Læknablaðið - 01.09.1963, Side 31
LÆKNABLAÐIÐ
107
sagnir lækna á störfumviðsjúkra-
hús og skyldar stofnanir og telur
ríkisstjórnin úrskurð Félagsdóms
nauðsynlega forsendu fyrir fram-
haldstilraunum til lausnar á þessu
máli.
Eru það eindregin tilmæli ríkis-
stjórnarinnar, sem hér með er
beint til yðar, að þér þrátt fyrir
uppsögn í starfi yðar, gegnið þvi
áfram, meðan Félagsdómur fjall-
ar um framangreint mál, og mun
rikisstjórnin af sinni hálfu greiða
fyrir því, að sá úrskurður fáist
eem fyrst.
F. h. r.
Baldur Möller."
Málið var rætt allýtarlega á Al-
þingi þann 31. okt., og var skýrt
frá þeim umræðum í dagblöðum.
Á miðnætti 31. okt. hættu þeir
læknar störfum, er sagt höfðu upp.
Næstu daga var mikið ritað um
málið í dagblöðum og þann 3. nóv.
birtist eftirfarandi fréttatilkynning
frá rikisstjórninni:
Launagreiðslur til lœkna úr ríkis-
sjóSi. (Fréttatilk. frá ríkisstj.).
,,1 greinargerð frá Læknafélagi
Reykjavikur varðandi svonefnda
læknadeilu eru gefnar nokkrar upp-
lýsingar varðandi launakjör lækna
þeirra, sem i hlut eiga. Þykir af
þessu tilefni rétt að skýra frá því,
hverju námu í októbermánuði
greiðslur úr ríkissjóði til lækna
þeirra, sem hurfu frá störfum sín-
um 1. þ. m. Eru þá taldar með aðr-
ar greiðslur vegna starfa þeirra til
viðbótar föstum launum fyrir aðal-
starfið. Mismunur á greiðslum til
einstakra lækna með sama starfs-
hætti stafar af mismunandi mikl-
um aukastörfum, en allflestir fá
þeir greiðslur fyrir gæzluvaktir og
nokkrir fyrir kennslu við Háskól-
ann. Þessar greiðslur eru taldar með
i eftirgreindum fjárhæðum, svo og
bilastyrkur 1000.00 krónur til sumra,
en 750.00 krónur til annarra.
6 aðstoðaryfirlæknar (eða í sam-
svarandi störfum) fengu þessar
greiðslur í októbermánuði:
1. kr. 17.849.00
2. — 16.903.10
3. — 16.163.10
4. — 12.592.90
5. — 20.403.10
6. — 18.509.00
7 deildarlæknar fengu þessar
greiðslur í októbermánuði:
1. kr. 14.580.20
2. — 12.469.50
3. — 11.236.20
4. — 14.580.20
5. — 12.469.50
6. — 10.002.90
7. — 16.127.80
12 aðstoðarlæknar fengu þessar
greiðslur í októbermánuði:
1. kr. 10.419.00
2. — 10.246.30
3. — 10.419.00
4. — 10.073.60
5. — 10.246.30
6. — 9.814.60
7. — 9.814.60
8. — 11.674.60
9. — 10.246.30
10. — 8.519.60
11. — 8.519.60
12. — 8.864.90
Þess ber að geta, að ofangreind-
ar tölur segja ekki til um þær tekj-
ur læknanna, sem þeir hafa aflað
sér með störfum fyrir aðra en ríkið.
Þá þykir rétt að taka fram, að
í viðræðum þeim, sem stóðu fram
undir miðjan október s.L, þegar ieit-
azt var við að finna einhverja bráða-
birgðalausn á þessum vanda, er ekki
kunnugt, að lægra boð hafi komið
frá læknum en um, að þeim yrði
hverjum greiddar 14.000.00 á mán-
uði frá 1. nóvember 1962 til viðbót-
ar ofangreindum greiðslum."