Læknablaðið - 01.04.1965, Blaðsíða 76
92
LÆKNABLAÐIÐ
ekrur, en það er minna en 11%
af þurrlendi jarðar.
Margir sérfræðingar hafa á-
ætlað ræktanlegt land allt að
19.000 milljónum ekra. Ef þetta
land væri eins vel ræktað og
Holland, gæti það framfleytt 28
þús. millj. manna á hollenzk-
um dagskömmtum, en á þessu
sama landsvæði væri hægt að
framfleyta þrisvar til fjórum
sinnum fleiri Japönum en þeir
eru nú.
En mestu möguleikarnir fel-
ast þó ekki í svo mikilli út-
færslu eða aukningu ræktanlegs
lands, heldur í aukinni og hættri
áburðarnotkun.
Ein lest af köfnunarefni jafn-
gildir 14 ekrum al' góðu rækt-
unarlandi. Með því að evða 430
krónum til áburðarkaupa á
ekru, mundi vera liægt að tvö-
falda uppskeruna víða í þró-
unarlöndunum. Sú uppskeru-
aukning, sem þannig fengist,
mundi samsvara 750 milljón
nýjum ekrum ræktunarlands,
eða stærra landsvæði en svarar
lil allrar Norður-Ameríku.
Enn er eftir að nefna fjölda
atriða, sem ætla má að komi
við sögu landbúnaðarins í ná-
inni framtíð, svo sem ný snefil-
efni, bætt kynblöndun búfjár,
bælt heilbrigði búfjár og jurta
meðal annars með nýjum lyfj-
um og aðferðum til að eyða
meindýrum. Má t. d. fullyrða,
að víða í hinum vanþróuðu
löndum tapist um fjórðungur
allrar uppskerunnar á leiðinni
til neytenda vegna sjúlcdóma og
meindýra. Þá má nefna nýjar
geymsluaðferðir, t. d. með geisl-
unum. Veðurstjórn, sem fólgin
er í því að græta skýin og fram-
leiðslu fersks valns úr sjó til
vökvunar og áveitufram-
kvæmda, getur liaft stórkost-
lega þýðingu, þar sem þurrkar
trufla nú mjög alla ræktun.
Hér að ofan höfum við þó
aðeins rætt um vanahundna
matvælaframleiðsiu, og má af
þessu sjá, hversu miklir mögu-
leikar þar eru enn ónotaðir.
Ég held þó, að við, sem nú lif-
um, eigum eftir að sjá nýjar
framleiðsluaðferðir leysa þær
gömlu af hólmi, en þær eru
hvorki svo mjög komnar undir
jarðvegi né loftslagi eins og
gömlu aðferðirnar.
Ödýrar fitusýrur og önnur
kolvetnasambönd til manneldis
verður brátt hægt að vinna úr
jarðolíum án mikils tilkostn-
aðar. Er allt úllit fyrir, að kjarn-
orkan leysi jarðolíuna brátt af
hólmi sem eldsneyti, en jarð-
olían umbreytt verði þá aðeins
notuð til manneldis og skepnu-
fóðurs.
Þá er miklu auðveldara
að nota blaðgrænuframleiðslu
(photo-synthesis) með þörung-
um en æðri plöntum. Má með
því móti framleiða nægilegt
fæði handa einum manni á ein-