Fréttatíminn - 01.06.2012, Blaðsíða 23
H E LGA R BL A Ð
5
Þegar Stjórnlagaráð hóf vinnu sína
við að endurskoða stjórnarskrána
frá grunni í mars 2011 blasti þessi
vandi við. Ætlun Stjórnlagaráðs
varðandi valdþættina var að upp
hefja Alþingi, auka veg þess, virð
ingu og völd — einkum á kostnað
ríkisstjórnar. Niðurstaðan varðandi
forsetann var að halda vægi emb
ættisins sem áþekkustu núverandi
skipulagi en að skýra stöðu þess og
hlutverk sem best. Og girða þannig
fyrir mjög ólíka túlkun á hlutverki
forsetans — sem hlýtur að ógna
stöðugleika stjórnskipunarinnar
og festu í stjórnkerfinu.
Eitt meginmarkmið Stjórnlaga
ráðs var einmitt það að leikmenn
geti lesið meginatriðin í stjórn
skipan landsins í stjórnarskrá en
þurfi ekki að leita á náðir sérfróðra
stjórnskipunarfræðinga — eins
og presta véfréttarinnar í Delfí
forðum — til að túlka hana. Með
því að nema á brott leppsákvæðin
sem forseti hefur aðeins formlega
með höndum en ráðherrar fram
kvæma í raun verður hlutverk for
seta gegnsærra og staða hans skýr
ari. Stjórnarskráin segir þá fyrir um
raunverulegar embættisskyldur for
setans svo rými fyrir ólíkar túlkanir
á vægi hans og stöðu verður mun
þrengra fyrir vikið.
Hingað til hefur helsta vald for
seta þótt felast í málskotsréttinum,
sbr. 26. gr. stjórnarskrárinnar. Þeg
ar sá réttur er í öllum aðalatriðum
færður til lítils hlutfalls kjósenda
(10%), eins og gert er ráð fyrir
frumvarpi Stjórnlagaráðs, dregur
vitaskuld nokkuð úr valdavægi for
setans í stjórnskipan landsins. Þá
má halda fram að hlutverk forseta
minnki við afnám þeirrar hefðar að
forseti veiti sérstakt stjórnarmynd
unarumboð. Á móti fær forsetinn
tiltekin öryggisventilshlutverk en
hefur ekki með höndum viðmiklar
stjórnvaldsákvarðanir — þær eru
áfram á hendi ríkisstjórnar. Að
koma hans að stjórnvaldsákvörð
unum felst því í að vísa ákvörðunum
ráðherra í tilteknum neyðartilvik
um ýmist á milli valdþáttanna eða
til þjóðarinnar. Þetta er öryggisven
tilshlutverk, ekki stefnumarkandi
stjórnvaldsathöfn.
Vægi embættis forseta Íslands
breytist ekki mikið í tillögum Stjórn
lagaráðs en hlutverk þess verður
miklum mun skýrara en áður. Þrátt
fyrir afnám ýmissa formlegra lepps
hlutverka hefur forsetinn jafna
möguleika og áður á að rækja hlut
verk sitt sem þjóðhöfðingi — sam
einandi trúnaðarmaður þjóðarinnar.
Eiríkur Bergmann,
dósent í stjórnmálafræði, sat í Stjórnlagaráði
Vægi embættis
forseta Íslands
breytist ekki
mikið í tillögum
Stjórn lagaráðs
en hlutverk þess
verður miklum
mun skýrara en
áður.
Ágætu vinir
Ég er uppseldur og því staddur í
Búðardal þessa dagana en kem
aftur í næstu viku.
Ég þakka ykkur fyrir frábærar
viðtökur. Hefði aldrei trúað því
að svona ljótur ostur yrði svona
vinsæll. Ég er meyr og mjúkur.
Þakka ykkur.
LjóturYkkar
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
2–
03
31
Aðdáendur
nær og fjær
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Gallerí Fold í 20 ár 1992–2012
mánudaginn 4. júní, kl. 18
í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
Jóhannes Jóhannesson
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og
fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Verkin verða sýnd í dag föstudag 10–18, laugardag 11–17,
sunnudag 12–17, mánudag 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Listmunauppboð
í Gallerí Fold