Læknablaðið - 01.06.1960, Side 55
L Æ K N A B L A Ð I i)
73
mun lúta að doktorsvörninni, en
þar fyrir var Oeder mikilhæf-
ur maður, og nýjungar Linnés
þekkti liann og notaði. Það er
þó vafamál, hvort Bjarni hafi
notið mikillar tilsagnar hjá
Oeder, því að liann er á sifelld-
um vísindaleiðangrum um Dan-
mörku og Noreg á þeim árum,
er til greina koma (1757—60),
en urtagarðinn við Amalienborg
hefur Bjarni eflaust kynnt sér.
Peter Ascanius (1723—1803)
er fæddur í Noregi. Hann hóf
nám í Uppsölum, en ferðaðist
síðan víða um erlendis. Ingers-
lev (1873) telur hann dr. med.
en óvíst frá hvaða háskóla eða
hvenær, en Caröe hefur hann
ekki i læknatali sínu. Holstein
telur Ascanius meðal fjögurra
studiosi medicinæ, sem séu á
ferðalagi erlendis, í bréfi til Hh.
dags. 3. sept. 1756 (Norrie,
1934), Ascanius verður annar
hinna tveggja prófessora við
Amphitheatrum oeconomico-
naturale 1759). Þessum prófess-
orum er gert að halda tvo fyrir-
lestra á viku urn „oeconomica“
og „naturalia“, og á sumrin áttu
þeir að leiðheina stúdentum í
grasafræði. Árið 1771 varð As-
canius lector í Kóngsbergi og
1776 „berghauptmand“ norðan-
fjalls í Noregi þar til 1788, að
hann fær lausn frá embætti og
flyzt til Kaupmannahafnar, þar
sem hann andast (Ingerslev,
1873). En ég hef ekki getað
fundið neinar heimildir fyrir
því, að hann hafi verið prófessor
i Lundi (1799), eins og segir í
ævisögunni, og „frægan náttúru-
vitring“ mun hæpið að kalla
hann.
Af ofanrituðum upplýsingum
má telja liklegt, að beztu kenn-
arar Bjarna í almennri náttúru-
fræði liafi verið þeir Holm og
Ascanius, en vafasamt er, hversu
lialdgóð menntun hans var í
þessari grein, er hann hóf rann-
sóknai’ferð sína um ísland
(1752), því að þá hefur hann
mest húið að kennslu Buchwalds
og von Ostens, auk þess sem
hann liefur lesið sér til.
Þess hefur þegar verið getið,
að líffærafræði muni Buchwald
aðeins að óverulegu leyti hafa
kennt Bjarna, enda segir ævi-
saga lians þar um: „sérílagi upp-
fræddi Heuermann hann í ana-
tómískri og chirúrgískri vísi,
héldu þeir um hríð, vissa tíma
dags, samræður í þjóðversku-
og latínu-máli, og vóru nærsta
samríndir, svo að Bjarni var
lians opponens ordinarius, þá er
Heuermann gjörðist Doctor Me-
dicinæ“ (35. bls.).
Georg Heuermann var fædd-
ur 1723 (1722?) í Holstein.
Hann kom til Hafnar 1743, þar
sem hann gerðist nemandi Si-
monar Krygers í Theatrum ana-
tomico-chirurgicum og lauk þar
fyrra prófinu 1746, en flutti sig
þá til Buchwalds til að gerast
prosektor hjá honum. Heuer-
mann innritaðist í háskólann