Læknablaðið - 01.10.1946, Side 26
132
LÆKNABLAÐIÐ
skýla, liver innan sins héraðs,
enda séu þau sjúkrahús eða
sjúkraskýli aðeins við hæfi liér-
aðanna og taki ekki yfir 20
sjúklinga.
2. gr.
Lausar sjúkrahúsalæknis-
stöður (yfirlæknisstöður) við
önnur sjúkrahús eða stærri en
getur i 1. gr., skal jafnan aug-
lýsa nieð minnst 3 mánaða
fyrirvara.
Þegar í hlut eiga sjúkraliús
önnur en ríkissjúkrahús, skal
leita staðfestingar ráðherra á
auglýsingum um lausar sjúkra-
húsalæknisstöður, áður en birt-
ar eru, og getur ráðherra i ein-
stökum tilfellum með ráði
landlæknis krafizt, að selt séu
sérstök skilyrði um framhalds-
nám og sérþekkingu umsækj-
anda, sem til greinageti komið.
Umsóknir skal senda land-
lækni. Ráðherra úrskurðar, að
fengnum tillögum landlækn-
is, hverjir umsækjendur séu
hæfir i stöðuna. Landlæknir
sendir síðan umsóknirnar
stjórnenduni hlutaðeigandi
sjúkrahúsa, ásamt umsögn
sinni um umsækjendur og til-
lögum um ráðningu i stöðuna.
Ákvæði þessarar greinar
taka ekki til ráðningar yfir-
lækna við sjúkrahús, sem um
ræðir i síðustu málsgrein 4.
greinar laga nr. 30, 19. júni
1933, en stik ráðning er þó engu
siður háð úrskurði ráðherra.
um að hlutaðeigandi sé hæf-
ur í stöðuna.
3. gr.
Prófessorinn í lyflæknisfræði
við Háskólann, skal jafnframt
vera yfirlæknir lyflæknisdeild-
ar Landspítalans og prófessor
í handlæknisfræði jTfirlæknir
liandlæknisdeildarinnar.
Aðrar yfirlæknisstöður við
ríkisspítalana veitir ráðherra
með ráði landlæknis, að fengn-
um tillögum læknadeildar Há-
skólans og stjórnarnefndar
ríkisspitalanna. Þegar völ er
kennara í læknadeild Háskól-
ans í þeim sérgreinum, er sér-
stakir læknar ern ráðnir til að
sinna í Landsspitalanum eða
öðrum ríkissjúkrahúsum i
Reykjavík og grennd, skulu
kennararnir að jafnaði ganga
fvrir öðrum til þeirra starfa
Iiver i sinni sérgrein.“
Svaraði stjórn L.í. því bréfi
á þennan veg:
„Vér þökkum hréf yðar dags.
27. júlí síðastl., ásamt uppkasti
að reglugerð um ráðningu
sjúkrahúslækna.
Hefur stjórn L.l. athugað
uppkasl þetta og ekkert fund-
ið við það að athuga, það sem
það nær. En vér teljum rétt,
að taka einnig upp i þessa
reglugerð reglur um veitingu
fyrstu aðstoðarlæknisembætt-
anna á rikissjúkraliúsunum,
að minnsta kosti þeirra, sem
þegar cvu orðnar fasfar stöður