Læknablaðið - 01.08.1965, Blaðsíða 27
LÆKNABLAÐIÐ
55
lætissjúklingum hér á Klepps-
spítalanum.
Fju'sti sjúklingurinn var 33
ára karlmaður, sem hafði verið
með hringhugasýki frá ungl-
ingsárum. Aðallega bar á löng-
um oflætisköstum með skamm-
vinnu þunglyndi og skammvinnu
eðlilegu ástandi. Þessi sjúkling-
urhafði verið á mörgum sjúkra-
húsum, hæði hérlendis og er-
lendis. Hann hafði oft fengið
rafrotsmeðferð, insulínkóma,
auk largactil-trilafon-meðferð-
ar, en bati ávalll verið mjög
skammvinnur. Hinn 23.4. 1963
er sjúklingnum fvrst gefið lit-
hitum. Sjúklingurinn var þá
með mikið oflæti, en hálfum
mánuði siðar er liann orðinn
rólegur, prúður og eðlilegur í
framkomu. Nokkrum vikum
síðar er hann kominn í fasta
vinnu og er í henni enn. Þessi
sjúklingur kemur hingað einu
sinni í mánuði lil eftirlits og
hlóðtöku og er stöðugt í prýði-
legu jafnvægi. Hann tekur dag-
lega tvær töflur af lithium-car-
honat, kvölds og morgna, og
liefur engin óþægindi af því.
Eins og er, eru 27 sjúklingar
með hringhugasýki á lithium-
gjöf, þar af 17 útskrifaðir, en
þeir koma reglulega lil eftirlits
og serum-lithium-rannsóknar.
Af hinum 10 sjúklingum, sem
eru hér á sjúkrahúsinu, er að-
cins einn með oflæti; er það
33 ára karlmaður, sem kom
hingað á spítalann fyrir hálfum
mánuði með mikið oflæti. Fyr-
ir 10 dögum var hann setlur á
lithium, og er í dag með lítið
oflæti.
Að endingu vil ég taka fram,
að reynsla okkar hér á spítal-
anum af lithiummeðferð á of-
lætissjúklingum hefur verið
ágæt, og séu sjúklingar líkam-
lega hæfir fyrir lithium og séð
inn, að serum-lithiuin-magn
fari ekki yfir 2 m æky/I ásamt
nákvæmu klínisku eftirliti, tel
ég lithiummeðferð algerlega
hættulausa.
HEIMILDARRIT:
Schou, Mogens: Lithium i den
Psykiatriske Terapi. Diss, Árhus
1959.
SUMMARY.
Olafsson, O.:
Lithium in the Treatment of
Manic Depressive Psychosis.
Lithium-carbonate has been used
at the Mental Hospital in Reykja-
vík in the treatment of a group
of twenty seven patients with
manic depressive psychosis. The
main indication for treatment was
recurrent manic attacks. Dosage
starts with 600 mgs t.i.d. and con-
tinues until unquestionable im-
provement of patient, or until a
serum-lithium concentration of 2
milliequivalents per litre has been
reached. Dosage is then reduced to
approx. 300 mgs t.i.d. Results have
been very good, all patients re-
sponding well and continuing
treatment with regular clinical
and laboratory controls.