Fréttatíminn - 01.06.2012, Side 52
Snæhéri í sólarlandi
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
É
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
Ég minnist bjartra, en tiltölulega
kaldra, maídaga frá próflestri á yngri
árum. Leita þurfti skjóls til að njóta
sólarinnar enda vindur oftar en ekki
norðanstæður þegar léttir til á höfuð-
borgarsvæðinu. Hann getur því ver-
ið fremur svalur, ekki síst á þessum
árstíma.
Því kom sumarið okkur nokkuð á
óvart þegar það brast á síðastliðinn
sunnudag með miklu sólfari og hita,
þótt enn væri maí. Enn óvæntara var
að hitinn hélst á okkar norðlægu
slóðum og er áfram í veðurkortum,
miðað við veðurspár, þegar þessi orð
eru sett á blað á fyrsta vinnudegi
eftir hvítasunnu. Þann dag var gert
ráð fyrir að hitinn færi í 22 stig og að
hlýjast yrði inn til landsins norðvest-
an- og vestan til. Á miðvikudeginum
var gert ráð fyrir að hitinn færi í 20
stig á svipuðum slóðum. Fimmtu-
dagsspáin gerði enn fremur ráð
fyrir léttskýjuðu veðri víðast hvar á
landinu og að hitinn færi í 20 stig á
Vesturlandi. Föstudagurinn, það er
að segja dagurinn í dag, var á sömu
nótum. Spáð var allt að 23 stiga hita
á Suðurlandi. Ekki voru horfur verri
fyrir morgundaginn, laugardag.
Þá sagði veðurspámaðurinn Siggi
Stormur að hlýjast yrði á Vestur-
landi, 23 stiga hiti. Á sunnudaginn
reiknar sá góði maður með því að
hlýjast verði á Suður- og Vesturlandi,
hitinn enn 23 stig.
Svo vel þekki ég veðurfar hér á
landi að þetta sætir tíðindum. Veð-
ur breytist ekki aðeins milli daga
heldur verulega á degi hverjum.
Þótt sól skíni vitum við að yfirleitt
má reikna með dumbungi ef ekki
rigningu strax næsta dag. Þá skipt-
ist verðurfar mjög eftir landshlutum.
Gott veður nyrðra er yfirleitt ávísun
á eitthvað síðra syðra og öfugt. Því
er blíðuspáin núna svo sérstök. Það
er hægviðri og sól um land allt þótt
hafgolan geti að sönnu læðst inn
og ýft upp gæsahúð á sólbrenndum
handlegg.
Sólfarið á sér nefnilega leiðan
fylgifisk. Það er bannsettur sól-
bruninn. Fölir Íslendingar, eða jafn-
vel þeir sem koma blágrænir undan
vetri, fagna svo mjög þessum dögum
að húðliturinn breytist skjótt yfir í
bleikt og síðan dökkrautt. Karlar
og konur henda af sér klæðum og
hjörðin leggst flöt á bekki og palla
strax á fyrsta sólardegi, sérstaklega
ef hittist á helgi eins og var um hvíta-
sunnuna. Óviðbúnir eiga oft ekki
sólarvörn
en l á t a
sig samt
hafa það, taka örlögum sínum í sól-
baðinu, finna ekki fyrir brunanum
fyrr en inn er skriðið síðdegis.
Húð manna er að sönnu misjafn-
lega undir sólbaðið búin. Sumir
eru tiltölulega dökkir að eðlisfari,
svartir á brún og brá, jafnvel svo að
hugsanlegt er að formóðir hafi ein-
hvern tímann ornað frönskum skútu-
sjómanni. Aðrir eru hánorrænir eða
keltneskir og alls ekki gerðir til sól-
böðunar. Þeir eru eins og snæhérar
sem hafa fyrir misgáning villst til
suðurlanda, alhvítir. Það vill samt
snæhérum og hvítabjörnum, sem
fangaðir eru á norðurslóðum til sýn-
inga í heitum löndum, til happs að
vera loðnir. Feldurinn ver þá fyrir
bruna. Það á ekki við afkomendur
Kelta norður á Íslandi, þá daga sem
blessuð sólin sýnir sig. Þeir brún-
kast ekki heldur roðna og brenna.
