Læknablaðið - 01.10.1946, Qupperneq 29
LÆKNABLAÐIÐ
135
„yamla fátæktin kemur aftur
heim til sín“.
3ja manna nefnd var kosin
til að athuga og vera á verði
um málið. Þessir lilutu kosn-
ingu:
Kristinn Stefánsson, 25 atkv.
Þórður Þórðarson, 17 atkv.
Halldór Hansen, 9 atkv.
5. ERINDI.
Um árangur lyflæknismeð-
ferðar á ulcussjúkdómum.
Dr. Óskar Þ. Þói'ðarson flutti
fróðlegt erindi um meðferð ul-
cussjúkd. i Landspítalanum og
tók til samanburðar útlenda
reynslu. Var erindi þessu mjög
vel tekið af fundarmönnum og
jxakkað með lófataki.
Dr. Halldór Hansen tók einn-
ig til máls.
Að þessu erindi loknu var
fundi frestað til næsta dags
kl. 4.
Dagskrá /4. júní.
1. Sjúkrahúsamálið.
2. Arbók Læknafélags Islands.
3. Hlunnindi héi’aðslækna,
gjaldskrá og samningar við
sjúkrasamlög.
t. Ný löggjöf um lyf og lyfja-
sölu.
5. Erindi: Um schockmeðfei’ð
geðveikra, Kristján Þor-
varðarson, læknir.
fi. önnur mál.
Fundur var settur á tilskild-
xun tíma kl. 1 og tekið fyrir:
1. SJÚIvRAHÚSAMÁLIÐ.
Nefnd sú, er kosin var á að-
alfundi 1944 lagði fram svofellt
Nefndarálit.
Nefnd sú, er kosin var á að-
alfundi L.í. sumai’ið 1944 til
að rannsaka ástandið í sjúkra-
húsamálum landsins og skip-
un læknishéraða, vann vetur-
inn 1944—15 að athugunum á
þessum málum, jafnframt því
sem hún reyndi að kynna sér
skipun sjúki’ahúsamála í ná-
grannalöndunum. Lauk hún
eigi við álitsgjörð 1945, því að
liún fékk vitneskju um, að
fundur í L.í. mundi eigi verða
haldinn ])á um sumarið. Þar
senx nú hefir verið boðað til
fundar í félaginu, leyfir liún
sér að leggja fram eftirfarandi
álitsgjörð:
Tclja nxá, að Reykjavík sé
orðin miðstöð sjúkraliúsa-
lækninga í landinu og fer eigi
hjá því, að svo verði frámveg-
is. Rer því að leggja mesta á-
lierzlu á það, að þar verði kom-
ið á fót sem fullkomnuslu
sjúkrahúsakerfi, sem taki eigi
aðeins við sjúklingum höfuð-
staðarins, lieldur líka að
minnsta kosti þeim sjúklingum
utan af landi, sem þarfnast
vandasamastra rannsókna og
læknisaðgerða.
En eins og er, er mikil ekla
á sjúkrarúmum rikjandi i
Revkjavík. Sýna skýrslur
sjúkrahúsanna þar um legu-