Fréttatíminn - 01.06.2012, Síða 40
8 STYRKTARFÉLAG LAMAÐR A OG FATLAÐR A − AFMÆLISRIT 60
ÁRA
SLF
1. júní 2012
Auður Ösp Valdimarsdóttir
og sonur hennar Alexander
Breki eru falleg mæðgin sem
hreinlega geislar af við fyrstu
kynni. Auður er að læra upp-
lýsinga- og fjölmiðlafræði en
Alexander Breki er í 4. bekk í
Hörðuvallaskóla. Það sem gerir
þessi mæðgin kannski eilítið
ólík mörgum mæðginum er að
Alexander Breki fæddist með
Cerebral palsy (CP), sem veldur
því að Alexander er bundinn
hjólastól og þarf aðstoð við
flestar athafnir daglegs lífs, til
að mynda fær hann alla sína
næringu í gegnum magasondu.
Þessi fallegu mæðgin búa í
Kópavoginum ásamt Ríkarði,
litla bróður Alexanders.
Dagarnir þarfnast góðs
skipulags
Auður Ösp segir að dagarnir hjá
þeim geti verið langir og þeir
þarfnist góðs skipulags. „Við
vöknum snemma og gerum okk-
ur tilbúin fyrir daginn, Alexand-
er Breki er sóttur af ferðaþjón-
ustunni og keyrður í skólann, en
ég keyri síðan Ríkarð í leikskól-
ann eftir það og undirbý mig svo
fyrir daginn.“
Ferðaþjónusta fatlaðra kemur
talsvert við sögu á hverjum degi
hjá fjölskyldunni. „Alexander
Breki fer beint úr skólanum í
sjúkraþjálfun hjá Æfingastöð-
inni, sem Styrktarfélag lamaðra
og fatlaðra rekur, og kemur svo
aftur heim með ferðaþjónust-
unni á svipuðum tíma og yngri
sonurinn. Þá höfum við það
venjulega huggulegt heima eða
kíkjum til ömmu og afa, sem er
ekki síður huggulegt, þar sem
þau eru mjög vinsæl hjá þeim
drengjunum.
Ómetanlegur stuðningur á
Æfingastöðinni
Alexander Breki byrjaði ungur í
þjálfun hjá Æfingastöðinni og að
sögn Auðar Aspar er þjálfunin
ómissandi þáttur í lífi Alexand-
ers. „Hann var svo lítill þegar
hann byrjaði í sjúkraþjálfun
hjá Æfingastöðinni. Á þessum
tíma kom sjúkraþjálfari frá
Æfingastöðinni yfir á Lyngás,
sem er dagvistun fyrir fötluð
börn. Alexander var þar í 5 ár
og átti yndislegar stundir og
ekki var verra að hann fengi alla
þjónustuna á sama stað. Þetta
er aðeins öðruvísi innan grunn-
skólanna, þar sem börnin þurfa
að sækja þjónustuna utan skól-
Viðtal Auður Ösp VAldimArsdóttir móðir AlexAnders BrekA
Æfingastöðin og Reykjadalur
ómissandi þættir í okkat lífi
Starfsfólkið
virðist hafa ein-
stakt lag á því
að gera þjálfun,
sem oft á tíðum
getur verið
ansi strembin,
auðvelda og
skemmtilega
fyrir krakkana
sem þangað
fara.
Alexander á ógleymanlegar stundir í Reykjadal.