Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.06.2012, Blaðsíða 46

Fréttatíminn - 01.06.2012, Blaðsíða 46
14 STYRKTARFÉLAG LAMAÐR A OG FATLAÐR A − AFMÆLISRIT 60 ÁRA SLF 1. júní 2012 Erla Þórisdóttir er brosmild ung kona sem starfar hjá Actavis. Hún er móðir þriggja ára hnátu og á að auki þrjú stjúp- börn. Erla fæddist með klofinn hrygg og nýtti því þjónustu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra á yngri árum og gerir að hluta til enn. Hún kemur í sjúkraþjálfun tvisvar í viku á Æfingastöðina en kom áður einnig í iðjuþjálfun og í Reykjadal til sumardvalar og um helgar yfir veturnar. „Ég hef aldrei litið á fötlun mina sem einhverja hindrun. Enda hef ég alltaf fengið mikinn stuðning frá þeim sem eru í kringum mig. Ég geri í raun allt það sem annað fólk gerir nema hvað að jú, ég mæti í mínar æfingar hjá Æfingastöðinni því ég á það til að stirðna fyrr en annað fólk gerir og þarf því að passa vel upp á mig. Að öðru leyti læt ég fötlunina ekki trufla mig eða há mér.“ Líf og fjör í Reykjadal Erla talar um að dvalirnar í Reykjadal hafi verið sér algjörlega ómetanlegar. Þar hafi alltaf verið mikið líf og fjör. Erla segist ávallt hafa verið full tilhlökk- unar að fara þangað enda hafi hún verið þar í hópi margra sinna bestu vina. „Ég kynntist einni af mínum bestu vinkonum í Reykjadal og við erum í góðu sam- bandi enn í dag,“ segir Erla en hún telur Reykjadal vera nauðsynlegt úrræði fyrir fötluð börn og ungmenni og afar mikil- vægt fyrir þau að slíkt sé í boði. Fer þangað sem hún ætlar sér Það sést fljótt þegar rætt er við Erlu að hún er mjög sjálfstæð og fer þangað sem hún ætlar sér. Eftir nám í menntaskóla fór hún ein síns liðs til spænskunáms í Salamanca á Spáni og segir hún að sér hafi líkað það einkar vel. „Ég ákvað að þetta væri eitthvað sem mig langaði að gera og safnaði mér því fyrir ferðinni og tilkynnti foreldrum mínum að ég ætlaði að fara til Spánar í spænskunám. Ég lærði mjög mikið á þessum tíma og miklu meira en ég hafði nokkuð tímann gert í kennslustofunni hér heima. Þetta var mjög skemmtilegt og eftirminnilegt.“ Meðgangan gekk eins og í sögu Fyrir þremur árum fæddist Erlu og Björgvini, manni hennar, dóttir en þar til þá hafði verið óvíst hvort Erla gæti átt og gengið með barn. „Meðgangan gekk eins og í sögu, ég var mjög hress og vann meira að segja þar til um tveir mánuðir voru eftir af meðgöngunni. Ég var mjög meðvituð á meðgöngunni að stunda æf- ingar og passaði líka vel upp á mataræð- ið. Ég hugsa að það hafi skipt sköpum upp á það hversu vel þetta gekk.“ Vegna fötlunar Erlu var hún ef til vill örlítið meðvitaðari en aðrar konur í sömu sporum um að það væri ekki sjálfsagt að barnið myndi fæðast heilbrigt. „Ég var auðvitað búin að velta fyrir mér öllu mögulegu en svo fæddist sú stutta stál- heilbrigð og hraust. Það hefur svo geng- ið virkilega vel með hana enda hefur hún alltaf verið meðfærileg og góð.“ Og með þessum orðum kveðjum við þessa kraftmiklu konu og óskum henni og fjöl- skyldu hennar alls hins besta. Lítur ekki á fötlunina sem hindrun Viðtal Erla Þórisdóttir starfsmaður aCtavis og móðir Ég ... safnaði mér því fyrir ferðinni og til­ kynnti for­ eldrum mínum að ég ætlaði að fara til Spánar í spænsku­ nám. Vissir þú að ... ... iðjuþjálfun felur í sér að auka sjálfstæði barna og trú þeirra á eigin áhrifamátt? .... SLF stóð að stofnun fyrsta skóla og leikskóla fyrir fötluð börn á Íslandi? ... mikilvægt er að grípa strax inn í og fá ráðleggingar ef ungbarn snýr höfði sínu alltaf í sömu átt? ... sumarbúðirnar Reykjadalur og Sumarland eru reknar af SLF? ... í Reykjadal koma árlega um 200 börn með fötlun allsstaðar að af land- inu? ... kostnaður við dvöl eins barns í Reykjadal í tvær vikur er um 700.000 kr. ... í sumarbúðum félagsins starfa 68 starfsmenn, mestmegnis framhalds- skóla- og háskólanemar? ... iðjuþjálfar efla fínhreyfiþroska barna í gegnum þjálfun og leik. ... SLF hefur gefið út Kærleikskúluna frá árinu 2003? ... Kærleikskúlur SLF eru prýddar listaverkum eftir marga af okkar þekkt- ari listamönnum? ... SLF gefur út jólaóróa fyrir hver jól þar sem íslensku jólasveinarnir eru í aðalhlutverki? Erla Þórisdóttir með þriggja ára dóttur sína.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.