Læknablaðið - 01.06.1963, Page 42
LÆKNABLAÐIÐ
66
t
Sigurmundur Sigurðsson
fyrrverandi héraðslækiiir.
In memoriam.
Fæddur 24. nóv. 1877.
Sigurmundur lieitinn var bor-
inn og barnfæddur Reykviking-
ur, en ættir sínar rakti hann
austur i Hreppa.
Hann varð stúdent árið 1899,
og sama sumariS sigldi hann til
Kaupmannahafnar og innritað-
isl í læknadeildina þar um
haustið. Næsta vor tók hann
heimspekipróf, en hvarf að því
loknu heini til fslands og sctt-
ist í Læknaskólann. Embællis-
próf tók liann í jan. 1907, en
hélt þá til Hafnar til framhalds-
náms. Eftir það gerðist hann
staðgöngumaður héraðslæknis-
ins í Þingeyrarhéraði um sinn.
Síðan var liann skipaður héraðs-
læknir á Breiðamýri árið 1908
og var þar til 1925, en fékk þá
Grímsneshérað og eftir það Flat-
eyjarhérað á Breiðafirði, þar til
hann fékk Hólshérað skönunu
eftir 1930. Þar varhann til 1946,
er liann hætti. Hann fluttist
hingað suður fyrir nokkrum ár-
um, er sjúkdómur sá, er leiddi
hann til dauða, gerði fyrst vart
við sig. Síðustu árin dvaldist
Iiann að Sólvangi.
Héraðslæknar úli á landi hafa
Dáinn 14. nóv. 1962.
margir átt uppruna sinn að telja
tit margbýlis og lcaupstaða. Einn
þeirra var Sigurmundur heitinn.
Hann var læknir um nálega 40
ára skeið víðs vegar úti um land.
Sum þessara liéraða voru víð-
lend og torsótt yfirferðar, og
fararskjótar oft á þeim árum
harðgengir hestar og úthúnaður
í ferðalög ekki sambærilegur við
það, sem nú gerist. Sigurmund-