Læknablaðið - 01.06.1960, Blaðsíða 42
72
LÆKNABLAÐIÐ
lcerfi Linnés. En um frekara
nám Bjarna í grasa. og náttúru-
fræði segir ævisaga hans:
„Heyrði hann bótanískar undir-
visanir hjá þeim merku mönn-
um; General Adjutant von
Osten, hvörr sérdeilis var sam-
ríndur Bjarna, géck út með lion-
um í urta-ferðir hvört sumar,
og kénndi honum þar hjá Phy-
sicam experimentalem, skrifuð-
ust þeir á æ síðan meðan lifðu;
Hólm frá Fjóni, sem siðar varð
Prófessor í Bótaník; Dr. Oeder,
sem byrjaði það mikla urta-
safnsverk, Flora Danica, en féck
hága útreið síðan; Dr. Ascanius
frægum Náttúru-vitríng, og nú
Prófessor við Lund á Skáney,
nam Bjarni undir eins af þess-
um hinar greinir náttúru-fræð-
innar;“ (34.—35. bls.). Þessi
von Osten mun vera Johan An-
dreas von Osten (1714—1767).
Hann var á Borchs kollegium
1739—42 og talinn hafa verið
læknir i Grænlandi 1742—44, og
deyr i Kaupmannahöfn og þá
talinn licent. med. Lítið meira
er vitað um hann eða nám hans
og þvi ekki hægt að vita, hvað
Bjarni kann að liafa lært af
honum.
Jörgen Tyge (Georg Tvcho)
Holm (1726—1759) tekur próf
í guðfræði 1746 við Hh., en fer
þá yfir í læknisfræði og er því
samferða Bjarna í náminu. Það
er Holm, sem þýðir yfirsetu-
kvennafræði Mesnard fyrir
Buchwald, og kemur sú þýðing
út 1749, og að undirlagi hans
er Holm veittur styrkur til náms
lijá Linné í Uppsölum 1750. Þar
verður Holm dr. med. 1757
(Prodromus floræ Danicæ) og
kemur þá aftur til Hafnar og
er 1759 gerður professor oeco-
nomiæ við hið nýstofnaða
Amphitheatrum oeconomico-
naturale, en deyr rétt á eftir.
Holm var mikilhæfur grasa-
fræðingur, og af honum hefur
Bjarni getað numið kerfi Linnés
á árunum 1757—59.
Georg Christian Oeder (1728
—1791) var Þjóðverji. Hann var
aðallega við nám hjá Haller í
Göttingen, og þar varð hann
dr. med. 1749. Þegar liinn nýi
urtagarður var gerður við Ama-
lienhorg 1752, var Oeder feng-
inn til að veita honum forstöðu,
eftir áhendingu Hallers í Göttin-
gen. Oeder mun hafa haft hug
á að verða prófessor við liáskól-
ann, en til þess þurfti hann að
vera dr.med. frá Hh., svo að
hann disputeraði við hann 1752
(Disp. de Irritabilitate), en mun
hafa verið stirður að tala latínu,
svo að guðfræðingur, sem þá var
nýorðinn stud. med., Chr. Friis
Rottböll, kvað hann svo ræki-
lega í kútinn, að prófessorar há-
skólans vildu ekki mæla með
honum sem prófessor. Engu að
síður var Oeder gerður að prof.
botan. við urtagarðinn 1751, og
1766 hóf liann útgáfu á Flora
Danica í myndum. Hin „bága
útreið“, sem ævisagan talar um,