Læknablaðið - 01.06.1963, Page 64
82
LÆKNABLAÐIÐ
ar breytingar á veikindafríum
og fjarvistarreglum lækna.
Þá voru settar reglur um sér-
staka læknanefnd. Á hún að
fjalla um flokkun lækna í sér-
fræðiliópa og önnur fræðileg at-
riði, er samninginn varða. 1
þessa nefnd hafa verið skipaðir
af hálfu Læknafélags Reykja-
víkur Theodór Skúlason, fvrir
Sjúkrasamlag Reykjavíkur Páll
Sigurðsson og tilnefndur af
landlækni Eggert Steinþórsson.
Þá felur samningurinn í sér
hækkun á orlofsfé og auknum
persónulegum gjöldum í trygg-
ingasjóð lækna, en auk þess er
gert ráð fyrir, að í tryggingasjóð
renni númeragreiðslur fyrir J)á,
sem ekki eru á skrá hjá lækn-
um. Er gert ráð fyrir, að það
fé nemi, eins og skrásetningum
fólks var háttað á sl. ári, um
1 millj. kr.
Þá er enn eitt nýmæli í samn-
ingunum, en það er um náms-
sjóð lækna. Skulu 3,5% af brúttó-
greiðslum frá S. R. renna í hann.
Er í samningnum gert ráð fvrir,
að fyrst um sinn verði sjóður
þessi í uinsjá S. R. og læknar
hljóti styrk til framhaldsnáms
erlendis úr honum, þó eigi oftar
en á þriggja ára fresti. Reglur
fyrir sjóð þennan hafa ekki enn
verið samdar, en til þess er æll-
azt, að Læknafélag Reykjavíkur
tilnefni þar einn mann, Sjúkra-
samlag Reylcjavíkur einn og
Læknafélag íslands einn. Einnig
er ætlazt til, að greiðslur í sjóð
þennan verði 3% af greiðslu
samlagsins til sérfræðinga. Eftir
lauslegri áætlun má gera ráð
fyrir, að sjóðurinn á samlags-
svæði Læknafélags Revkjavikur
verði um 5—600 þús. kr. á ári
og verði nálega 2 millj., þegar
byrjað verður að úthluta úr
honum. Gera má ráð fyrir, að
siglingasjóðir allra lækna á
landinu verði um 4 millj., þegar
úthlutun hefst, og verði þá út-
hlutað um 1,3 millj. kr. árlega
í siglingastyrki. Eftir það mun
sjóðurinn að sjálfsögðu mjög
lítið vaxa, en að jafnaði ráða
vfir nálega 4 millj. kr., og verð-
ur* að sjálfsögðu slefnt að því,
að þetta fé verði fremur ávaxt-
að hjá læknum en öðrum, eftir
því sem þörf þeirra krefst.
Hér hefur aðeins verið drep-
ið á nokkur af þeim helztu ný-
mælum, sem er að finna í hin-
um nýju samningum, sem lokið
var við í marz 1962. Það skal
tekiðfram, að vegna kauphækk-
ana og verðlagsbreytinga, sem
urðu á sl. sumri og ekki var
tekið með, j)egar samningarnir
voru gerðir, ákvað stjórn félags-
ins að segja samningum þess-
um upp frá 1. apríl n.k.
Samninganefnd heimilislækna
og samninganefnd sérfræðinga
hefur verið falið að rita hréf til
stjórnar Sjúkrasamlagsins og
tilkynna því, að læknar óski eft-
ir, að samningar þessir verði
framlengdir til 1. október með
þeirri breytingu þó, að í þá komi