Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.1965, Page 76

Læknablaðið - 01.04.1965, Page 76
92 LÆKNABLAÐIÐ ekrur, en það er minna en 11% af þurrlendi jarðar. Margir sérfræðingar hafa á- ætlað ræktanlegt land allt að 19.000 milljónum ekra. Ef þetta land væri eins vel ræktað og Holland, gæti það framfleytt 28 þús. millj. manna á hollenzk- um dagskömmtum, en á þessu sama landsvæði væri hægt að framfleyta þrisvar til fjórum sinnum fleiri Japönum en þeir eru nú. En mestu möguleikarnir fel- ast þó ekki í svo mikilli út- færslu eða aukningu ræktanlegs lands, heldur í aukinni og hættri áburðarnotkun. Ein lest af köfnunarefni jafn- gildir 14 ekrum al' góðu rækt- unarlandi. Með því að evða 430 krónum til áburðarkaupa á ekru, mundi vera liægt að tvö- falda uppskeruna víða í þró- unarlöndunum. Sú uppskeru- aukning, sem þannig fengist, mundi samsvara 750 milljón nýjum ekrum ræktunarlands, eða stærra landsvæði en svarar lil allrar Norður-Ameríku. Enn er eftir að nefna fjölda atriða, sem ætla má að komi við sögu landbúnaðarins í ná- inni framtíð, svo sem ný snefil- efni, bætt kynblöndun búfjár, bælt heilbrigði búfjár og jurta meðal annars með nýjum lyfj- um og aðferðum til að eyða meindýrum. Má t. d. fullyrða, að víða í hinum vanþróuðu löndum tapist um fjórðungur allrar uppskerunnar á leiðinni til neytenda vegna sjúlcdóma og meindýra. Þá má nefna nýjar geymsluaðferðir, t. d. með geisl- unum. Veðurstjórn, sem fólgin er í því að græta skýin og fram- leiðslu fersks valns úr sjó til vökvunar og áveitufram- kvæmda, getur liaft stórkost- lega þýðingu, þar sem þurrkar trufla nú mjög alla ræktun. Hér að ofan höfum við þó aðeins rætt um vanahundna matvælaframleiðsiu, og má af þessu sjá, hversu miklir mögu- leikar þar eru enn ónotaðir. Ég held þó, að við, sem nú lif- um, eigum eftir að sjá nýjar framleiðsluaðferðir leysa þær gömlu af hólmi, en þær eru hvorki svo mjög komnar undir jarðvegi né loftslagi eins og gömlu aðferðirnar. Ödýrar fitusýrur og önnur kolvetnasambönd til manneldis verður brátt hægt að vinna úr jarðolíum án mikils tilkostn- aðar. Er allt úllit fyrir, að kjarn- orkan leysi jarðolíuna brátt af hólmi sem eldsneyti, en jarð- olían umbreytt verði þá aðeins notuð til manneldis og skepnu- fóðurs. Þá er miklu auðveldara að nota blaðgrænuframleiðslu (photo-synthesis) með þörung- um en æðri plöntum. Má með því móti framleiða nægilegt fæði handa einum manni á ein-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.