Læknablaðið - 01.06.1963, Page 46
70
LÆKNABLAÐIÐ
samvinna milli taugasjúkdóma-
og taugaskurðlækningadeilda
annars vegar og röntgendeilda
liins vegar um neuroradiolog-
iska starfsemi, eins og' aðra
röntgengreiningu. Þar eru sér-
hæfðir röntgenfræðingar, sem
hafa tæknilega aðstöðu til að
framkvæma þær aðgerðir og
skoðanir, sem æskilegar og
nauðsynlegar eru, þ. e. allar þær
rannsóknir, sem áður voru
taldar.
Við röntgendeild Landspítal-
ans er aðstaða hins vegar enn
ófullkomin til að gera sérhæfð-
ar röntgenrannsóknir, en sökum
hrýnnar nauðsynjar hefur verið
rekin talsverð neuroradiologisk
starfsemi siðasta liálft annað ár-
ið við erfið skilyrði, en árang-
ur orðið furðugóður, bæði
tæknilega og kliniskt. Rann-
sóknir þær, sem gerðar hafa
verið, iiafa nær eingöngu verið
æðarannsóknir og loftheila-
rannsóknir.
Rannsóknartœkni.
Angiograjia i arteria carotis:
Sjúklingur fær lyf, eins og fyrir
minni háttar skurðaðgerð í stað-
deyfingu. Honum er komið fyrir
liggjandi á bakinu með höfuðið
á sérstöku höfuðrannsóknarborði
(Lysholmsborði), sem hægt er að
sveigja til á mismunandi hátt eft-
ir þörfum. Á borðplötunni hefur
verið komið fyrir kassa með þrem-
ur filmum, sem hægt er að draga
út, án þess að sjúklingurinn eða
kassinn haggist (mynd 1). Sams
konar kassa með tveimur filmum
er komið fyrir undir borðplötunni
og höfði sjúklingsins.
Mynd 1. Lysholms höfuðrannsóknarborð; röntgenlampinn á boga; upp-
sett fyrir hliðarmyndatöku við arteriografia cerebralis.