Læknablaðið - 01.12.1957, Síða 7
L Æ K N A I! L A Ð I Ð
101
Onam M4ali^r!miion:
Xokkur orð iint ulcus vcsiíricúli
og ulcus cliiodeiii
Fyrii’ allmörgum árum lél
Frank Lahy þau orð falla, að
allar rökræður um ulcus pept-
icum ættu að hefjast með þeim
formála, að þar eð orsök J)essa
sjúkdóms sé ókunn, sé erfitt
að rökræða hvernig eigi að
lækna hann eða varast hann.
Sannleiksgildi þessara orða er
að mestu óhaggað enu þann
dag í dag. Fyrir rúmum 70 ár-
um tók a'thygli skurðlækna i
alvöru að beinast að sjúkdóm-
um í maga. Fvrstu aðgerðirn-
ar niunu hafa beinzt að krabba-
meininu, en fljótlega fylgdu á
eftir aðgerðir vegna sárs í maga
og skeifugörn. Aðgerðir þessar
beindust í fyrstu aðallega að
sárinu sjálfu, þ. e. a. s. því að
nema það á brott, svo og gegn
pylorus-stenosunni. Fyrstu
samgötun maga og mjógirnis
(gastro-entero-anastomosis)
gerði Wölfler 1881, og í janúar
1885 gerði Billroth fyrs’tu Bill-
roth II reseclio. Þá má einnig
nefna útvíkkunaraðgerðir á
pylorus, resectio segmentalis og
resectio cuneiformis, og ótal af-
1) Erindi flutt á fundi Læknafé-
lags íslands voriö 1953.
J)rigði af þessum aðgerðum.
— Gastro-entero-anastomosis
náði smám saman mikilli liylli,
aðallega þó á kostnað hinna
aðgerðanna. Hún virii’st í
fyrstu gefa mjög góðan árang-
ur, skurðdauði fremur lítill i
sambandi við hana, samanbor-
ið við miðhlutanir, og var því
gastro-entero-anastomosis not-
uð viðast hvar því nær ein-
göngu, þar til fvrir 15—20 ár-
um. Reynslan leiddi hins veg-
ar í ljós, að árangur af þessari
aðgerð var ekki eins góður og
vonazt hafði verið eftir. Sárin
vildu myndast aftur, þótl þau
gréru í fvrstu, og þar við J)ætí-
is’c iðulega myndun kantsárs
eða garnasárs, sem erfitt
reyndist að lækna. Margir
Jialda því fram, að varanlega
lækningu eftir gastro-entero-
anastomosis hafi fengið aðeins
fimmtíu af hundraði, og sum-
ir nefna enn lægri tölu. Því
hefur farið um þessa aðgerð
eins og svo margt anuað, sem
læknar hafa vænzt of mikils
af, að nú er hún fallin i ónáð
— öllu meiri ónáð en hún
sennilega á skilið.
Upp úr siðustu aldamótum