Læknablaðið - 01.10.1946, Síða 18
124
L M K N A 15 L A Ð 1 tí
komnu kerfi almannatrygg-
inga, sem nái til allrar þjóðar-
innar, án tillits til stétta og
efnahags, að Island verði á því
sviði i fremstu röð nágranna-
þjóðanna.“ Hafði ráðuneytið
þá falið þeim Jóni Blöndal,
hagfræðing og Jóhanni Sæ-
nnmdssyni, tryggingayfirlækni
að starfa að undirbúningi og
gera tillögur um þetta mál í
samræmi við áðurnefndan mál-
efnasamning.
Þegar þessu var þannig kom-
ið og stjórn L. í. fór að herast
til cyrna að hinar vænlanlegu
tillögur urn þessi efni mundu
mjög verulega fara inn á hags-
munasvæði lækna og jafnvel
gera byltingu mikla á þeim
svæðum, þá tók stjórn L. í.
það ráð að rita milliþinga-
nefndinni svolátandi bréf þ.
18. des. 1944:
„Þar sem stjórn Læknafé-
lags íslands liefur borizt til
eyrna að nefnd sú, er nú sit-
ur á rökstólum til þess að und-
irbúa löggjöf um almennar
tryggingar, muni ef lil vill láta
sig skipta ýmislegt, er kann
að varða hagsmuni íslenzkra
lækna, þá leyfir hún sér að
mælast til þess að henni verði
gefinn kostur á að láta álit sitt
í ljós um öll þesskonar mál,
áður en þeim er ráðið til Ivkta
i nefndinni.”
Siðan heyrum við lítið um
þetta mál þangað til í maí
1945, að við þá fáum svolát-
andi bréf frá Jóh. Sæmunds-
syni dags. 4. mai:
„Ilerra form. Læknafélags Isl.
Magnús Pjetursson,
Reykj avik.
Hérmeð leyfi ég mér að til-
kynna yður, að nú liöfum við
Jón Blöndal gengið frá tillög-
um um almannatryggingar og
aflient þær til prentunar.
Félagsmálaráðherra liefur
nýlega skipað þrjá lækna i
nefnd til að fjalla um þessar
tillögur, þá Guðmund Thor-
oddsen prófessor úr hópi em-
bættislækna i Reykjavík, Magn-
ús Ágústsson, Kleppjárns-
reykjum, úr bópi héraðslækna
og Snorra Hallgrimsson úr
hópi starfandi lækna.
Þegar tillögurnar liggja fyr-
ir fullprentaðar munvun vér
senda yður þær, svo að yður
gefist kostur á að kynnast
þeim áður en þær verða bún-
ar endanlega i hendur alþing-
is.“
Þessi nefndarskipun kom
okkur nijög að óvörum því
okkur hafði aldrei getað dott-
ið annað í liug, en leitað yrði
til stéttarfélaganna, ef setja
ætti slíka nefnd á laggirnar,
ekki sízt þar sem við höfðum
sérstaklega óskað eftir því að
leitað yrði álits stéttarfélag-
anna um tillögurnar.
Stjórn L. I. ákvað því að
skiifa félagsmálaráðherra í