Læknablaðið - 01.06.1960, Side 70
88
LÆKNABLAÐIÐ
^sdimundur Idrellc
Um axlarmein
Inngangur.
Periarthritis humeroscapula-
ris mun hér notað sem safnlieiti
á hinum algengu axlarmeinum,
en aðaleinkenni þeirra eru verk-
ir og takmörkun hreyfinga í axl-
arlið. Uppruni er margþættur
og óviss og nafngiftir fjölmarg-
ar (peritendinitis calcarea, bur-
sitis, omarthritis, syndroma
Duplay o. s. frv.), alll eftir túlk-
un athugenda á því, hvað telja
beri höfuðeinkenni sjúkdóms-
ins. Frá greiningar-og lækninga-
sjónarmiði rennur þó þetta allt
saman í eina sjúkdómsheild.
Axlarmein eru mjög algeng.
M. a. má geta þess, að á geisla-
lækningadeild „Central“-sjúkra-
hússins í Halmstad í Svíþjóð
komu 357 slíkir sjúklingar til
geislameðferðar árið 1956, en á
3 mánuðum 1957—1958 101
sjúklingur. Um 100 þúsund í-
húar eru á svæði þvi, sem
sjúkrahúsið annast. Á sama
tíma leituðu rúml. liundrað
sjúklingar í viðbót lækninga
vegna axlarmeina, en fengu
aðra meðferð (hydrocortisone-
sprautun o.fl.). I tveimur sjúkl-
ingahópum, er lil meðferðar
komu á umræddu sjúkrahúsi
1956 og 1958 og' rannsakaðir
voru aftur, var hlutfallið milli
karla og kvenna 1:1,3 (17), en
það samsvarar vel fyrri rann-
sóknum á því efni (m. a. 9).
Þar eð hér er um að ræða
sjúkdóm, er veldur sjúldingum
verulegri fötlun og er algengur
og skiptar skoðanir ráða um or-
sakir, greiningu og meðferð,
munu hér rædd nokkur sjónar-
mið varðandi meinafræði, ein-
kenni og meðferð. Enn fremur
verður stuttlega gerð grein fyrir
árangri röntgenmeðferðar á-
samt virkri hreyfimeðferð.
t.
Starfræn líffærafræði
axlarliðsins.
Vefir og líffæri axlarinnar eru
þýðingarmiklar krossgötur
tauga og hlóðrásar til handar
og liandleggs og frá. Liðurinn
er einnig hinn lireyfanlegasti
allra liða. Næring og taugaskip-
un virðast vera góðar fram á
miðjan aldur, en athyglisvert er,
með lillili til verkefnis þess, er
liér ræðir, að smáæðanæringin
til sinanna á svæðinu versnar
áberandi, eftir því sem menn
eldast (2, 3, 6).
Liðpokinn (caps. articularis)
er við eðlilegar kringumstæður
nokkuð teygjanlegur. Að fram-