Fréttatíminn - 01.06.2012, Blaðsíða 49
Helgin 1.-3. júní 2012 viðhorf 33
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Framkvæmdastjóri:
Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is.
Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
F
Flug gerbreytti samgöngum hér á landi. Í
nánast veglausu landi varð skyndilega fært
milli landshluta á örskammri stundu og
síðar milli landa. Margra alda einangrun Ís-
lands var í raun rofin með flugsamgöngum.
Um síðustu helgi var minnst 75 ára afmælis
Icelandair á glæsilegum flugdegi Flugmála-
félags Íslands á Reykjavíkurflugvelli.
Upphaf félagsins er rakið til stofnunar
Flugfélags Akureyrar árið
1937 en upp úr því var Flug-
félag Íslands stofnað árið
1940. Margir áfangar eru
síðan á leið þess félags sem
nú heitir Icelandair. Stofnun
Loftleiða árið 1944 og innan-
landsflug þess um hríð og
síðar millilandaflug sem varð
að hreinu ævintýri á sjötta tug
liðinnar aldar þegar félagið
bauð stórum alþjóðlegum
flugfélögum í Atlantshafsflugi birginn með
góðum árangri. Flugleiðir urðu síðan til árið
1973 með sameiningu Loftleiða og Flug-
félags Íslands.
Icelandair og forverar þess hafa undan-
gengna þrjá aldarfjórðunga verið burðarás
í íslenskum flugsamgöngum en undirstaða
þessara samgangna var lögð þegar Reykja-
víkurflugvöllur var tekinn í notkun árið 1941
og Keflavíkurflugvöllur ári síðar. Breska
hernámsliðið byggði Reykjavíkurflugvöll og
Bandaríkjamenn flugvöllinn á Miðnesheiði
en Íslendingar tóku við rekstri beggja árið
1946.
Þessara upphafsdaga var minnst á fyrr-
nefndri flugsýningu þegar saman flugu vél-
ar frá raunverulegum árdögum íslenskrar
flugsögu, hin stórmerka DC-3 vél sem enn
er í eigu Íslendinga og erlend Catalina, sjó-
og landflugvél, en vélar þessarar gerðar áttu
drýgstan þátt í uppbyggingu innanlands-
flugs frá stríðsárunum og fram á sjöunda
áratug tuttugustu aldar. Þá voru flugvellir
fáir, samgöngur á landi erfiðar og sjóferðir
tímafrekar. Nokkrir frumkvöðlar þessa
flugs eru enn á lífi. Þeir afreksmenn náðu að
endurnýja kynni sín við hina gömlu gæðinga
loftveganna.
Staðan samgangna er önnur í dag með
mjög bættu vegakerfi og aflögðum sjóferð-
um en innanlandsflug gegnir enn mikil-
vægu hlutverki með tengingu landshlutanna
við höfuðborgina. Því sætir furðu að það
sé á stefnuskrá borgaryfirvalda í Reykjavík
að leggja flugvöllinn af, tengingu við helsta
stjórnkerfi landsins og fullkomnasta sjúkra-
húsið, auk hins almenna flugs.
Flug milli landa er forsenda og undirstaða
ferðamannaiðnaðarins hérlendis, þeirrar
burðaratvinnugreinar sem vaxið hefur hrað-
ast undangengin ár. Auk Icelandair hefur
Iceland Express veitt viðamikla þjónustu í
millilandaflugi undanfarin ár auk þess sem
nýtt íslenskt flugfélag, WOWair, fór jómfrú-
arflug sitt í gær, fimmtudag. Þá er saga
flugfélagsins Atlanta, sem stofnað var árið
1986, merk en rekstur félagsins er í megin-
dráttum ytra. Íslensku flugfélögin keppa við
fjölmörg erlend flugfélög um hylli farþega
sem hingað koma með dýrmætan gjaldeyri
og kaupa þjónustu af fjölda fyrirtækja; hvort
heldur eru hótel, veitingastaðir, bílaleigur,
hópferðafyrirtækið eða afþreyingarfyrir-
tæki hvers konar.
Ótalin eru þá smærri flugfélög sem þjóna
öðrum áætlunarleiðum innanlands en Flug-
félag Íslands og margháttuðu leiguflugi,
þyrluþjónustur og síðast en ekki síst flug-
deild Landhelgisgæslunnar. Þyrlur hennar
eru björgunartæki sjómanna á hafi úti og
þeirra sem koma þarf skjótt undir læknis-
hendur af landi, auk leitar og annarrar þjón-
ustu. Ný og fullkomin landhelgisgæsluflug-
vél sinnir síðan mikilvægu flugi til gæslu á
hinni víðfeðmu fiskveiðilögsögu okkar.
