Læknablaðið - 01.06.1963, Qupperneq 60
80
LÆKNABLAÐIÐ
FII^DARGERÐ AÐALFUIV DAII
L. R. 1963
Aðalfundur L. R. var haldinn
miðvikudaginn 13. marz 1963 í
fvrstu kennslustofu Háskólans
og liófst kl. 20.30.
Formaður setti fundinn, lýsti
hann lögmætan og stjórnaði
honum.
Fundargerð siðasta fundar
var lesin og samþykkt með smá-
vægilegri athugasemd.
Þetta gerðist:
I.
Formaður skýrði frá störfum
félagsins á árinu, og fer skýrsla
hans hér á eftir.
ÁRSSKÝRSLA LÆKNA-
FÉLAGS REYKJAVÍKUR
1962—1963.
Félagatal.
í upphafi starfsárs var tala
félagsmanna 248, 16 nýir félags-
menn Ijættust við á árinu. Tveir
læknar létust á árinu. Félaga-
tala í lok starfsárs var 262, þar
af 165 gjaldskyldir, og hafa þeir
greill gjöld sín að undantekn-
um einum.
Fundahöld.
Haldnir voru 11 félagsfundir,
þar af fjórir aukafundir. Tveir
aukafundir voru haldnir um fé-
lagsmál eingöngu. 18 erindi
voru flutt, þar af fjögur af er-
lendum læknum.
Stjórn og meðstjórn héldu 11
fundi á árinu, og voru tekin
til meðferðar um 40 mál.
Skrifstofan.
Eins og að undanförnu var
skrifstofa félagsins rekin í sam-
vinnu við Verkfræðingafélag ís-
lands að Brautarholti 20. Starf-
semi skrifstofunnar var með
svipuðum hætti og á sl. ári. Til
viðbótar fyrri störfum tók skrif-
stofan að sér skipulagningu svo
kallaðra neyðarvakta í sam-
ræmi við ákvæði síðustu samn-
inga félagsins við Sjúkrasamlag
Reykjavíkur. — Upplýsinga-
þjónustu til ísl. lækna erlendis,
sem tekin var upp á sl. ári, var
haldið áfram á árinu. Skrifstof-
an annast innritun fundargerða,
innheimtu árgjalda, reiknings-
hald og daglegar fjárreiður
Læknahlaðsins og útsendingu
þess, enn fremur sanmingu vakl-
lista, félagatals, fundarboðanir
og útgáfu símaskrár lækna;
kom 5. útgáfa hennar út á ár-
inu, og er 6. útgáfa liennar i
prentun og væntanleg um næstu
mánaðamót.
Störf nefnda:
Samninganefnd heimilislækna.
Nefndina skipuðu Eggert
Steinþórsson formaður, Bergþór
J