Læknablaðið - 01.10.1946, Side 30
130
L Æ K N A B L A i) I 1)
dagafjölda á undanförnum ár-
um, að þau skila öll meira en
100% afköstum, cn þó er jafn-
an mikill fjöldi sjúklinga, er
bíður eftir sjúkrahúsplássi.
Telur nefndin vera á því
brýna þörf, að úr þessu verði
bætt liið allra fyrsta, og vill
gera um það eftirfarandi lil-
lögur:
1. Stækkun verði gerð á Land-
spitalanum, þannig, að lyf-
læknisdeildin og handlækn-
isdeildin rúmi 120—130
sjúklinga hvor, þar í inni-
falin rúm fyrir 40—60 börn.
2. Komið verði upp deild eða
sjúkraliúsi, er annist liand-
iæknisaðgerðir vegna út-
vortis berkla, beinbrota og
bæklunarsjúkdóma. Hæfi-
leg stærð mundi vera allt
að 80 sjúkrarúm.
í sambandi við þessa deild
þyrftu nauðsynlega að fara
fram æfingalækningar, unz
sjúklingarnir gætu útskrif-
azt heim til sín eða til ann-
arar hæfilegrar stofnunar.
3. Reist verði hæli er taki við
sjúklingum með langvinna
sjúkdóma er einkum þarfn-
ast hjúkrunar, en ekki
vandasamra læknisaðgerða
á sjúkrahúsum inni í bæn-
um. Þar ættu að fara fram
vihnulækningar er gætu
orðið vistmönnum til stæl-
ingar eða þjálfunar, sem
tengiliður milli liælisvistar
og starfs. Vel mundi fara á
því að þetta liæli starfaði i
tveim deildum. Tæki önn-
ur við fólki, er ætla má að
yrði þar langdvölum, en hin
við fólki til skemmri dvalar
t. d. í afturbata eftir slys,
eða skurðlæknisaðgerðir á
útlimum (sbr. 2). Leggja
ber áherzlu á að slíkt liæli
yrði reist utan bæjar, en þó
eigi mjög fjarri, svo að vist-
mönnum vrði kostur sem
víðtækastra starfsskilyrða.
Rekstur slíks hælis ætti að
geta orðið mun ódýrari en
venjulegra sjúkrahúsa. Örð-
ug't er að gera sér fulla
grein fyrir, hve slórt slíkt
liæli þyrfti að vera, en
naumast mætti það þó vera
minna en svo að það rúm-
aði 70—80 vistmenn til að
byrja með.
4. Byggt verði farsótta- og
sóttvarnahús, er rúmi 70—
80 sjúklinga. Er þá gert ráð
fyrir, að 10—20 rúm verði
til ráðstöfunar fyrir berkla-
sjúklinga, sem eigi er unnt
að vista á heilsuhælum
vegna veikinda þeirra.
5. Fjölgað verði sjúkrarúmum
fyrir geðveikt fólk, svo að
þau verði samtals allt að
400 fyrir allt landið. Auk
þess væri nauðsynlegt að
sérdeild væri komið upp
vegna ofdrykkjufólks.
0. Loks telur nefndin ríka
nauðsjm til bera að komið
verði upp fávitahæli fvrir