Fréttatíminn - 01.06.2012, Blaðsíða 18
PI
PA
R\
TB
W
A
·
SÍ
A
·
11
21
74
b
m
va
ll
a
.is
Hágæða hráefni fyrir íslenskar aðstæður
Í múrversluninni hjá BM Vallá geturðu gengið að fyrsta flokks vöru og þjónustu
fyrir allt múrverk ásamt hágæðaflotefni sem hentar bæði til nýbyggingar sem og í
endurflotun. Einnig býður BM Vallá uppá StoCrete flotefni.
BM Vallá hefur um árabil verið í fararbroddi íslenskra
iðnfyrirtækja og gegnt forystuhlutverki í framleiðslu fyrir
íslenskan byggingarvörumarkað.
Sími: 412 5050
Fax: 412 5001
sala@bmvalla.is
BM Vallá ehf.
Breiðhöfða 3
110 Reykjavík
Góður múr
er grundvallaratriði
„Enskt lið Evrópumeistari, nýr
þjálfari og mikill stuðningur. Þeir
komast í úrslitaleikinn.“
„Tjallinn á eftir að flækjufótast
eitthvað í gegnum þetta mót. Eru í
tiltölulega léttum riðli og það mun
gjósa upp einhver stemmning í
kringum þá.“
„Afar óvænt þar sem þeir eru
ekki vel mannaðir, en eins og með
Ísland í handbolta þá eru þeir
bestir þegar engar væntingar eru
gerðar.“
„England er vagga fótboltans.“
„Hjartað slær oftast með Eng-
landi – en þeir valda oftast von-
brigðum.“
„Hafa ekki
liðsheildina
til að
fara alla
leið.“
„Lampard og Terry
(þótt sá síðarnefndi
hafi verið í banni í
úrslitaleiknum) gerðu
ótrúlega hluti með
Chelsea undir lok tíma-
bilsins og fara hungraðir
inn í EM svo mig grunar
að þeir gætu náð langt með
liðið á viljastyrknum.“
„Litlar væntingar að þessu
sinni og þeir munu koma á
óvart með Steven Gerrard í
öndvegi.“
„Gary Neville í þjálfara-
teymi Englands fleytir
þeim í úrslitaleik-
inn.“
„Loksins koma
þeir á óvart, en
tapa vitaskuld
úrslitaleiknum.
Seigla Chelsea
hefur kennt
þeim margt í
viðureign við
meginlandið.
Rooney blómstrar og Hart tekur
þetta.“
„Aldrei verið eins lítil pressa á liði
Englands og það mun hjálpa þeim
mikið.“
„Lærisveinar Roy Hodsgon koma
öllum að óvörum en tapa í víta-
spyrnukeppni í úrslitum.“
„Ég veðja alltaf á England í 1. sæti
sem er óskhyggja náttúrulega,
en hlýtur einhvern tímann að
rætast! Og undir
Hodgson,
með fullt af
meiðslum og
ósannfærandi
undirbún-
ing
að
baki, er
pressan
á þá
minni en
venjulega.
Gæti hentað
þeim að vera
underdogs.“
„Blessaðir
Englend-
ingarnir, já
þeir munu á
ótrúlegan hátt
koma sér alla
leið í undanúrslit
og fá inn Wayne
Rooney í liðið en
það mun ekki duga til.
Enn einu sinni munu
þeir tapa fyrir Þjóð-
verjum.“
„Það myndast einhver stemmning
í franska liðinu sem kemur þeim
alla leið.“
„Frökkum hefur gengið vel í undan-
keppninni og Laurent Blanc hefur
tekist að þétta raðirnar, gamall
heimsmeistari og lærisveinn
Fergusons. Evra hefur snúið aftur í
hópinn og mun styrkja liðið enn
frekar. Kannski verður hann
samferða Hazard til United
eftir mótið.“
„Blanc er að ná liðinu í
gang og þeir verða sterkir
í sumar. Þeir munu koma ein-
hverjum á óvart.“
„Þeir koma á óvart í ár ætla að
sanna sig eftir dapurt gengi í
síðasta móti.“
„Frakkarnir náðu sér ekki á strik
á HM og voru slakir á EM 2008.
Þeirra tími er ekki kominn, en þeir
geta prísað sig sæla með 3. sætið.
Og prísað sig sæla fyrir Benzema.“
„Frakkar fara án pressu í mótið,
þjálfar-
inn
er sigurvegari sem fær leikmenn til
að standa saman í þessu móti.“
„Eftir niðurlægingu á síðustu
mótum er mikill metnaður hjá
franska liðinu að standa sig vel í ár.
Nú er aftur toppmaður við stjórn-
völinn eftir að rugludallurinn var
látinn hætta.“
„Frakkarnir eru komnir aftur. Nýr
hópur að mestu leyti, ungir og
sprækir strákar, varnarsinnaðari
en oft áður og það verður erfitt að
brjóta þá niður (jafnvel þó Ísland
hafi skorað 2 á þá).“
„Á uppleið frá því eftir miðjan
seinni hálfleik gegn Íslendingum á
sunnudaginn.“
„Hafa ekkert getað síðan
Zidane hætti, en Blanc
mun ná að endurvekja
stolt þeirra. Spái að
þeir slái út Spán í 8.
liða úrslitum í eftir-
minnilegum leik.“
„Ronaldo verður heitur.“
„Nú hlýtur að koma að því,
eftir enn eitt frábært tímabil með
félagsliðinu, að Ronaldo eigi líka
frábært stórmót.“
„Langnæstbesti knattspyrnumað-
ur heims. Þetta verður keppnin
hans.“
„Nani verður maður mótsins.“
„Mun toppa sinn riðil, en missa
svo taktinn og Ronaldo
gengur grátandi af velli
eftir tap í undanúrslitum.“
„Þurfa náttúrulega að komast
upp úr “dauðariðlinum” fyrst.
