Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.1965, Page 28

Læknablaðið - 01.04.1965, Page 28
56 LÆKN ABLAÐIÐ og útfellingar slíkra salta í vef- ina, sem veldur kemískum dauða. B. Nýrnaeinkenni. 1) Minnkaður concentra- tions hæfileiki 2) Polyuria 3) Polydypsia 4) Ctfelling kalksalta: nephrolithiasis nephrocalcinosis 5) Colic 6) Hematuria 7) Bakverkur 8) Pyelonephritis 9) Nýrnabilun. Það blasir strax við augum, þegar þessi skrá er athuguð, að einkennin eru harla laus við að vera sérkennandi, því að öll lcoma þau fyrir i nýrnasjúlc- dómum af öðrum toga spunn- um. Samt er staðreyndin sú, að steineinkenni ýmiss konar eru þau einkenni, sem reka 65— 80% sjúklinga með hvperpara- thyreoidismus á læknisfund. Pyelonephritis og nýrnabilun eru jafntíðir fylgikvillar para- thyreoid steinsjúkdóms og í steinsjúkdómum af öðrum upp- runa, og eru það þessar afleið- ingar hans sérstaklega, sem sjúldingur með hyperparathy- reoidismus deyr úr, ef hann fer ekki til læknis eða sjúkdómur- inn er greindur of seint. Og til þess að ljúka lýsing- unni skal bent á helztu ein- kenni hyperparathyreoid bein- sjúkdóms. C. Beina-einkenni. 1) Osteoporosis 2) Beincystur 3) Epulis 4) Osteitis fibrosa cystica. Á skrána er eingöngu sett það, sem sjá má á röntgenmynd. Hin suhjectivu einkenni eru svo margvísleg, að skrá vfir þau yrði allt of löng, og nægir að geta þess, að þau eru allt frá því að vera ekki nein upp í algera kröm vegna samanfalls fleiri hryggjarliða eða rifja við þá áreynslu eina að vera til, þ. e. að vera uppréttur og anda. „Gikt“ í alls konar myndum er þó algengasta kvörtunin vegna beinsjúkdómsins. Osteoporosis sést ekki á rönt- genmynd, fyrr en beinið er liúið að missa helming þéttni sinnar, og er þvi röntgenskoðun gagns- lítil til greiningar sjúkdómsins á byrjunarstigi, en þar sem hann hefur jafnan staðið lengi, þegar læknis er leitað, er rétt að nota röntgen, enda leiðir það einhver þessara einkenna í ljós í 70% tilfella. Staðirnir, þar sem beinbreyt- ingar koma helzt í Ijós, eru: a) handarbein: osteoporosis, subcortical erosinir eða cystur; b) viðbein: staðbundin osteo- porosis í yzta þriðjungi þess; c) höfuðkúpa: osteoporosis, sem ýmist er sögð hafa útlit

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.