Læknablaðið - 01.06.1963, Síða 69
LÆKNABLAÐIÐ
87
I. aðstoðarlæknar 22.—23. fl.
mán.laun kr. 18.282.00 til kr.
20.328.00.
II. aðstoðarlæknar 20. fl. mán.-
laun kr. 15.510.00 til kr. 16.-
368.00.
Kandidatar 16. fl. mán.laun kr.
10.692.00.
Hámarksvinnutími á viku 36
klst., þar af lágmark 6 klst.áætl-
aðar til lesturs fagrita.
Til viðhaldsmenntunar eigi
allir fastráðnir læknar kost á
þriggja mánaða dvöl fjórða
livert ár við sjúkrahús og rann-
sóknarstofnanir erlendis sér að
kostnaðarlausu.
Launanefnd liefur starfað
með og verið ráðgefandi til
Læknafélags íslands um tillög-
ur um greiðslur fvrir vakta-
vinnu og fvrirkomulag hennar.
Ý m i s m á I :
Skylduvinna kandidata
í héruðum.
I apríl 1962 fóru læknakandi-
datar fram á það við stjórn L.
IL, að félagið veitti þeim stuðn-
ing í að fá afnumda þá vinnu-
skyldu, sem undanfarið hefur
tíðkazl, að læknakandidatar
væru sex mánuði við skyldu-
störf úti í héruðum. Ástæðan
var sú, að alhnikill fjöldi kandi-
data heið nú eftir að komast til
starfa við þessa skylduvinnu, en
engin viðunandi jdáss voru fyr-
ir hendi. Á fundi í Læknafélagi
Reykjavíkur 9. maí 1962 var
gerð eftirfarandi fundarsam-
samþykkt:
„Fundur í L. R., haldinn hinn 9/5
1962, leggur til, að héraðsskylda
kandidata verði lögð niður. Fundur-
inn leggur áherzlu á eftirfarandi:
1. Það samræmist tæplega reglum
í lýðræðisþjóðfélagi að þvinga
menn til starfa.
2. Það hefur komið í ljós, að hér-
aðsskylda kandidata hefur ekki
og mun ekki leysa úr lækna-
skorti dreifbýlisins á viðunandi
hátt.
Fundurinn skírskotar einnig til
tillögu um sama efni, sem samþykkt
var á fundi L. R. 8. nóv. 1939.
Stjórn L. R.“
4. júní 1962 var heilhrigðis-
málaráðherra ritað bréf og send
fundarsamþykkt þessi ásamt
meðfylgjandi greinargerð:
„Greinargerö.
Ofangreind tillaga var samþykkt
samhljóða á almennum læknafundi
9. maí 1962. Til skýringar á efni
samþykktarinnar viljum við leyfa
okkur að benda á eftirfarandi:
Ákvæði um skylduvinnu lækna-
kandidata hafa verið I framkvæmd
nær 20 ár. Reynslan hefur sýnt, að
þessi skipan mála hefur ekki á
neinn viðunandi hátt ráðið bót á
vandkvæðum læknisþjónustunnar i
dreifbýlinu og engar líkur eru til
þess, að svo verði í framtíðinni.
Skylduvinnan hefur aðeins opnað
leiðir til mjög óheillavænlegra
bráðabirgðaráðstafana, sem í raun-
inni hafa komið í veg fyrir, að gerð-
ar hafi verið þær endurbætur á
starfsaðstöðu og kjörum héraðs-
lækna, sem nauðsynlegar eru tit
þess að koma þessum málum i var-
anlegt og viðunandi horf. Þær breyt-
ingar, sem gerðar voru á lækna-
skipunarlögunum á síðasta Alþingi,