Læknablaðið - 01.02.1925, Qupperneq 21
LÆKNABLAÐIÐ
■I*
Halldór Gunnlaugsson
héraðslæknir.
Dauöinn hefir höggvið marga stofna stéttar vorrar síðustu árin. Síð-
astur er fallinn Halldór GUnnlaugsson, öllum héraðsbúum sínum harm-
dauði. Embætti hans hér lagði honum þá skyldu á herðar, að fara marga
svaðilförina út á sjóinn, og í þeirri síðustu — þeirri í dag — fórst hann
við áttunda mann.
Halldór heitinn var fæddur á Skeggjastöðum á Langanesi 25. ágúst
1S75. Hann útskrifaðist úr latinuskólanum 30. júní 1897 (I. eink.), og tók
embættispróf við Hafnarháskóla vorið 1903 með I. einkunn. Sama sumar
varð hann aðstoðarlæknir hjá Guðm. Hannessyni á Akureyri 1903—1905,
varð héraðslæknir í Hornafirði 6. júlí 1905, en settur í Rangárhérað 4.
ág. 1905 og fékk veitingu fyrir \restmannaeyjahéraði 17. mars 1906.
Hann lætur eftir sig ekkju, — frú Önnu f. Therp — 3 stálpaða sonu
og dóttur og fósturson i bernsku.
Hann var hvers manns hugljúfi, þvi aö hann var hvorttveggja i senn,
friðsamur og glaðlyndur, jáfnvel æringi í vinahóp. Hann var ágætur hag-
yrðingur, sérlega sýnt utn aö gera smellnar kýmnisvísur og hagur „kar-
rikatur“-teiknari, enda var rnörg fyndni hans svo aö segja þjóðkunn.
Ol