Læknablaðið - 01.08.1965, Qupperneq 42
68
LÆKN ABLAÐIÐ
og almennum mannréttindum
bæði sjúklinga og lækna, eins
og brezka kerfið gerir, þótt
formið sé annað.
Niðurstaða. Brýna nauðsyn
ber til að tengja alla bæfa lækna
spitölunum og rjúfa þannig ein-
angrun lækna, bæta menntun
þeirra og um leið að l)æta þjón-
ustuna við þá sjúku með því
að nýta betur sérþekkinguna.
Öll áðurnefnd kerfi má liæglega
reka samtímis, jafnvel á sama
sjúkrabúsi, og láta þau þannig
sanna tilverurétt sinn.
Um leið verði framhaldsnám-
ið endurskipulagt og allir meiri
báttar spítalar innlimaðir í
kennslukerfið og þess krafizt,
að þeir fullnægi einhverjum
lágmarksskilyrðum.
Nauðsynlegar hliðarráðstafanir.
1. Amlíúlant læknisstörf á
sjúkrahúsum verði takmörk-
uð við vísinda- og kennslu-
þarfir og óhjákvæmilegt eft-
irlit með sjúklingum siðar
og við þær rannsóknir og
lækningar, sem verður ekki
við komið í praxis.
2. Læknar stofni eigin lífeyris-
sjóð, sem tryggi lækna eins
vel og nokkur annar, svo að
hræðslan við sult og elli reki
okkur ekki í kaldar greipar
hins opinbera hér eftir sem
hingað til.
Stjórn Læknafélags íslands er það mildð ánægjuefni
að skýra frá því, að Björgúlfur læknir Ólal'sson hefur fært
Læknafélagi Islands að gjöf Læknablaðið frá upphafi.
Ætlun gefanda er, að þetta eintak verði eign Lækna-
félags íslands, en í framtíðinni varðveitt í fyrirhuguðu
bókasafni Domus Medica.
Læknasamtökin hafa ekki fvrr átt heilt eintak Lækna-
blaðsins, og vill stjórn L.í. þakka þessa höfðinglegu gjöf
og lmg þann, er henni fvlgir.
Reykjavík, 12. ágúst 1965.
Ólafur Bjarnason Ásmundur Brekkan
formaður ritari