Læknablaðið - 01.12.1957, Qupperneq 27
LÆKNABLAÐIÐ
121
hvimleið sú breyting, sem varð
á röddinni, og þar sem konan
var á sjötugsaldri þótti rétt að
reyna stilboestrol líka. Var því
bætt við testosterongjöfina um
sinn. En þá sást bezt, hve karl-
liormónið bafði haldið æxlis-
vextinum í skefjum, því að nú
fór sem óðast að bera á nýjum
hnútum ! húð, og það sem verra
var — bjúgur tók að safnast
á handlegginn, og gerði það
konunni illkleift að halda
starfi sínu áfram, en hún Iiafði
fram til þes'sa unnið fulla skrif-
stofuvinnu. Endurtekin lesto-
steron-gjöf megnaði ekki að
eyða hjúgbólgunni í hand-
leggnum, og nú voru sem sagt
góð ráð dýr.
Þetta var skynsöm kona, sem
vafalaust hafði fvrir löngu
gert sér ljóst, hvert stefndi,
þólt hún léti það aldrei uppi
berum orðum. Henni var sagt,
að stundum fengist allmikill
bati með því að nema eggja-
stokka og nýrnahettur burtu,
og féllst hún þegar í stað á að
láía gera þá tilraun. Hún lagð-
ist því enn á ný inn á sjúkra-
hús og 24. febr. 1956 var gerð
á henni adrenalectomia vinsíra
jnegin. Skorið var inn á
tólfta rif og það tekið burtu.
Kom þá smágat á brjósthimn-
una, sem auðvel't reyndist að
loka, og kom þetta ekki að
sök, þar sem sjúklingurinn var
i intubationssvæfingu. Þegar
efra nýrnaskautið kom í. Ijós,
var losað um það og því ýtt dá-
lílið niður, en þá sást glandula
suprarenalis skammt fyrir
ofan. Ilún var losuð varlega og
tengur settar á æðar, sem úl
úr henni gengu, jafnóðum og
þær komu í ljós, og reyndist
í stuttu máli auðvelt að nema
hana burtu. Það, sem helzt
olli erfiðleikum var, að nýrna-
hettan er hálfgrautarkenndur
vefur og grotnar sundur und-
an vægasta tangartaki, svo að
naumast er urn nokkurt liald
á henni að ræða. Þegar sárinu
hafði verið lokað, var sjúkl-
ingnum velt úr hliðarlegunni á
hakið og báðir eggjastokkarn-
ir teknir gegnum stuttan mið-
línuskurð ofan við lífbeinið.
Sjúklingnum heilsaðist vel eft-
ir aðgerðina, en rúmri viku
síðar fór hún að kvarta allmik-
ið um þreytu og fékk þá cor-
tison 100 mg. á dag í vöðva.
Réttum hálfum mánuði ef’.ir
aðgerðina var svo hægri
nýrnahettan tekin á sama hátt
og hin fyrri, og revndist enginn
teljandi rnunur á þessum tveim
aðgerðum, nema hvað brjóst-
himnan slapp ósködduð í
seinna skiptið. Hægri nýrna-
heltan klúkir eins og lítill
koddi á vena cava og liggur ör-
stutt bláæð úr kirtlinum beint
inn í liana. Daginn fyrir þessa
seinni aðgerð fékk konan
þrisvar sinnum 100 mg. cortis-
on í vöðva og 1 klst. fyrir að-
gerð 100 mg. eða 4 töflur per