau skara framúr
Fjögur hafa verið valin af JCI sem þau sem helst skara framúr meðal ungra Íslendinga að mati
alþjóðlegu hreyfingarinnar JCI: Ráðherra, snjóbrettakappi, baráttumaður hreyfihamlaðra og
bardagalistaríþróttamaður tóku við viðurkenningu úr höndum forsetans.
Halldór Helgason, 21 árs. Ungur, efnilegur snjóbrettakappi sem hefur, ásamt bróður
sínum, byggt upp fjögur fyrirtæki í kringum íþróttaiðkunina.
„Hann er sjúkur í að koma aftur,“
segir Steinþór Helgi Arnsteinsson
tónleikahaldari.
Heimsókn breska tónlistarmanns-
ins Bryans Ferry til landsins um
síðustu helgi vakti að vonum mikla
athygli. Ferry hélt tvenna tónleika í
Hörpu á vegum samtakanna Í okkar
höndum, dóttursamtaka Nelson Man-
dela Foundation í Jóhannesarborg, en
var auk þess áberandi í bæjarlífinu.
Steinþór Helgi bar hita og þunga
af skipulagningu heimsóknar tón-
listarmannsins og ljóst má vera að vel
tókst til. „Þeir vilja koma strax aftur
á næsta ári og halda aðra tónleika í
Hörpu. Þá vilja þeir taka upp tón-
leikana og gera heimildarmynd um
heimsóknina,“ segir Steinþór Helgi
en umboðsmaður Ferrys hefur þegar
hafist handa við að finna rétta dag-
setningu fyrir væntanlega tónleika.
Bryan Ferry kom til landsins á
laugardag og skemmti sér um kvöldið
á Kaffi Nauthóli. Fylgdarlið hans hélt
gleðinni áfram á Kaffibarnum fram-
eftir nóttu en sjálfur laumaði Ferry
sér snemma í bólið. Eftir tónleikana
á sunnudagskvöld lagði Ferry og 30
manna fylgdarlið hans undir sig Fiski-
félagið en Isaac sonur hans hafði auk
þess verið duglegur að bjóða föngu-
legum konum til veislunnar. Eftir tón-
leikana á mánudagskvöld skemmti
hópurinn sér svo á Kex Hosteli.
Bryan Ferry er mikill veiðiáhuga-
maður og hefur hug á að renna fyrir
lax í heimsókn sinni á næsta ári. Í
þessari heimsókn skellti hann sér í
hvalaskoðun, buslaði í Bláa lóninu
og kynnti sér listagalleríin í miðborg
Reykjavíkur.
íslandsVinur ferry snýr aftur að ári
Bryan Ferry ráðgerir aðra Íslandsreisu
Bryan Ferry heillaðist af landi og þjóð í fyrstu
Íslandheimsókn sinni. Hann krafðist þess að gista
á Hótel Borg og var áberandi í bænum um síðustu
helgi.Mynd/NordicPhotos/Getty
Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti, veitti viðurkenn-
ingarnar.
Leifur Leifsson, 27 ára. Hann hefur starfað mikið með hagsmunasamtökum
fatlaðra, tekið þátt í uppsetningu leikrita, keppt í uppistandi og var fyrstur upp
Esjuna í hjólastól.
Katrín Jakobsdóttir, 36 ára. Hún hefur í mörg ár verið leiðandi í íslenskum stjórn-
málum þrátt fyrir ungan aldur. Það er sjaldgæft á heimsvísu að svo ung kona hafi
náð viðlíka frama í stjórnmálum.
Gunnar Nelson, 23 ára. Hann er jarðbundinn, nálgast íþrótt sína af virðingu, er
íþróttamaður í allra fremstu röð og til fyrirmyndar í hvívetna. Er meðal annars í
efsta sæti á heimslista íþróttavefjarins MMA Planet yfir efnilegustu íþróttamenn í
blönduðum bardagaíþróttum.
10 fréttir Helgin 1.-3. júní 2012