Fréttatíminn - 01.06.2012, Blaðsíða 44
12 STYRKTARFÉLAG LAMAÐR A OG FATLAÐR A − AFMÆLISRIT 60
ÁRA
SLF
1. júní 2012
Í starfi okkar með börnum og ung-
mennum er leitast við að fylgjast
vel með nýjungum, þróun og þekk-
ingu innan iðjuþjálfunar og sjúkra-
þjálfunar með skjólstæðingsmiðaða
þjónustu að leiðarljósi. Við leggjum
metnað okkar í að veita heildræna
nálgun við lausn vanda og leggjum
því ríka áherslu á náið samstarf við
fjölskyldur og þá sem veita barninu
þjónustu. Til okkar leitar mjög
breiður hópur með margvíslegan
vanda. Við höfum nýtt okkur þau
tækifæri sem hafa skapast til að fara
nýjar leiðir og stuðlað að áherslu-
breytingum í þjónustu við börn og
fjölskyldur þeirra.
Æfingastöðin er sjálfstæð heil-
brigðisstofnun og hefur verið starf-
rækt frá árinu 1956. Það er Styrkt-
arfélag lamaðra og fatlaðra sem
rekur Æfingastöðina. Hlutverk
hennar er að efla börn og ungmenni
með skerta færni og stuðla að virkri
þátttöku þeirra í samfélaginu. Þar
er einnig ákveðnum hópi fullorð-
inna einstaklinga sinnt, sér í lagi
þeim sem hafa verið hreyfihaml-
aðir frá barnæsku og notið þjónustu
Æfingastöðvarinnar frá unga aldri.
Einnig er veitt þjónusta við einstak-
linga með Parkinson-sjúkdóm.
Á Æfingastöðinni veita iðjuþjálf-
ar og sjúkraþjálfarar þjónustu þar
sem áhersla er á fjölbreytt úrræði
fyrir börn, ungmenni og foreldra
þeirra. Yfir þúsund einstaklingar
sækja þjónustu Æfingastöðvarinn-
ar á ári hverju. Heildarfjöldi starfs-
manna er um 35 þar af 10 iðjuþjálf-
ar og 16 sjúkraþjálfarar. Þjónustan
fer ýmist fram í húsnæði Æfinga-
stöðvarinnar að Háaleitisbraut 13
eða í nánasta umhverfi barnsins
svo sem í leikskólum/skólum eða á
heimili. Auk þess starfar iðjuþjálfi
í Íþróttahúsinu við Strandgötu í
Hafnarfirði.
Fjölskyldumiðuð þjónusta
Í takt við breyttar áherslur og aukna
þekkingu hefur starfsemi Æfinga-
stöðvarinnar tekið meira mið af
þörfum fjölskyldna barna með sér-
þarfir. Stjórn Styrktarfélags lam-
aðra og fatlaðra ákvað fyrir nokkru
að endurskipuleggja þjónustu Æf-
ingastöðvarinnar með hugmynda-
fræði fjölskyldumiðaðrar þjónustu
að leiðarljósi. Þjónustan byggir á
ákvarðanatöku og áhrifum skjól-
stæðingsins sjálfs í eigin íhlutun
sem fellur vel að fjölskyldumiðaðri
þjónustu. Skjólstæðingur og þjálfari
komast í sameiningu að samkomu-
lagi um markmið og leiðir í þjálfun.
Æfingastöðin hefur þannig styrkt
stöðu sína enn frekar sem miðstöð
þekkingar og þjónustu við börn og
ungmenni með skerta færni.
Fjölbreytt úrræði
Úrræði á Æfingastöðinni eru marg-
þætt og sveigjanleg allt eftir þörf-
um hvers og eins. Reynt er að mæta
þörfum allra skjólstæðinga með
einum eða öðrum hætti. Úrræðin
geta verið í formi beinnar þjálfun-
ar, útvegun stoð- og hjálpartækja
auk fræðslu og ráðgjafar til skjól-
stæðings, foreldra eða annarra sem
annast hann. Algengasta form þjálf-
unar hefur verið einstaklingsþjálf-
Æfingastöðin Breyttar áherslur – Nýjar leiðir
Æfingastöðin
Á undanförnum árum hefur Æfingastöðin farið í gegnum breytingar á innra skipulagi með það að
markmiði að bæta þjónustu við skjólstæðinga sína. Liður í því er að auka samvinnu við foreldra og
þátt þeirra í þjónustuferlinu.
Áslaug Guðmundsdóttir
yfirsjúkraþjálfari
Gerður Gústavsdóttir
yfiriðjuþjálfi
Sjúkraþjálfun á hestbaki er meðal nýrri þjálfunarforma sem nýtist vel börnum með
hreyfihömlun.
Boðið er upp á námskeið til eflingar
félagsfærni barna.
Í sundlauginni fer fram sjúkraþjálfun en auk þess er boðið upp á sundnámskeið fyrir
börn sem hafa ekki náð tökum á sundi.
Yfir þúsund
einstak-
lingar sækja
þjónustu
Æfinga-
stöðvar-
innar á
ári hverju.
Heildar-
fjöldi starfs-
manna er
um 35 þar
af 10 iðju-
þjálfar og
16 sjúkra-
þjálfarar.