Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.06.2012, Qupperneq 12

Fréttatíminn - 01.06.2012, Qupperneq 12
H E LGA R BL A Ð 4, 6 Í nýrri, óbirtri rannsókn á heilsu og lífs-kjörum skólabarna, kemur fram að ís-lenskir unglingar eru með þeim hamingju- sömustu í heimi – ef ekki þeir allra ánægðustu. Fréttatíminn skýrði frá því í síðustu viku að velferðarráðherra stefnir að stofnun sér- stakrar unglingamóttöku í miðbæ Reykjavíkur þar sem fólk á aldrinum 14-23 ára getur sótt heilbrigðisþjónustu sem sniðin er að þeirra þörfum. Rannsóknin Heilsa og lífskjör skólabarna er framkvæmd af Rannsóknarsetri forvarna við Háskólann á Akureyri. Hún er hluti af fjöl- þjóðlegu verkefni sem styrkt er af Alþjóða- heilbrigðisstofnuninni (WHO) og tekur til 200 þúsund unglinga í 43 löndum í Evrópu og Norður-Ameríku. Rannsóknin er lögð fyrir á fjögurra ára fresti og eru nýjustu gögnin frá 2010. Lífsánægja íslenskra unglinga er með því hæsta sem mælist meðal samanburðarland- anna. Þannig segjast 92 prósent 6. bekkinga vera mjög ánægðir með lífið og það sama á við um 92 prósent 8. bekkinga og 87 prósent 10. bekkinga. Íslenskir unglingar eru meðal þeirra fimm ánægðustu í öllum aldurshópum. Færri stúlkur segjast hafa haft kynmök en fjórum árum fyrr, að sögn Ársæls Arnars- ≈ Aðeins sænskir unglingar voru ólíklegri til að nota smokka. ≈ Dagleg gosdrykkja­ neysla [er] fátíðari á Íslandi en í saman­ burðar­ löndunum. ≈ Áfengis ­ neysla íslenskra unglinga er sú minnsta meðal þjóða í Evrópu og Norður­ Ameríku. ≈ Íslenskir unglingar þeir hamingjusömustu í heimi Íslenskir ung­ lingar eru meðal þeirra hamingju­ sömustu í heimi. Færri stúlkur stunda kynmök en fyrir fjórum árum sem gerir það að verkum að íslensk ungmenni færast niður um níu sæti þegar skoðað er hlutfall þeirra tíundu­ bekkinga sem hafa haft kynmök. Fyrir fjórum árum voru þau í öðru sæti. Lífsánægja íslenskra unglinga er með því hæsta sem mælist meðal samanburðarlandanna. Þannig segjast 92 prósent 6. bekkinga vera mjög ánægðir með lífið og það sama á við um 92 prósent 8. bekkinga og 87 prósenta 10. bekkinga. Íslenskir unglingar eru meðal þeirra fimm ánægðustu í öllum aldurshópum. Nordic Photos/Getty Images Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is sonar, prófessors í sálfræði við Háskólann á Akureyri. „Alls hefur um þriðjungur íslenskra unglinga í 10. bekk haft kynmök, sem er tals- vert hærra en meðaltalið úr öllum löndunum 43 sem var 26 prósent. Grænlendingar tróna á toppnum en þar í landi hafa 71 prósent stúlkna og 46 prósent stráka í 10. bekk stundað kyn- mök. Íslendingar sem áður voru í öðru sæti, falla nú niður í það ellefta. Mestu um ræður að hlutfallslega færri stúlkur segjast nú hafa stundað kynlíf en fyrir fjórum árum þegar könnunin var gerð,“ segir hann. Notkun smokka staðið í stað Samkvæmt könnuninni er smokkanotkun ís- lenskra unglinga sú næst minnsta á Vestur- löndum. Sögðust 64 prósent stúlkna og 71 prósent drengja í 10. bekk hafa notað smokk við síðustu kynmök, sem er talsvert lægra en meðaltal hinna landanna sem var 78 prósent. Aðeins sænskir unglingar voru ólíklegri til að nota smokka. Í Eistlandi var smokkanotkun unglinga algengust en þar höfðu 90 prósent unglinganna notað slíka vörn við síðustu sam- farir. Ársæll segir að smokkanotkun hafi almennt aukist í flestum samanburðarlöndum en hér á landi hafi hún staðið í stað. „Smokkar eru öflugasta vörnin gegn kynsjúkdómum