Dugar þá ekkert annað en klæða af
sér sólina eða bera á sig sólarvörn og
hana af skárri sortinni.
Það er enginn Frakki í forættum
pistilskrifarans og því engin nátt-
úruleg vörn gegn sólarljósi. Kelt-
neska blóðið er ómengað. Því breyt-
ist húðliturinn í sól frá grænu yfir í
bleikt og
þaðan
í rautt,
ef eng-
ar varn-
i r er u
viðhafðar.
Sólbruni er
óþægilegur
og því hefur mér
á langri ævi lærst að forðast hann.
Svo var einnig um liðna helgi þar
sem þrjá kynslóðir dvöldust saman
utan borgarmarkanna. Þegar aðrir
rifu sig úr og lögðust flatir, hafandi
þó borið sólarvörn á yngstu kyn-
slóðina, fór afinn í síðbuxur og
skyrtu. Það varði belg og leggi en
haus og hendur stóðu út úr gall-
anum. Þeir líkamshlutar roðnuðu,
einkum enni og nef, með tilheyr-
andi sviðatilfinningu. Sú tilfinning
er óþolandi. Því settist ég upp í bíl
síðla dags og ók í nálæga verslun.
Alúðleg kona leiðbeindi rauðhöfða-
num og benti á brúsa með sólvarn-
arstuðlinum 8, 15 og 20, allt eftir
þörfum.
„Áttu ekkert öflugra,“ spurði ég
konuna, „eitthvað sem ver mann
almennilega?“ „Jú,“ svaraði hún
og dró fram túpu með varnarstuðl-
inum 30. „Þetta ver vel en fólk nær
samt lit með tímanum,“ svaraði
konan sem augljóslega taldi að sá
keltneski fyrir framan hana ætti
sér þann draum æðstan að dökkna
á hörund. Líklega mat hún þessa
meintu þrá út frá rauðu nefi og sjálf-
lýsandi enni viðmælandans.
„Ég vil hvorki roðna né brún-
kast,“ sagði ég, „enda kann ég vel
við minn grænleita húðlit. Áttu
ekki eitthvað sem stuðlað getur að
því að sá litur haldi sér þótt ég fari
út undir bert loft á sólardegi?“
„Ja, ég er hérna með 50 blokk,“
sagði afgreiðslukonan og dró fram
bláan brúsa með því undraefni.
Á henni mátti skilja að svo öflug
sólarvörn væri helst fyrir kríthvít
kornabörn en væri ella nánast sem
gegnheill kafarabúningur fyrir full-
orðna.
„Þetta er málið,“ sagði ég og festi
þegar kaup á þessu dásamlega
glundri og sá fram á frelsi kom-
andi sólardaga – og ekki síður
nokkra sumarleyfisdaga sem í
vændum eru í suðrænu landi.
Þar get ég loksins, þökk sé bláu
túpunni, sprangað um hálfber, rétt
eins og aðrir.
Að vísu hvítur eins og snæ-
héri – en hverjum er
ekki sama?
Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík
Sími: 557 9510 | Vefsíða: www.patti.is
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl. 9-18
Laugardaga kl.11-16
Sunnudaga lokað
Vald
ar v
örur
á
allt
að %50afslætti
Stakir sófar
Tungusófar
Hornsófar
Leður sófasett
Borðstofustólar
Hægindastólar
Rúmgaflar
Heilsukoddar
Púðar
frá 86.450kr.
frá 85.450kr.
frá 142.950kr.
frá 199.900kr.
frá 12.900kr.
frá 59.900kr.
frá 5.900kr.
frá 3.000kr.
frá 2.900kr.
TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ
H Ú S G Ö G N
Róma Tungusófi 85.450kr. Hægindastóll 59.900kr. Leður bogasófi 299.900kr.
36 viðhorf Helgin 1.-3. júní 2012