Læknablaðið - 01.06.1960, Side 56
74
LÆKNABLAÐIÐ
1748 og varð dr. med. (de lingva
humana) árið eftir og var pro-
sektor og eiginlega staðgengill
Buchwalds við kennsluna þar til
1758. Þá fór Heuermann, vegna
þess að nemandi hans, Chr. Friis
Rottböll, var tekinn fram yfir
hann, sem professor designatus
af prófessorum læknadeildar-
innar, þeim Buchwald og Lod-
herg Friis, aðallega þar sem
Botthöll þótti slyngari i latínu
en Heuermann. Hann varð þá
medicus við herspítalann í Hol-
stein, en fluttist aftur til Hafnar
1762 eða 1763, og þar lézt hann
úr taugaveiki 1768, aðeins 45
ára að aldri.
Heuermann var harðdugleg-
ur maður, iðinn við líkskurði,
kvikskurði og kennslu og stór-
virkur rithöfundur. Hann samdi
lífeðlisfræði í 4 hindum (Pliysio-
logie, Kopenh. u. Leipz., 1751—
55), kennslubók í skurðaðgerð-
um í 3 bindum (Ahhandlung
der vornelnnsten chirurgischen
Operationen, Kopenh. 1754—
57) og „Vermischte Bemerkun-
gen und Untersuchungen der
ausiibenden Arztney Wissen-
schafft“, Kopenh. 1765—67, í 2
bindum. Við samningu lífeðlis-
fræðinnar og skurðaðgerðafræð-
innar hafði liann þann liátt á,
að hann lét nemendur sína
skrifa upp fyrirlestrana, sem
hann hélt á þýzku, en síðan fór
hann yfir þá og undirhjó lil
prentunar. Það má telja öruggt,
að Bjarni Pálsson hefur verið
einn af riturunum, því að meðal
ritgerða hans telur Sveinn Páls-
son í ævisögunni „Dr. Heuer-
manns Collegium practicum in
operationes chirurgicas 1750“.
Verk Heuermanns eru geysi-
mikil að vöxtum og bera þess
vott, að hann hefur verið mjög
víðlesinn. En það er ekki þetta,
sem gefur þeim gildi, heldur
hitt, liversu full þau eru af sjálf-
stæðum athugunum, frumleg og
live skynsamlega er valið milli
liinna ólíku kenninga, er þá voru
uppi. Þau bera þess auðsæ
merki, að Heuermann er fyrst
og fremst sjálfmenntaður mað-
ur, sem fer sínar eigin leiðir,
en er þó víðsýnn. Má það undr-
un sæta, þegar liaft er i huga,
að liann hefur aldrei út fyrir
Danmörku komið eða notið
góðra kennara.
Þvi miður lief ég ekki átt þess
kost að kynnast ritum Heuer-
manns af eigin raun, iieldur orð-
ið að fara eftir umsögnum ann-
arra og þá sérstaklega Norries,
sem hezt liefur kynnt sér ævi
Heuermanns og starf. Ég get
þess vegna ekki gert samanhurð
á skurðaðgerðum hans og þeim,
er Sveinn Pálsson telur í ævi-
sögunni, að Bjarni Pálsson hafi
gert, en þær eru: „Trepanatio
Cranii, Tracheoraphia, Exstir-
patio Cancri faciei, Amputatio
mammae cancrosae, Paracen-
tesis abdominis, Op. fistulae ani
completae, Castratio, Punctura
& Sectio hydrocelis, Exstirpatio