Læknablaðið - 01.06.1963, Page 79
LÆKNABLAÐIÐ
95
llrjó§tmyiid ai‘
tlr. IKirni Sigurðssjni
;ti‘lijjú|»ii<>
Sunnudaginn 3. marz sl. var
í Tilraunastöð Háskólans í
meinafræði að Keldum afhjúp-
uð brjóstmynd af dr. Birni Sig-
urðssyni, en á þeim degi hefði
liann orðið fimmtugur. Núver-
andi forsjármenn tilraunastöðv-
arinnar létu gera myndina og
heiðruðu á þann liátt minningu
dr. Björns, en hann var sem
kunnugt er fyrsti forstöðumað-
ur stofnunarinnar.
Páll A. Pálsson yfirdýralækn-
ir, settur forstöðumaður lil-
raunastöðvarinnar, afhenti
brjóstmyndina með ræðu, þar
sem bann rakti starfsferil dr.
Björns, þátt hans í stofnun og
byggingu tilraunastöðvarinnar
og hin ótrúlega miklu afköst
lians á sviði meinafræði og
veirurannsókna.
Kona dr. Björns, frú Una Jó-
hannesdóttir, þakkaði og af-
henti stofnuninni að gjöf mál-
verk frá sér og börnum þeirra,
gert af Jóhanni Briem.
Við athöfn þessa voru við-
staddir menntamálaráðberra,
fjölskylda dr. Björns, nánustu
ættingjar og samstarfsmenn.
Brjóstmyndina gerði Sigur-
jón Ólafsson myndhöggvari.
Lausar yfirlæknastöður
Atliygli skal vakin á auglýs-
ingu frá Sjúkrahúsnefnd
Beykjavíkur á öðrum stað i
blaðinu um lausar yfirlæknis-
stöður við handlæknis- og rönl-
gendeild Borgarsjúkrahússins í
Fossvogi.
Laus læknisstaða
í Danmörku
Þess liefur verið beiðzt, að
Læknablaðið birti eftirfarandi
tilkynningu um lausa læknis-
stöðu við Statens Hörecentral i
Odense, Danmark.
„Odense Amts og Bys Svge-
lius.
Til Slatens Hörecentral i
Odense söges en 2. reservelæge
til 1.10. eller senere. Stillingen
er vel egnet for yngre otolog
eller ung Íæge, der har pábe-
gyndt en otologisk uddannelse
eller agter at blive otolog, og
som kunne önske sig uddan-
nelse i audiologi. Gage p.t.
2102.33 d. kr. mánedligt. Moder-
ne regulativmæssig lejlighed
stilles til rádighed mod ca. 200
kr. mánedligt. Ansögninger
sendes til overlæge, dr. med.
C. Röjskjær, snarest."
Heiðursfélagakjör
Hinn 30. apríl sl., á aðalfundi
Félags íslenzlcra meinafræð-
inga, var Níels Dungal prófess-
or kjörinn heiðursfélagi.