Kraftur einkennir íslensk flugmál, nú sem
löngum fyrr, á tíma sem nær bráðum öld
aftur í tímann, frá fyrsta fluginu í Vatnsmýr-
inni í haustbyrjun árið 1919.
Frumkvöðlar flugs hérlendis
Merkrar sögu og tímamóta minnst
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Þ að getur verið flókið að vera kominn með hvíta kollinn á höfuðið, fagna langþráðu takmarki og vera á því
augnabliki spurður í sífellu: „Hvað tekur
svo við; hvað ætlar þú að læra?“ „Hvað
ætlar þú að verða, væni, þegar þú ert
orðinn stór?“ Á tímamótum þarf oft að taka
ákvarðanir. Einstaklingar geta átt misauð-
velt með að taka ákvarðanir og nálgast
ákvarðanatökuna með mismunandi hætti.
Sumir eru hvatvísir, aðrir örlagatrúar,
undirgefnir, geta ekki ákveðið sig, fresta
ákvörðun; sumir beita rökum, aðrir innsæi
og enn aðrir ögra. Eitt er víst að námsval
getur verið flókið ferli. Þú ert ekki bara að
velja nám, þú ert á vissan hátt að velja þér
farveg sem á sinn þátt í að skapa þér fram-
tíð. Það getur verið mjög misjafnt hvort
einstaklingar hafi vítt áhugasvið, það er hafi áhuga á
mörgu eða þröngt áhugasvið sem einskorðast jafnvel
bara við eitthvað eitt. Komið hafa fram hugmyndir um
að starfsáhugi liggi aðallega á pólum tveggja vídda og
fólk hafi annað hvort áhuga á að vinna með hluti eða
fólk og hugmyndir eða gögn.
Ákvarðanir um nám byggja aðallega á reynsluheimi
einstaklinga, alhæfingum og umhverfisskilyrðum.
Þegar velja á nám eða starf við hæfi þarf að taka þrjú
skref; öðlast skýran skilning á sjálfum sér, áhuga,
hæfni, gildum og metnaði; afla þekkingar á því hvers
nám eða störf krefjast og hvað þau hafa upp á að bjóða
og loks para saman þessar tvær tegundir af upplýs-
ingum, annars vegar um eigin persónueinkenni og
hins vegar um starfsumhverfið. Ungt fólk
tekur oft ákvarðanir byggðar á áliti ann-
arra, virðingu náms og starfa, og hvað er
„smart“ eða í tísku. Oft hafa foreldar og
vinir mikil áhrif á námsval. Góð sjálfs-
mynd og sjálfstraust skipta máli þegar
einstaklingar standa frammi fyrir vali.
Það skiptir mjög miklu máli að val á
námi sé vel ígrundað og upplýst. Einstak-
lingurinn þarf að hlusta á sína innri rödd
og nýta sér innsæi sitt, horfa á gildi sín,
áhuga og færni. Hann verður jafnframt að
þora að standa með sér og velja það sem
hann langar til, en forðast að velja eftir
óskum eða viðhorfum annarra. Staðalí-
mynd kynjanna kemur oft sterkt fram í
náms- og starfsvali. Það getur verið gott
að ræða við hlutlausan fagaðila, eins og
náms- og starfsráðgjafa, um námsval sitt. Þó getur
enginn sagt öðrum hvað velja skal. Ákvörðunin verður
að koma frá þeim sem ætlar að stunda námið. Farsælt
námsval er mikill ávinningur fyrir einstaklinginn og
samfélagið allt. Mennt er máttur bæði fyrir þann sem
menntunina hlýtur og þann sem les bók listaskáldsins,
fer í klippingu eða leitar sér læknis.
Megi hver sá sem stendur frammi fyrir þeirri
ákvörðun að velja sér nám, velja samkvæmt áhuga,
styrkleikum og standa með gildum sínum. þarf hug-
rekki til þess velja, breyta út af vana, ögra sér eða
stíga stór skref. Hugrekki gengur ekki út það að óttast
ekki – það gengur út á að óttast og halda áfram með
forvitnina að leiðarljósi. Valið er þitt.
Hvað ætlar þú að verða?
Læknir eða listaskáld?
Gréta Matthíasdóttir
Höfundur er náms- og
starfsráðgjafi við Há-
skólann í Reykjavík
Kraftur einkennir íslensk flugmál, nú sem löngum fyrr.
00000
Veiðikortið
37 vötn
Eitt kort
6.000 kr.
www.veidikortid.is
FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ
1
1
-0
5
6
8
/
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
www.ms.is
...hvert er
þitt eftirlæti?
...endilega fáið ykkur
H E LGA R BL A Ð