og sú getnaðarvörn sem helst er notuð af ungling- um í flestum löndum. Notkun á þeim meðal unglinga hefur sýnt sig vera mjög háð sjálfs- trausti þeirra og þeir unglingar sem ekki nota smokka eru líklegri til þess að stunda áhættusamara kynlíf, það er, að byrja ungir, eiga fjölda rekkjunauta og vera undir áhrifum vímuefna,“ segir Ársæll. Slys algengasta orsök dauðsfalla Slys eru algengasta orsök dauðsfalla og örorku meðal ungs fólks í flestum þróuðum löndum, að sögn Ársæls. „Slys geta tengst áhættu- hegðun en eru einnig fylgifiskar íþróttaiðk- unar. Íslensk börn slasast oft miðað við börn í samanburðarlöndum. Meðal 10. bekkinga eru það til að mynda aðeins Spánverjar sem slasast oftar en Íslendingar,“ bendir hann á. „Það kann að vera að slysavörnum barna sé frekar ábótavant á Íslandi frekar en í öðrum löndum. En gott aðgengi að læknisþjónustu kann einnig að skýra einhvern hluta talnanna. Spurt er hversu oft viðkomandi hafi þurft að leita til læknis eða hjúkrunarfræðings vegna meiðsla á síðastliðnu ári. Hvoru tveggja getur skýrt háa tíðni; fjöldi slysa og aðgengi að heil- brigðisþjónustu,“ segir Ársæll. Íslenskir 10. bekkingar of þungir Bandarískir unglingar eru hlutfallslega flestir í yfirþyngd í öllum aldurshópum rannsóknarinnar, í 6., 8. og 10. bekk. Hlut- fallslega fá íslensk börn teljast í yfirþyngd í 6. bekk miðað við börn í samanburðar- löndunum, en þeim fjölgar hlutfallslega í 8. bekk og íslenskir 10. bekkingar eru þeir sjöundu þyngstu. Íslenskir 10. bekkingar eru þyngstir allra unglinga á Norðurlönd- unum. Íslenskir unglingar eru einnig næst líklegastir allra til að vera í megrun. Þannig hafa 31 prósent stúlkna og 15 prósent stráka í 10. bekk reynt að megra sig. Íslensk börn hreyfa sig aðeins minna en unglingar í samanburðarlöndum gera að meðaltali. „Það er mjög jákvætt fyrir einstakling að halda sér í kjörþyngd ef það er gert með heilsusamlegum hætti. Alltof margir unglingar beita hins vegar mjög óheilsu- samlegum aðferðum sem ekki aðeins skaða heilsuna heldur valda þyngdaraukningu til lengri tíma,“ segir Ársæll. Hann bendir jafnframt á að samkvæmt rannsókn Háskólans á Akureyri er dagleg gosdrykkjaneysla fátíðari á Íslandi en í samanburðarlöndunum. „Hlutfall unglinga sem tannbursta sig oftar en einu sinni á dag er sambærilegt við meðaltal samanburðar- landa. Ef tannheilsa íslenskra barna er lakari en annarra hlýtur það að vekja spurn- ingar um aðgengi að tannlæknisþjónustu sem hefur verið vandræðamál í mörg ár,“ segir hann. Reykingar fátíðar Reykingar eru mjög fátíðar meðal íslenskra unglinga í öllum samanburði og meðal 10. bekkinga eru Íslendingar í næstneðsta sæti yfir tíðni reykinga. Áfengisneysla íslenskra unglinga er sú minnsta meðal þjóða í Evr- ópu og Norður-Ameríku. Einelti er hlutfallslega fátítt á Íslandi. Um fjögur prósent unglinga í 10. bekk eru lögð í einelti að minnsta kosti tvisvar í mánuði. Algengast er einelti í Rúmeníu þar sem einn af hverjum fimm unglingum í þessum aldurshóp verður fyrir tíðu einelti. Meðaltal samanburðarlandanna er 8 prósent. „Þótt þetta sé mjög ánægjulegur árangur mældur í tíðni er ég hræddur um að þetta skipti litlu máli fyrir þau börn sem verða fyrir einelti. Þetta sýnir samt að það er hægt að ná árangri í þessum málum og skólarnir hafa margir hverjir tekið á þessu af krafti,“ segir Ársæll. 12 fréttaskýring Helgin 1.-3. júní 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.