Læknablaðið - 01.10.1946, Qupperneq 33
LÆKNABLAÐIÐ
139
Þessir vom kosnir:
Eggert Br. Einarsson,
Bjarni Snæbjörnsson og
Theódór Skúlason.
5. ERINDI: UM SCHOCK-
MEÐFERÐ GEÐVEIKRA.
Kristján Þorvarðarson flutti
erindi er fjallaði um 8 ára
reynslu hans á scliockmeðferð
við geðveiki.*)
Helgi Tómasson dr. med
flutti einnig ýtarlegt erindi um
hið sama. Var gerður mjög
góður rómur að máli þeirra og
þökkuðu fundarmenn með
lófataki.
6. ÖNNUR MÁL.
1. Lesnir voru upp reikning-
ar „Styrktarsjóðs ekkna og
munaðarlausra harna islenzkra
lækna“ fyrir árið 1945.
2. Ivosnir voru i Serfræðinga-
nefnd almannalrygginganna:
Aðalmaður: Páll Sigurðsson og
Varam.: Kristján Arinbjarnar.
3. Argjaldið var ákveðið kr.
100.00. '
Þar sem fleira var ekki til
umræðu var fundi slitið.
Jngólfur Gíslason (sign.)
fundarstjóri.
Halldór Stefánsson (sign.)
fundarritari
*) Grein um þetla efni er vænt-
anleg i Læknablaðinu.
FYLGISKJAL I.
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS.
Reykjavík, 18. des. 1944.
Kæri stéttarbróðir.
Eins og stéttarbræðrum mun
kunnugt, voru samningar milli hér-
aðslækna og sjúkrasamlaga eitt af
þeim málum, sem voru á dagskrá
siðasta aðalfundar Læknafélags ís-
lands.
Var kosin nefnd í málið og bar
hún fram tillögur í málinu, scm
fundurinn beindi til stjórnar félags-
ins til „athugunar og leiðbeiníng-
ar“. Munu þær tillögur i heild sinni
reifaðar í öðru bréfi. Jafnframt var
því beint lil stjórnarinnar undir um-
ræðunum, að hún skrifaði liéraðs-
læknum uin málið og gæfi þeim
leiðbeiningar um grunndrög til
samninga við sjúkrasamlög.
Nú hefur Tryggingarstofnun rík-
isins sent sjúkrasamlögunum, auk
fyrirmyndar til samþykktar fyrir
])au, einnig fyrirmynd til samninga
við héraðslækna og jafnframt hefur
Tryggingaryfirlæknirinn sent þeim
umburðarbréf, sem á meðal annars
að vera til leiðbeininga við samning-
ana, svo og ýmis önnur gögn, er
að starfseminni lúta.
LTt af þessu vill stjórn félagsins
ekki láta undir höfuð leggjast að
láta héraðslæknum í té ýmsar at-
lnigasemdir viðvikjandi áðurnefnd-
um samningsgrundvelli og bréfi yf-
irlæknisins, til leiðbeiningar og að-
vörunar.
Skal þá fyrst tekið fram að stjórn
Læknafélags íslands telur samn-
ingsgrundvöll þann sem Trygging-
arstofnunin hefur senl sjúkrasam-
lögunum yfirleitt aðgengilegan að
forminu til, þó með þeim breyting-
um, scm hér verður getið á eftir.
Er þá fyrst að nefna stærsta at-
riðið, en það er að hún telur ekki
rétt að héraðslæknar gefi nokkurn