Læknablaðið - 01.06.1963, Side 66
84
LÆKNABLAÐIÐ
sérfræðingum er greitt skv.
sömu gjaldskrá með 10,5% af-
slætti. Þetta þýddi mjög veru-
lega kjarabót umfram þá, sem
fengin var með bráðabirgðasam-
komulaginu fyrir þá lækna, sem
hafa færri en 150 númer. Auk
þessa fengu ákveðnir sérfræð-
ingahópar verulega leiðréttingu
sinna mála umfram það, sem
að ofan er talið, svo sem sér-
fræðingar i gigtlækningum og
sérfræðingar, er eingöngu
stunda læknisstörf í sérgrein
sinni við störf á sjúkrahúsum,
þar sem ekki er samið um lækn-
isþjónustu við sjúkrahúsið
sjálft.
Annað merkasta nýmælið í
hinum nýju samningum var
það, að S. R. tekur að sér að
greiða framlag í nýjan sjóð,
námssjóð lækna, sem svarar
3,5% af greiðslum fyrir unnin
sérfræðistörf. Óliætt er að full-
yrða, að samningur þessi fól i
sér miklar lagfæringar á kjör-
um sérfræðinga, enda náðist í
sumum tilvikum það lágmark,
sem sett hafði verið fram í upp-
hafi samninga í sept. 1961. Virt-
ust flestir ánægðir með sérfræð-
ingasanminginn, enda enginn
sagt sig undan honurn til þessa.
Mestar kjarahætur fengu þeir
sérfræðingar, er minnst auka-
störf (heimilislæknisstörf)
stunda, enda í fullu samræmi
við markmið L. R., þ. e. full-
komnari verkaskiptingu og hætt
starfsskilyrði.
Síðan samningurinn var und-
irritaður, hafa orðið nokkrar
hækkanir á kostnaði lækna. Var
því eigi hjá því komizt að segja
samningunum upp frá og með
1. apríl 1963. Eru samningavið-
ræður um það bil að hefjast.
Gjaldskrárnefnd.
Nefndina skipa Magnús Ólafs-
son formaður, Þórarinn Guðna-
son og Eggert Steinþórsson.
Ákveðið var að liefja undirbún-
ing að nýrri gjaldskrá L. R. á
árinu. Var öllum sérfræðinga-
félögum skrifað bréf og þau
beðin að gera grein fyrir þeiin
hreytingum, er þau kynnu að
óska eftir, að gerðar yrðu á
gjaldskránni. Hefur síðan verið
unnið að því að samræma tillög-
ur félaganna, og er undirbún-
ingur gjaldskrárinnar nú það
langt kominn, að hún ætti að
vera tilbúin til að leggjast fyrir
fund í L. R. í apríllok eða byrj-
un maí n.k.
Vottorðanefnd.
Nefndina skipaRjarni Konráðs-
son, Guðmundur Benediktsson
og Haukur Kristjánsson. Nefnd-
in samdi nýja og ýtarlegri gjald
skráum læknisvottorð,og verður
sá kafli felldur inn í nýju verð-
skrá félagsins. Þá hefur nefndin
lilutazt til um, að flest eða öli
vottorðaeyðuhlöð, sem læknar
þurfa á að halda, eru nú til reiðu
á skrifstofu félagsins, og gela
læknar nú fengið þau þar.