Læknablaðið - 01.12.1957, Side 78
skýrslum frá háskólanum í
Ilong Kong, sem ná yfir 20 ára
bil. A árunum frá því í janúar
1948 og fram í júní 1953 komu
þar fyrir 64 blöðrufóstur og
15 tilfelli af choriocarcinoma.
Blöðrufóstur eru það algeng
liér á landi að sérhver læknir
liefur séð eilt eða fleiri, liins
vegar veit ég' ekki til að chori-
onepithelioma hafi áður verið
greint með vefjarannsókn.
Vegna þess hve alvarlegur
sjúkdómur þetta er, þá hlýtur
hver læknir, sem rekst á
blöðrufóstur að láta sér koma
til hugar þennan möguleika.
Læknirinn stendur þá gagn-
vart þeirri spurningu: Hvað er
hæg't að gera til þess að finna
sem fvrst hvort um er að ræða
þennan illkynjaða æxlisvöxt,
og hvaða skilyrði höfum við
til þess að komast eftir því.
Eins og þegar segir þá vantar
mikið á í þekkingu lil þess að
geta fundið þennan alvarlega
sjúkdóm nógu snemma, burt
séð frá því að oft er erfitt að
ákveða, hvaða læknihgaaðferð
skuli beitt. Vefjarannsókn
kemur ekki að notum nema í
fáum tilíellum, og ekki nema
með því að fvlgjast mánuðum
saman með sjúklingnum. Þeir
l'æknar, sem mesta revnslu
hafa í þessu, telja ekki annars
kost en að híða og sjá hverju
fram vindur, og' hyrja ekki
neina róttæka meðferð fyrr en
greiningin sé fullkomlega viss,
sérstaklega þó ef um er að
ræða unga konu, sem í mörg-
um tilfellum á ekkert harn, eða
aðeins eitt harn.
Eitt af sérkennum þessa æxl-
is er hve mikið af liormónum
það framleiðir. Þessi æðahelgs-
vöxtur framleiðir chorion
gonadotropt hormon, sama
liormon og eðlilegur ehorion-
vefur framleiðir, en í margfalt
hærri skömmtum. Undanfarna
áratugi hafa verið gerðar mikl-
ar rannsóknir til þess að reyna
að mæla þessa hormonfram-
leiðslu, og þannig að reyna að
finna hvorj: æxlisvöxturinn sé
að verða illkynjaður. Nýlega
hcfur dr. Delfs hirt niðurstöð-
ur 'sínar eftir 12 ára rannsóknir
á þessu sviði. Alls liafði hún til
rannsókna 90 tilfelli af blöðru-
fóstrum og 12 tilfelli af chorio-
carcinoma. Hún fvlgdi sjúk-
lingunum eftir árum saman,
sumum allt upp i 8 ár. Grein-
ingar voru allar gerðar á hlóð-
vessa (serum chorionic gona-
dotropin). Þetta eru marg-
hrotnar rannsóknir, og fram-
kvæmdar á kvenkyns rot'tum,
sem ekki eru kynþroska, 21—23
daga gömlum og vega 35—40
grömm.
Þegar kona verður barnshaf-
andi eyk'st þessi hormonfram-
ieiðsla, og sú aukning heldur
áfram fyrstu þrjá mánuðina, en
þó sýna rannsóknir að hámark
næst þegar iiðnir eru um 60
dagar frá seinustu tiðum, og