En í EM er Ronaldo aðal úr því
Messi er frá Argentínu, og ef
hann kemst í stuð getur Portúgal
hæglega komist í úrslitaleik-
inn.“
England 34
Ari Edwald, forstjóri 365
Arnar Björnsson, íþróttafréttamaður
Birgir Tjörvi Pétursson, lögmaður
Björgvin G. Sigurðsson, alþingismaður
Breki Logason, fréttamaður
Davíð Gíslason, lögmaður
Eggert Magnússon, fyrrverandi stjórnarmaður
í UEFA
Eggert Skúlason, almannatengill
Einar Baldvin Árnason, lögmaður
Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamaður
Einar Logi Vignisson, auglýsingastjóri
Eygló Jónsdóttir, almannatengill
Garðar Örn Úlfarsson, blaðamaður
Grímur Sigurðsson, lögmaður
Guðmundur Benediktsson, íþróttafréttamaður
Hilmar Björnsson, dagskrárstjóri Skjásins
Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi
Hörður Magnússon, íþróttafréttamaður
Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður
Jóhann G. Jóhannsson, leikari
Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður
Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar
Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Lands-
bankans
Lúðvík Arnarson, ferðafrömuður
Magnús Már Einarsson, ritstjóri
Magnús Agnar Magnússon, umboðsmaður
Magnús Orri Schram, alþingismaður
Ólafur Garðarson, lögmaður og umboðsmaður
Óskar Þór Axelsson, leikstjóri
Óskar Ófeigur Jónsson, íþróttafréttamaður
Pétur Blöndal, blaðamaður
Pjetur Sigurðsson, ljósmyndari
Ragnar Jónasson, rithöfundur
Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi
Björgólfs Thor Björgólfssonar
Sigmundur Ernir Rúnarsson, alþingismaður
Sigurður Hlöðversson, auglýsingafrömuður
Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður
Sölvi Tryggvason, fjölmiðlamaður
Úlfur Blandon, knattspyrnuþjálfari
Valdís Fjölnisdóttir, athafnakona
Vilborg Yrsa Sigurðardóttir, rithöfundur
Þorlákur Árnason, knattspyrnuþjálfari
Álitsjafar
frakkland 25
Portúgal 15
Ítalía 10
„Þeir fara langt á hefðinni, miklir
sigurvegarar með góða varnar-
vinnu.“
„Leiðinlegur fótbolti er oft
árangursríkur.“
„Oft átt frægari leikmenn og
umtalaðri, líka betra lið, en þeir
eru alltaf góðir í vörn. Það mun
tryggja þeim velgengni nú sem
fyrr.“
„Ítalía, fara langt á liðsheildinni en
missa áhugann eftir að þeir tapa í
undanúrslitum.“
„Kláruðu riðilinn með glæsibrag
og á þess að tapa leik, en þess ber
að geta að riðillinn var nú ekki sá
sterkasti. Komast þó þetta langt.“
„Eru farnir að spila skemmtilegri
bolta en oft áður án þess þó að
opna sig mikið.“
„Það er bannað að vanmeta Ítali
á stórmótum og nú þegar ekki er
búist við mjög miklu verða þeir
stórhættulegir. Myndi segja að
þeir kæmu á óvart ef þeir væru
ekki númeri of stór fótboltaþjóð
til að hægt væri að nota svoleiðis
orðalag.“
„Jókerinn í pakkanum. Gætu
komist í undanúrslit en líka verið
alveg vonlausir og setið eftir í
riðlinum.“
svíþjóð 6
„Suprise of the
tournament. Gríðarlega
góð blanda af reynslu
(Isaksson – Mellberg
– Svensson og
Zlatan) með yfir
400 lands-
leiki. Síðan
ótrúlega
efnilegir
leik-
menn
eins
og
Rasmus Elm, Ola Toivonen og Emir
Bajrami. Zlatan er sigurvegari!
Geta tekið Danmörk/Grikkland á
þetta.“
„Sænsku kjötbollurnar troða sér í
undanúrslitin í ár. Þeir eru að vísu
með Frökkum og Englendingum
í riðli en ég hef litla trú á þessum
stórþjóðum í sumar. Svíar hafa
líka sýnt það í gegnum tíðina
að þeir eru góðir á stórmótum.
Reynsluboltar í vörn og er ekki
kominn tími á að Ibrahimovic stígi
aðeins upp. Það verða tilboð í Ikea
í allt sumar. Hej alle uppa!“
„Unnu Eurovision, geta væntan-
lega næstum unnið þetta líka.“
rússland 3
„Dark horse-liðið að þessu sinni.“
Grikkland 2
„Þeir þurfa á verðlaunum að
halda, vonandi er verðlaunafé.“
Króatía 2
„Eru með miðjumann frá Totten-
ham og hljóta því að fara langt.“
„Ég hef mikla trú á því að Slaven
Bilic fari langt með Króatana. Þeir
skilja eftir Ítali í riðlinum og vinna
Svíþjóð/Frakkland/England í átta
liða úrslitunum en svo eru þeir
bara ekki nógu góðir til að vinna
Þjóðverjana.“
Pólland 2
„Pólverjar eru á heimavelli,
hungraðir með marga áhugaverða
leikmenn.“
Danmörk 1
„Rallhálfir Danir munu rúlla í
undanúrslit öllum að óvörum.“
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@
frettatiminn.is
18 fótbolti Helgin 1.-3. júní 2012